Síða 1 af 1

Software OC

Sent: Lau 02. Feb 2008 00:12
af Selurinn
Hvaða software OC mæliði með.

Er með E6400 sem ég vil yfirklukka, var að kaupa ný vinnsluminni bara svo ég gæti klukkað hann hærra, en BIOSinn bíður ekki uppá FSB breytingum né voltum :S

Veit ekkert hvaða móðurborð þetta er nema að það sé MSI, svo ég get ómögulega fundið BIOS uppfærslu fyrir þetta :S

Hvaða Software OC er best að nota?

Sent: Lau 02. Feb 2008 02:59
af Klemmi
Stendur yfirleitt týpunúmer á móðurborðinu sjálfu ef þig langar að skoða það.

Sent: Lau 02. Feb 2008 08:42
af Yank
MSI er með Live update software sem sér um bios uppfærslur fyrir þig.

Sent: Lau 02. Feb 2008 22:22
af Selurinn
Rafmagnið sem er í þessu herbergi í húsinu sem ég er í er alltaf að slá út öðru hverju, er ekki alveg að treysta því :(

Sent: Lau 02. Feb 2008 22:43
af Yank
Selurinn skrifaði:Rafmagnið sem er í þessu herbergi í húsinu sem ég er í er alltaf að slá út öðru hverju, er ekki alveg að treysta því :(


Þá skiptir nú voða litlu máli hvaða aðferð er notuð til að uppfæra bios, alltaf sama áhætt :idea:

Sent: Lau 02. Feb 2008 22:55
af Dazy crazy
Hvaða áhætta er það sem talað er um?

Sent: Sun 03. Feb 2008 05:20
af Klemmi
Ef að tölvan drepur á sér á meðan þú ert að uppfæra BIOS þá geturðu lent í bölvuðum vandræðum, þ.e.a.s. þar sem hún hendir út BIOS softwareinu, er að skrifa nýrri útgáfu inná en nær ekki að fullskrifa hana...
Hins vegar hægt að bjarga því sé viljinn og tólin fyrir hendi, einnig bjóða mörg móðurborð upp á dual-bios, þ.e.a.s. þá ef móðurborðið skynjar að annar BIOS-inn ræsir ekki rétt upp, þá ræsir hún upp af backupinu.

Sent: Sun 03. Feb 2008 11:41
af Dazy crazy
Ok, takk fyrir það. :)

Sent: Þri 05. Feb 2008 09:53
af RaKKy
Ef þú lendir í BIOS update vandræðum er alltaf hægt að RMA borðið <.< búðin ætti að gera það free of charge of láta þig fá nýtt :D

Vertu bara ekkert að auglýsa hvað kom fyrir.

Annars , gæti verið að þú sért með lappa borð?

Sent: Þri 05. Feb 2008 10:47
af Yank
RaKKy skrifaði:Ef þú lendir í BIOS update vandræðum er alltaf hægt að RMA borðið <.< búðin ætti að gera það free of charge of láta þig fá nýtt :D

Vertu bara ekkert að auglýsa hvað kom fyrir.

Annars , gæti verið að þú sért með lappa borð?


Bara skíthæll sem gerir svona.

Sent: Þri 05. Feb 2008 12:09
af urban
RaKKy skrifaði:Ef þú lendir í BIOS update vandræðum er alltaf hægt að RMA borðið <.< búðin ætti að gera það free of charge of láta þig fá nýtt :D

Vertu bara ekkert að auglýsa hvað kom fyrir.

Annars , gæti verið að þú sért með lappa borð?


já um að gera að láta starfsmenn vinna einhverja vinnu vegna klaufaskapr hjá notenda, og ætlast til þess að fá það frítt

þú ert semsagt maðurinn sem að mundir alveg skemma einhvern hlut, t.d. með oc eða hreinlega óvarkárni og fara síðan og heimta nýtt útaf ábyrgð.

og kvarta síðan ábiggielga yfir því að tölvuhlutir hækki eða lækki ekki einsog þeir ættu að gera..