Síða 1 af 2

þarf ykkar skoðun

Sent: Mán 24. Maí 2021 21:44
af PcErPOG
https://builder.vaktin.is/build/64628
er þetta gott build fyrir cs:go?

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Mán 24. Maí 2021 21:48
af Klemmi
Þú ert líklega að grínast?

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Mán 24. Maí 2021 21:51
af ZiRiuS
Af hverju ertu að splæsa í 70þús kr kassa fyrir Micro-ATX móðurborð?

Ef þú hefur áhyggjur af því að keyra (fasísk ritskoðun ef ég skrifa rönnna, boomers) ekki csgo myndi ég kaupa 3x ódýrari kassa og nota peninginn í betri cpu og gpu.

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Mán 24. Maí 2021 22:20
af GuðjónR
7k örgjörvi og 70k aflgjafi.
Þú ert með forganginn á hreinu =D>

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Mán 24. Maí 2021 22:23
af worghal
troll dagsins?

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Mán 24. Maí 2021 22:26
af L0ftur
Whut.... Það er ekki einusinni GPU þarna inni.

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 00:59
af RikkzY
vona innilega að þú sért að grínast en ef ekki þá myndi ég ekki kaupa það sem þú settir inn :)

https://builder.vaktin.is/build/B320B

þetta myndi ég hinsvegar kaupa ef ég væri að setja sama tölvu fyrir peninginn sem þú settir inn og svo myndi ég fara og skrá mig strax á lista hjá öllum tölvu verslunum á landinu fyrir 3070/3080 skjákort

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 08:14
af Hausinn
Counter-Strike: Global Offensive er rúmlega 20GB að stærð. Hvernig ætlaru að koma leiknum á tölvuna ef þú hefur aðeins 16GB vinnsluminni? Veistu ekki neitt?

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 08:19
af Haraldur25
Óþarfi að vera leiðinlegir við nýliðann. Getið ekki haldið að allir hafi þessa tölvukunnáttu eins og veterans hér.

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 09:08
af brain
Veit ekki hvort þetta er Covid að kenna en...

Mér finnst skítkast á nýliða frá eldri meðlimum þessu borði til skammar ! Og þetta er ekki eina dæmið.

Þarna er nýr meðlimur að biðja um álit/hjálp og fær allskonar skítasvör, í stað þess að gefa honum ráð.

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 09:19
af worghal
brain skrifaði:Veit ekki hvort þetta er Covid að kenna en...

Mér finnst skítkast á nýliða frá eldri meðlimum þessu borði til skammar ! Og þetta er ekki eina dæmið.

Þarna er nýr meðlimur að biðja um álit/hjálp og fær allskonar skítasvör, í stað þess að gefa honum ráð.

málið er að þetta lookar bara of mikið eins og eitthvað troll.
7þ kr cpu, 70þ kr kassi...

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 09:26
af Klemmi
brain skrifaði:Veit ekki hvort þetta er Covid að kenna en...

Mér finnst skítkast á nýliða frá eldri meðlimum þessu borði til skammar ! Og þetta er ekki eina dæmið.

Þarna er nýr meðlimur að biðja um álit/hjálp og fær allskonar skítasvör, í stað þess að gefa honum ráð.

Haraldur25 skrifaði:Óþarfi að vera leiðinlegir við nýliðann. Getið ekki haldið að allir hafi þessa tölvukunnáttu eins og veterans hér.

Þið megið skammst eins og þið viljið, en ég á samt erfitt með að trúa því að þetta sé ekki grín.

33þús krónur í örgjörvakælingu.
Dýrasti kassinn á landinu, 70þús
Dýrasti aflgjafinn á landinu, 80þús.
Rándýrt minni sem er ekki til í verslun, 33þús.

Ódýrasti örgjörvinn á landinu, hræódýrt móðurborð við það, ódýrasti SSD diskurinn á landinu.

