Síða 1 af 1

Einhver að spila Hell Let Loose?

Sent: Lau 25. Júl 2020 22:09
af Ingisnickers86
Hæhæ,

Er enginn að spila Hell Let Loose? Væri til að stofna/joina einhvern hóp af spilurum ef svo er.

Hell Let Loose
https://www.google.com/search?q=hell+le ... e&ie=UTF-8

https://www.google.com/search?q=hell+le ... 560&dpr=3#

Re: Einhver að spila Hell Let Loose?

Sent: Mán 27. Júl 2020 22:19
af Ingisnickers86
Enginn?

Re: Einhver að spila Hell Let Loose?

Sent: Mán 27. Júl 2020 22:45
af JVJV
Er margoft búinn að hugsa um að kaupa hann, er á wishlist á Steam, það sem stoppaði mig var að hann yrði mögulega of þungur til að koma sér inní fyrir casual spilara.

Re: Einhver að spila Hell Let Loose?

Sent: Mán 27. Júl 2020 22:57
af Ingisnickers86
Já, það er smá learning curve en hann er mun meira "arcady" heldur en t.d. Post Scriptum eða Squad, þó oftast "one shot kill" með mjög fullnægjandi "pingi" fyrir headshot :D. Þetta er basically bara WW2 FPS með stórum borðum og með pýramída stjórn. Einn commander yfir öllu og svo Squad Leaders og 5 squad mates í hverju squad-i. Ef samskiptin eru góð á milli manna og menn hlýða squad leader-num þá er þetta rosalega skemmtileg upplifun.

Eina sem er að hann laggar stundum en það lagast oft fljótt (sem og nýtt patch á leiðinni sem á að laga það).

Sendu mér Steam ID í PM ef þú vilt koma spila :)

Re: Einhver að spila Hell Let Loose?

Sent: Fös 21. Maí 2021 17:20
af Krunare1
Ertu ennþá að spila ingisnickers86?

Re: Einhver að spila Hell Let Loose?

Sent: Sun 23. Maí 2021 01:46
af DabbiGj
Er þetta svipað og DOD ( Day of defeat ) ?

Re: Einhver að spila Hell Let Loose?

Sent: Sun 23. Maí 2021 20:23
af ChopTheDoggie
DabbiGj skrifaði:Er þetta svipað og DOD ( Day of defeat ) ?


Já, basically realistic mode :megasmile

Re: Einhver að spila Hell Let Loose?

Sent: Fim 14. Okt 2021 23:25
af netkaffi
Er að fara spila hann eða prófa einhvertíman af því hann fylgdi með PS Plus áskriftinni (sem eru kjarakaup, 60$ á ári fyrir skrilljón leiki) í Október. Á reyndar enga PlayStation tölvu, en er að fara fá mér PS5 einhvertíman. https://www.playstation.com/en-is/ps-pl ... n-ps-plus/

Re: Einhver að spila Hell Let Loose?

Sent: Fös 03. Des 2021 11:08
af GullMoli
Keypti hann ásamt nokkrum öðrum á haust útsölu Steam, hefði sennilegast ekki keypt hann ef ég væri ekki með hóp til að spila hann með.

Er mjög spenntur fyrir honum þar sem þetta er frískandi tilbreyting frá BF/COD etc þar sem þú færð feedback/reward fyrir nánast hvert einasta skref sem þú tekur. Eina feedbackið í HLL er ef að þú hittir einhvern í hausinn þá kemur smá "ding" hljóð, annars er maður ekkert endilega viss um hvort maður hitti eða þá hvort að einstaklingurinn sé ennþá lifandi. Það er skemmtileg óvissa og ýtir manni í að vera varkár. Algjör skylda að vera með hljóðnema og nota ingame voice chat til þess að láta vita af óvinum ofl.

Þetta kallar vissulega á smá þolinmæði en mér finnst hann (eftir eitt stutt spil í gærkvöldi) vera með mjög gott balance á milli simulation og arcade. Svo er gott vote'ing kerfi í leiknum, þar sem fólki er auðveldlega hent útaf serverum sem er gott anti-cheat í sjálfu sér, hef amk ekkert heyrt neitt um svindlara. Sömuleiðis eru developerarnir mjög duglegir að hlusta á spilara og gera breytingar/viðbætur.