Varðandi powersupply og dularfull poweroff á tölvunni


Höfundur
tran
Nýliði
Póstar: 13
Skráði sig: Mið 27. Ágú 2003 13:55
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Varðandi powersupply og dularfull poweroff á tölvunni

Pósturaf tran » Mið 27. Ágú 2003 14:05

Þetta byrjaði núna bara um helgina í fyrsta sinn, þá var ég að spila monopoly tycoon í tölvunni á lani og allt í einu slökknaði bara á tölvunni(enginn bluescreen).. fór ekkert í shutdown eða neitt þesslags.. Síðan þá hefur þetta gerst fjórum sinnum, bæði við 100% og 0% cpu load. Ég var með tölvuna yfirklukkaða um helgina en ég niðurklukkaði hana eftir 2 "shutdown" en það breytti engu.
Ég er með dragon kassa og 340w chieftech powersupply sem fylgdi með...
það voru 2 harðir diskar í vélinni þangað til áðan þegar ég bætti 2 við..
p4 2.4 ghz örri
abit bd7-II móðurborð
2x512mb 400 mhz ram
geforce 4 ti4200

Ég fór að athuga voltage í motherboard manager og þetta er það sem mbm segir við 100% load eftir prime95 keyrslu í smá tíma:
Mynd

Helst finnst mér +12v lágt en ég hef í rauninni ekkert til að miða við...

Einnig gæti verið tengt að síðasta árið eða svo hefur verið að slökkna á einum harða diskinum mínum randomly en bara svona 1-2x í mánuði.. Þá kemur bluescreen(enda er stýrikerfið á disknum) og tölvan rebootar og finnur ekki diskinn fyrr en ég powera tölvuna alveg niður og upp aftur..
Diskurinn virkar fínt, ég er búinn að gera 100% surface scan og scanna hann með tólum frá western digital líka..

Mig grunar að það séu svona 90% líkur á að þetta sé powersupplyið, en ég er ekki alveg viss..
Og ef þetta er powersupplyið þá er ég heldur ekki viss af hverju þetta er.. Vantar mig öflugra powersupply? (í wöttum).. Vantar mig "betra" powersupply? (as in betra merki.. enermax eða eitthvað í þá áttina? )

PS, ég veit að þetta er EKKI hitavandamál svo að það er engin þörf að flækja það inn í þetta :)
-Tran



Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1312
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 103
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Mið 27. Ágú 2003 14:18

mér finnst nú VCOREið vera frekar lágt hjá þér líka, um 1.4V??

P4 2.4 ætti að vera 1.525V

passaðu að MBM sé að fylgjast með réttum skynjara, og hvað ertu með VCORE stillt á í bios ?

Fletch




Höfundur
tran
Nýliði
Póstar: 13
Skráði sig: Mið 27. Ágú 2003 13:55
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf tran » Mið 27. Ágú 2003 14:21

ég er með vcore í bios stillt bara á default, enda ekki að yfirklukka neitt atm..



Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1312
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 103
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Mið 27. Ágú 2003 16:04

Segir bios'in það sama og MBM ? PC Health í honum...

fylgstu með VCORE þar..

Varstu að fjölga íhlutum í vélinni ?

Fletch



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3755
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Mið 27. Ágú 2003 16:22

Ertu með eve installaðan og nortan anti virus hún gerði þetta hjá mér lét bara nortan antovirus malla í smá tíma og allt fínt



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6429
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 291
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Fös 29. Ágú 2003 16:06

henntu þessu psu áður en þú grillar kerfið alveg! -12v er í -8.41v!!!! það er alltof lágt! taktu zalmann psu hjá task.is. mjög gott, stöðugt o g vandað psu http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=317 kostar reyndar hátt í 15000kallinn en það er þess virði ;)


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16305
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2016
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Pósturaf GuðjónR » Fös 29. Ágú 2003 16:50

Ég keypti svona PSU hjá þeim um daginn...virkar fínt ;)



Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1312
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 103
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Fös 29. Ágú 2003 19:30

gnarr skrifaði:henntu þessu psu áður en þú grillar kerfið alveg! -12v er í -8.41v!!!! það er alltof lágt! taktu zalmann psu hjá task.is. mjög gott, stöðugt o g vandað psu http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=317 kostar reyndar hátt í 15000kallinn en það er þess virði ;)


Óþarfi að hafa áhyggjur af mínus línunum, þær eru ekki notaðar...

Fletch



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16305
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2016
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Pósturaf GuðjónR » Fös 29. Ágú 2003 19:38

En þetta psu nær hvergi 12V



Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1312
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 103
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fletch » Fös 29. Ágú 2003 19:40

GuðjónR skrifaði:En þetta psu nær hvergi 12V


minnsta mælda gildi hjá honum er 11.55V sem er heldur lágt...

lægsta sem mitt hefur farið í er 11.86V eftir nokkra daga keyrslu...

Fletch




Hlynzi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 979
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Reputation: 40
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hlynzi » Mán 01. Sep 2003 20:46

Ég gæti trúað því að PSU sé ekki nógu stórt. Þú getur reiknað út orkunotkun tölvunnar á að vera merkt, amper og volt.
Mér finnst 12+ voltin frekar lág, hjá mér er það alltaf rétt yfir 12, og fer sjaldan undir það. Og svo það að þú virðist tapa einhverju í 12- voltunum finnst mér dularfullt, það gæti verið nóg fyrir psu til að álykta að kerfið slái út, svipað og lekaliði í húsum hérna, hiti er mögulegt vandamál, en hann er þá mjög áberandi.


Hlynur


valdiorn
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Þri 09. Sep 2003 22:31
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf valdiorn » Þri 09. Sep 2003 23:07

ég veit ekki akkurru tölvan slekkur á sér EN KAUPTU ÞÉR BETRI VIFTU!!! My god þú ert að rústa örgjörfann með 67° hita!!! þú mátt þakka fyrir að það er ekki brunagat í honum. ráðlagður "load" hiti á örgjörfa eins og þínum er í kringum 55° og niður. yfir 65° er að drepa örgjörfann þinn hægt og rólega.
þetta er bara svona friendly reminder :)




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Þri 09. Sep 2003 23:09

Þetta er kasnki ekki ráðlagður hiti, en miðað við það sem ég hef heirt hér á örinn alveg að ráða við þetta.




Hlynzi
vélbúnaðarpervert
Póstar: 979
Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
Reputation: 40
Staðsetning: RVK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Hlynzi » Mið 10. Sep 2003 08:36

valdiorn skrifaði:ég veit ekki akkurru tölvan slekkur á sér EN KAUPTU ÞÉR BETRI VIFTU!!! My god þú ert að rústa örgjörfann með 67° hita!!! þú mátt þakka fyrir að það er ekki brunagat í honum. ráðlagður "load" hiti á örgjörfa eins og þínum er í kringum 55° og niður. yfir 65° er að drepa örgjörfann þinn hægt og rólega.
þetta er bara svona friendly reminder :)


Örrinn ætti alveg að ráða við þetta. Þarnæsta helgi er það dk. og þar ætla ég að versla mér eitthvað über heatsink.


Hlynur