Vatnskæling á sérsmíðaðri tölvu


Höfundur
B0b4F3tt
Ofur-Nörd
Póstar: 286
Skráði sig: Þri 05. Ágú 2014 12:11
Reputation: 49
Staða: Ótengdur

Vatnskæling á sérsmíðaðri tölvu

Pósturaf B0b4F3tt » Sun 06. Des 2020 09:49

Sælir Vaktarar

Aðili sem ég þekki ætlar að fara að setja saman nýja tölvu og hann fékk þá flugu í höfuðið að honum langaði að smíða trékassa utan um tölvuna (hann er smiður :D ). Þá fórum við að spá hvort við ættum ekki að setja custom vatnskælingu í þetta, bæði fyrir skjákortið og örgjörvann.

Þetta er allt ennþá á skipulagsstiginu þannig að það er ekkert búið að ákveða íhlutina. En hvar eru menn helst að kaupa íhlutina fyrir custom vatnskælingu? Eitthvað sem er gott að hafa í huga áður en menn leggja í svona vegferð? Tek það fram að hvorugur okkar hefur sett saman svona custom vatnskælda vél.

Kv. Elvar



Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1312
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 103
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Re: Vatnskæling á sérsmíðaðri tölvu

Pósturaf Fletch » Sun 06. Des 2020 10:35

Ég mæli með ekwb, þeir eru líka með custom configurator sem getur hjálpa þegar maður er að byrja, https://www.ekwb.com/custom-loop-configurator/

nr1 ákveða hvað á að kæla, ákveða soft tubing vs hardtubing (persónulega nota ég soft tubing, mun einfaldara í viðhaldi en hard tubing er mun flottara), ákveða stærð og fjölda radiatora, ákveða location á hlutunum


AMD Ryzen 7900X3D * Nvidia GTX 4090 * Asus ROG STRIX B650E-ITX * 32GB DDR5
LianLi * Seasonic Vertex1200w * Alienware 34" OLED AW3423DWF

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4930
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 861
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vatnskæling á sérsmíðaðri tölvu

Pósturaf jonsig » Sun 06. Des 2020 10:41

1,2,3. Hvaða á að flytja mikinn hita frá íhlutunum.
4. Pláss, dæla, slöngur og vatnskassi eða vatnskassar.
5. Versla á occool eða ekwb. Kaupa góðar slöngur og fittingsa og sleepa því að fá allt á flot, en kannski nauðsynlegt í þágu reynslunnar.

Getur byrjað á að hafa bara glærar slöngur til að byrja með, eina sem þarf að læra þar er að troða þeim uppá fittingsana. Hvort sem það eru slöngufittingsar eða herslu. Slöngufittingsarnir eru idiot proof en þurfa hosuklemmur.

Líka hægt að panta allt í þetta af ebay, ódýra pumpu , vatnskassa. En af einhverri ástæðu eru rusl fittingsarnir þar jafn dýrir og hjá occool eða ekwb.. það er mjög gaman að setja saman ghetto vatnskælingu, þær performa helvíti vel.