Síða 1 af 1

5900x - cinebench

Sent: Fim 13. Maí 2021 20:42
af emil40
Ég er bara nokkuð sáttur með niðurstöðurnar úr cinebench r23 sem ég gerði með nýja 5900x örgjörvann.

Re: 5900x - cinebench

Sent: Fös 14. Maí 2021 02:05
af Sinnumtveir
Þetta er ágætt, en ef þú notar alla kjarna/þræði ferðu yfir 20 þús í multi-core score. Tekur með öðrum orðum Threadripper 1950X í nefið.

Re: 5900x - cinebench

Sent: Fös 14. Maí 2021 11:04
af emil40
get ég stillt þannig að ég láti hana nota alla kjarnanna ?

Re: 5900x - cinebench

Sent: Fös 14. Maí 2021 22:10
af emil40
væri einhver sem gæti hjálpað mér til að stilla það þannig að allir kjarnarnir séu í notkun í einu ?

Re: 5900x - cinebench

Sent: Fös 14. Maí 2021 23:29
af Sinnumtveir
Ég hef aldrei keyrt Cinebench og hef því ekki hugmynd um hvort 6C/12T var valið þar.

Ég er uþb sjúr að hægt er að stjórna kjarnanotkun í Ryzen Master, en það hef ég heldur aldrei notað.

Sorrí, vonandi eru einhverjir aðrir betur búnir til svara.

Spurning sem ég hef: Ertu yfir höfuð að nota nema hálfan örgjörvann?

Re: 5900x - cinebench

Sent: Lau 15. Maí 2021 01:36
af emil40
Sinnumtveir skrifaði:Ég hef aldrei keyrt Cinebench og hef því ekki hugmynd um hvort 6C/12T var valið þar.

Ég er uþb sjúr að hægt er að stjórna kjarnanotkun í Ryzen Master, en það hef ég heldur aldrei notað.

Sorrí, vonandi eru einhverjir aðrir betur búnir til svara.

Spurning sem ég hef: Ertu yfir höfuð að nota nema hálfan örgjörvann?


sennilega ekki en mig langar að nota hann allann samt :)

Re: 5900x - cinebench

Sent: Lau 15. Maí 2021 02:50
af Sinnumtveir
Ok, veit nú fyrir víst að með Ryzen Master er hægt að skrúfa fyrir einstaka kjarna og heilu CCX-ana (CCX = Core Complex) sem í tilfelli 5900X eru 2.

Sting upp á að þú náir þér í Ryzen Master frá AMD og skoðir stöðuna á kerfinu hjá þér.

Re: 5900x - cinebench

Sent: Lau 15. Maí 2021 09:13
af Tiger
Ég hefði nú bara haldi að hann ætti að koma default upp með ölum 12 kjörnunum án þess að þurfa að breyta neinu í Ryzen Master, minn 3900x gerir það alla vegana. Ef þú ferð í task manager, sérðu alla 24 þræðina þar sem sér process?

Re: 5900x - cinebench

Sent: Lau 15. Maí 2021 13:07
af emil40
Tiger skrifaði:Ég hefði nú bara haldi að hann ætti að koma default upp með ölum 12 kjörnunum án þess að þurfa að breyta neinu í Ryzen Master, minn 3900x gerir það alla vegana. Ef þú ferð í task manager, sérðu alla 24 þræðina þar sem sér process?

Re: 5900x - cinebench

Sent: Lau 15. Maí 2021 17:24
af gnarr
Þú verður að slökkva á "Game Mode" í Ryzen Master

Re: 5900x - cinebench

Sent: Lau 15. Maí 2021 21:49
af emil40
Gnarr : gætir þú leiðbeint mér með það hvernig ég slekk á því ?

Re: 5900x - cinebench

Sent: Lau 15. Maí 2021 22:40
af emil40
Ég fann út úr þessu jibbbí :) Ennþá betri niðurstöður !!!! Gæti sko ekki verið sáttari með skrímslið !!!!

Re: 5900x - cinebench

Sent: Lau 15. Maí 2021 22:41
af Mossi__
Goddamn!

Tillykke!

Re: 5900x - cinebench

Sent: Lau 15. Maí 2021 22:45
af emil40
takk !!!!

tók threadripper 1950x 16 kjarna vel í nefið !