Síða 1 af 1

5800x fer vel yfir "MAX" uppgefið clock ?

Sent: Lau 09. Jan 2021 10:55
af jonsig
Er einhver ástæða fyrir að örgjörvinn hjá mér er að klukkast vel yfir uppgefið Boost clock ?
Ég man ekki eftir þessu með 2600x,3600x og 3900x sem ég hef átt áður. Einnig eru menn að tuða á internetz að koma 5800x einfaldlega ekki yfir "max boost clock" ?
Er þetta error í HW info og aida64 ? Er með Asus Strix móðurb. er það að vesenast í clockinu ? Eina sem sem ég hef breytt er sub timings á minni, allt annað er default eftir því sem ég best veit.

Hiti er alls ekki vandamál, 1klst stress test kallar á 65C° enda cpu á overkill Custom Loop.

Aida64 (CPU Type OctalCore AMD Ryzen 7 5800X, 4841 MHz (48.5 x 100))

Mynd

Re: 5800x fer vel yfir "MAX" uppgefið clock ?

Sent: Lau 09. Jan 2021 11:33
af einarhr
Mín reynsla af AMD í gengum árin að kubbarnir eru mismunandi hjá þeim

Bætt við

BUlldozer kubbarnir td yfirklukkast mismunandi mikið þó svo báðir væru td FX8350 út af hitastigi
1 og 2 Gen Ryzen var ekkert að yfirhlukkast af neinu viti en spennandi að sjá með nýjasta Gen Ryzen

Re: 5800x fer vel yfir "MAX" uppgefið clock ?

Sent: Lau 09. Jan 2021 14:52
af jonsig
einarhr skrifaði:Mín reynsla af AMD í gengum árin að kubbarnir eru mismunandi hjá þeim

Bætt við

BUlldozer kubbarnir td yfirklukkast mismunandi mikið þó svo báðir væru td FX8350 út af hitastigi
1 og 2 Gen Ryzen var ekkert að yfirhlukkast af neinu viti en spennandi að sjá með nýjasta Gen Ryzen


Eru þetta þá bara upgefin minimum guaranteed clocks sem þú getur búist við að kaupa vöruna ? Eða er móðurborð að vesenast eitthvað í honum , samt keyrir hann ekkert mikið heitar en 3600x :catgotmyballs

Re: 5800x fer vel yfir "MAX" uppgefið clock ?

Sent: Lau 09. Jan 2021 19:24
af Fletch
held þeir hafa viljandi gefið upp lower end af boost getu, brenndu sig á 3000 línunnu, þar gáfu þeir upp upper mark sem boost speed sem fæstir örgjörvar náðu

Re: 5800x fer vel yfir "MAX" uppgefið clock ?

Sent: Lau 09. Jan 2021 19:31
af jonsig
Klockið er bara peak 4.78 GHz í ryzen master.

Það er ekki bara hitinn sem cpu lýgur að móðurborð til að halda kælingunni skilvirkri. Það er ekkert hægt að marka neitt held ég nema ryzen master. T(C°) - Volt - Hz , EDC limit osvfr.

Re: 5800x fer vel yfir "MAX" uppgefið clock ?

Sent: Lau 09. Jan 2021 21:33
af zurien
Ryzen master sýnir max 4750MHz á mínum 3800X. - Ekki alveg marktæki í því tilfelli imo.
HWinfo64 hefur sýnt single core fara upp í 4600.

Í leikjum eins og Cyberpunk og Division 2 á bilinu 4400-4500 og fer eiginlega aldrei yfir 72 gráður.

Er með PBO stillt á manual með PPT 330 & TDC/EDC á 230, Scalar 5X.
Fyrir þessar PBO stillingar fór hann nánast aldrei yfir 4250 í leikjum.

3800X á MSI B450 Tomahawk.
https://imgur.com/a/ME3vWJL

Hér er der8auer að fara yfir sínar athuganir á boost á Ryzen 3000 línunni.
Eins og var sagt hér að ofan, þeir hafa væntanlega passað sig hvað varðar yfirlýsingar á 5000 línunni.
https://www.youtube.com/watch?v=DgSoZAdk_E8

Re: 5800x fer vel yfir "MAX" uppgefið clock ?

Sent: Lau 09. Jan 2021 22:01
af jonsig
jonsig skrifaði:Klockið er bara peak 4.78 GHz í ryzen master.

Það er ekki bara hitinn sem cpu lýgur að móðurborð til að halda kælingunni skilvirkri. Það er ekkert hægt að marka neitt held ég nema ryzen master. T(C°) - Volt - Hz , EDC limit osvfr.


Ég quotea sjálfan mig því ég þarf að éta hattinn minn. Hann er að klukka nærri 4.9GHz

Mynd

Re: 5800x fer vel yfir "MAX" uppgefið clock ?

Sent: Fim 25. Feb 2021 09:15
af Templar
5950X fer reglulega í 5GHz á defaultinu.

Re: 5800x fer vel yfir "MAX" uppgefið clock ?

Sent: Sun 01. Maí 2022 17:40
af Templar
BTW var að renna yfir ólíkar niðurstöður frá Timespy og til að sýna hvað kæling gerir mikið eins og custom loop þá er ég að fá betri niðurstöðu á stock 12900K CPU bench en menn með yfirklukkaða örgjörfa. Góð kæling og ekkert temp throttling, minni orkunotkun og sustained boost. Keyri svo vifturnar á max 600rpm, heyrir ekki í græjunni.
Gæti ímyndað mér að 5950X myndi boosta vel á custom loop, sé eftir að hafa ekki prófað það en 5950X var að nota jafn mikið power og 5800 í sumum tilfellum á fullu load-i, ástæðan er sú að þetta var besta sílikonið á sínum tíma og svo miklu getur munað, ætlaði varla að trúa þessu en þetta er samt svona.

Re: 5800x fer vel yfir "MAX" uppgefið clock ?

Sent: Mán 02. Maí 2022 03:47
af akij
Minn gerir þetta líka. Aðeins búinn að fikta í stillingum. En hann fer upp og yfir 4.8 í load.