Síða 1 af 1

Aorus 1080ti skjákort til sölu [SELT!]

Sent: Lau 12. Jún 2021 17:15
af imesha94
Lítið notað (3 mánuði) skjákort til sölu. [SELT!]
GIGABYTE AORUS GTX 1080ti 11G
Verð: Tilboð
https://www.gigabyte.com/FileUpload/Global/KeyFeature/665/index.html

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Lau 12. Jún 2021 17:46
af jonsig
Fjarlægt

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Lau 12. Jún 2021 18:31
af imesha94
Meina er nýr á þessari síðu :/ ekkert sem ég get gert í því, en getur alltaf komið að skoða kortið ef þú hefur einhverjar efasemdir.

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Lau 12. Jún 2021 20:26
af imesha94
65k hæsta boð

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Sun 13. Jún 2021 11:05
af imesha94
75k hæsta boð

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Sun 13. Jún 2021 12:13
af Brimklo
Er kortið bara notað í 3 mánuði? Minnir að það sé meira en 4 ár síðan þessi kort komu í sölu.

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Sun 13. Jún 2021 14:23
af imesha94
Það var keypt fyrir 2 árum síðan en var bara notað í 3 mánuði og lagt síðan til hliðar en það er rétt hjá þér að þessi kort komu fyrst til sölu fyrir 4 árum

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Sun 13. Jún 2021 19:21
af jonsig
Fjarlægt

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Sun 13. Jún 2021 19:54
af imesha94
Veit ekki alveg hverju ég á að svara þér... En takk kærlega fyrir hlýju móttökurnar annars! Getur alltaf kíkt við og skoðað kortið en held þú haldir þig betur bakvið skjá að dæma aðra en skemmtu þér að því!

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Sun 13. Jún 2021 20:01
af einarhr
imesha94 skrifaði:Veit ekki alveg hverju ég á að svara þér... En takk kærlega fyrir hlýju móttökurnar annars! Getur alltaf kíkt við og skoðað kortið en held þú haldir þig betur bakvið skjá að dæma aðra en skemmtu þér að því!


Sæll og velkomin á Vaktina, Jonsig er sennilega bitrasti meðlimurinn hérna en ekki láta þennan fýlupúka pirra þig.

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Sun 13. Jún 2021 20:07
af imesha94
Takk fyrir það og gott ráð! ;)

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Sun 13. Jún 2021 22:59
af jonsig
imesha94 skrifaði:Takk fyrir það og gott ráð! ;)


Sé að þið tveir smellpassið saman.

Fjarlægt

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Sun 13. Jún 2021 23:12
af imesha94
þú verður nú samt að viðurkenna jonsig að koma svona fram við nýliða er ekki besta lýsingin á þér. Held þú sért samt alveg fínasti gaur en verður kannski að vanda orðalagið stöku sinnum. Vona þú eigir annars bara ágætan dag og við skulum bara gleyma öllu þessu þrugli. Og eins og ég sagði áður getur alltaf komið og skoðað kortið ef þú hefur enn einhverjar efasemdir.

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Sun 13. Jún 2021 23:22
af jonsig
Tvennt sem ég var að gera.

1. Ef einhver trúir ekki að kortið hafi litla notkun, þá benti ég á dæmi hvernig hægt er að athuga það. En stjórnandi eyddi innlegginu því sumir vilja misskilja allt og verða móðgaðir fyrir hönd annara. (Undarleg hegðun)

2. Ef ég er að "bögga" einhvern á vaktinni aukast views á þræðinum um 300% sem getur ekki verið slæmt á söluþræði.

Og svona auka info. Þá er mér alveg yfirleitt sama hvað fólki finnst.

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Sun 13. Jún 2021 23:28
af imesha94
1. Takk fyrir ábendinguna og mun eflaust notfæra mér það í framtíðinni
2. Takk fyrir það og var einmitt búinn að pæla í því þannig, held við séum ekkert að misskilja hvorn annan of mikið en stundum er erfitt að skilja 100% hvað persónan er að meina með skriftinni einni. En gott að það er útkljáð!

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Mán 14. Jún 2021 13:36
af CendenZ
jonsig skrifaði: Ef ég er að "bögga" einhvern á vaktinni aukast views á þræðinum um 300% sem getur ekki verið slæmt á söluþræði.


Það eru bara við stjórnendur að athuga hvaða leiðindakomment koma frá þér í þetta sinn, ekki aukning á views frá væntanlegum kaupendum.

Þú þyrftir e.t.v að fara aftur að taka það rólega í 5-10 mínútur áður en þú ýtir á senda, jafnvel lesa yfir svarið þitt aftur og athuga hvort það megi vanda skrifin betur eins og hefur verið rætt áður

Jafnvel hugsa hvort þetta sé eitthvað sem þú vilt að fjölskyldumeðlimir eða jafnvel bara samstarfsvinir rekist á eftir 2-5 ár og stríða þér útaf því :-k

Nota bene, við misskiljum aldrei neitt enda svo klárir O:)

Re: Aorus 1080ti skjákort til sölu

Sent: Mán 14. Jún 2021 18:43
af urban
jonsig skrifaði:1. Ef einhver trúir ekki að kortið hafi litla notkun, þá benti ég á dæmi hvernig hægt er að athuga það. En stjórnandi eyddi innlegginu því sumir vilja misskilja allt og verða móðgaðir fyrir hönd annara. (Undarleg hegðun)



Ekki spila þig sem einhvern engil, Akkúrat ekkert við þetta eydda innlegg var að benda á dæmi um það hvernig var hægt að komast að notkun á skjákorti.
Þú veist það sjálfur, við eigum afrit af því, þú ert búin að fá það sjálfur frá mér.