Síða 2 af 2

Re: [TS] Nexus 7 LÆKKAÐ VERÐ!

Sent: Sun 02. Sep 2012 15:00
af AntiTrust
Þetta er því miður sáraeinfalt - Það er enginn að fara að versla vöru sem er keypt erlendis og ekki með 2ára lögbundna ábyrgð hérna heima á sama verði og hægt að fá hana nýja þrátt fyrir bið. Ekki myndi ég heldur versla vöruna á 10þ.kr. minna notaða án ísl. ábyrgðar vs. að kaupa hana út í búð nýja með ábyrgð.

Þetta er bara óraunhæft verð, því miður.

Re: [TS] Nexus 7 LÆKKAÐ VERÐ!

Sent: Sun 02. Sep 2012 15:03
af AciD_RaiN
Það sem ég á erfiðast með að skilja er hvernig fólk hefur það virkilega í sér að getað komið svona fram og reynt að okra á fólki. Sumir myndu ekki vita betur. What goes around, comes around. Þú vilt væntanlega ekki láta taka þig í þurrt þannig ekki reyna að gera það við aðra...

Re: [TS] Nexus 7 LÆKKAÐ VERÐ!

Sent: Sun 02. Sep 2012 15:37
af arnif
Ég setti þetta verð útfrá verðinu frá Hátækni. Spjaldtölvan var notuð til að horfa á eina bíómynd í flugferð og eftir það hefur verið slökt á henni.
Þetta verð er ekkert heilagt það má alveg bjóða!

Re: [TS] Nexus 7 LÆKKAÐ VERÐ!

Sent: Sun 02. Sep 2012 15:55
af Oak
þú verður þá að orða þetta öðruvísi en fæst á 50 þús....það er meira svona fer ekki á minna en 50 þús.

Re: [TS] Nexus 7 LÆKKAÐ VERÐ!

Sent: Sun 02. Sep 2012 19:59
af tolli60
þú hefur væntanlega keypt hana á 195 dollara í staples er það ekki 25þús?

http://www.staples.com/sbd/cre/products ... :1:700X440
en vilt fá hvað?

það er líka hægt að panta hana beint frá staples