[Gefins/TS] HP Proliant D380 G6 2U og DL380 G7 2U

ATH: Einungis er leyfð sala á tölvum og tölvutengdum búnaði.
VARÚÐ: Verðlöggur eru leyfðar með þeim takmörkunum að ýtrustu kurteysi er krafist af þeim.

Höfundur
traustitj
Nörd
Póstar: 137
Skráði sig: Lau 31. Júl 2021 23:49
Reputation: 23
Staða: Tengdur

[Gefins/TS] HP Proliant D380 G6 2U og DL380 G7 2U

Pósturaf traustitj » Mán 09. Feb 2026 14:21

G6

Ég var aðeins að sýsla í rakkinum mínum og setti þennan aldrei aftur inn því ég fékk nýjann server.

Ég man ekki 100% hvað er í honum, en minnir að það séu 2xQuad core Xeon CPU og einhver hellingur af vinnslu minni en er diska laus. Hann er með dual power supply og allt sem alvöru server þarf. Hann styður alla SSD diska og SAS diska, 2.5". Ég get double tjékkað á því hvort hann sé ekki örugglega með dual CPU seinna í dag, mun breyta auglýsingunni ef hann er ekki dual CPU. Það er doldið síðan hann var í notkun síðast. Ég myndi ekki hafa þennan í sama herbergi og ég væri að vinna í, ekki mikill hávaði en samt meira en maður á að venjast í dag.
nazgul.JPG
nazgul.JPG (374.5 KiB) Skoðað 67 sinnum

Serverinn er staddur í Keflavík, hægt er að taka hann í bæinn ef beðið er fallega.

Það var alltaf hugmynd hjá mér að nýta SAS backplane-ið í vélinni og smella í hann öðru móðurborði, en þar sem ég hef ennþá ekki gert það í marga mánuði þá held ég að ég sé ekkert að fara að gera það. Ef einhver vill server til að fikta í þá er þessi falur og gefins ef hann er sóttur.

G7 server

** fyrir áhugasama, þá er ég með mun nýrri HP Proliant D380 G7 2U með dual CPU (E5645 @ 2.40GHz), 24 cores, 70 GB minni, óska eftir rausnalegu tilboði.
G7 serverinn, það má hafa hann á sömu skrifstofu, enginn svaka hávaði.
Síðast breytt af traustitj á Mán 09. Feb 2026 14:25, breytt samtals 2 sinnum.