Eftir að hafa unnið með báða kassana auk Coolmax 550W aflgjafana, þá er Sonata Plus ENGIN spurning
Hann er rúmbetri, hægt að draga kaplana fyrir aftan og fela þá, auk þess að hliðarnar á honum eru efnismeiri og einangra betur varðandi hljóð. Það er rýmra um diskana og aflgjafinn er modular, getur sleppt þeim snúrum sem þú ert ekki að nota.
Einnig flokka ég Antec aflgjafana langt fyrir ofan Coolmax hvað gæði og hljóð varðar, Antecinn er gott sem hljóðlaus, en heyrist svolítið í Coolmaxinum. Auk þess er Antecinn 3x18A á 12V spennunni en Coolmaxinn 2x18A ...
Eins og ég segi, þá er engin vafi í mínum huga hvorn ég tæki
![Razz :P](./images/smilies/icon_razz.gif)