Notandi með tvo pósta, hinn pósturinn er samhengislaust "omg osek man".

Sorry ef mér finnst þetta bara vera það absúrd samsetning að þetta hljóti að vera lélegt grín.
Ekki það að þetta er frekar successful troll, fyrst að menn eru farnir að verja greyið nýliðann.

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 09:30
af gnarr
worghal skrifaði:
brain skrifaði:Veit ekki hvort þetta er Covid að kenna en...

Mér finnst skítkast á nýliða frá eldri meðlimum þessu borði til skammar ! Og þetta er ekki eina dæmið.

Þarna er nýr meðlimur að biðja um álit/hjálp og fær allskonar skítasvör, í stað þess að gefa honum ráð.

málið er að þetta lookar bara of mikið eins og eitthvað troll.
7þ kr cpu, 70þ kr kassi...

Fullt af fólki heldur að "kassinn" sé tölvan, og ég er ekki einusinni að grínast. Fékk þessa spurningu reglulega þegar ég vann í Tölvutek; "hvað er besti kassinn í tölvuleiki". Svo að þetta þarf alsekki að vera neitt troll.

Almenningur veit heldur ekkert hvað skjákort er (er það eitthvað til þess að setja í skjáinn? en ég á skjá fyrir!) eða hvað örgjörvi gerir.

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 09:46
af worghal
gnarr skrifaði:

heyrðu, þetta er ekki svo vitlaust hjá þér, það er hellingur af fólki sem veit ekki betur og okkur ber að vera betri en þetta og gefa okkar ráð :happy
af því tilefni þá setti ég saman basic lista sem ætti að uppfylla allar kröfur og meira til
https://builder.vaktin.is/build/9EC9A
það er hægt að fara ódýrara hér og þar og reynar er margra mánaða bið eftir skjákorti, en þetta er samt ódýrara en það sem OP setti inn.

ég er ekki expert þegar kemur að því að velja íhluti og aðrir mega benda á betri kosti :D

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 10:09
af Viktor
Ferð bara í þessa og sleppir öllu veseni: https://www.computer.is/product/tolva-l ... gb-rtx3070

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 14:10
af Haraldur25
Klemmi skrifaði:
brain skrifaði:Veit ekki hvort þetta er Covid að kenna en...

Mér finnst skítkast á nýliða frá eldri meðlimum þessu borði til skammar ! Og þetta er ekki eina dæmið.

Þarna er nýr meðlimur að biðja um álit/hjálp og fær allskonar skítasvör, í stað þess að gefa honum ráð.

Haraldur25 skrifaði:Óþarfi að vera leiðinlegir við nýliðann. Getið ekki haldið að allir hafi þessa tölvukunnáttu eins og veterans hér.

Þið megið skammst eins og þið viljið, en ég á samt erfitt með að trúa því að þetta sé ekki grín.

33þús krónur í örgjörvakælingu.
Dýrasti kassinn á landinu, 70þús
Dýrasti aflgjafinn á landinu, 80þús.
Rándýrt minni sem er ekki til í verslun, 33þús.

Ódýrasti örgjörvinn á landinu, hræódýrt móðurborð við það, ódýrasti SSD diskurinn á landinu.

Notandi með tvo pósta, hinn pósturinn er samhengislaust "omg osek man".

Sorry ef mér finnst þetta bara vera það absúrd samsetning að þetta hljóti að vera lélegt grín.
Ekki það að þetta er frekar successful troll, fyrst að menn eru farnir að verja greyið nýliðann.

Ert þú ekki stjórnandi hér? Átt þú ekki að vera þá hlutlaus þangað til annað kemur í ljós? Ertu að ýta undir að menn séu að skammast í öðru fólki án þess af hafa einhverjar frekari upplýsingar en við hin sem eru að '' verja''.

Ef þetta er troll svo á endanum þá skal ég biðja þig afsökunar en á meðan svo er ekki þá finnst mér ekkert að því að verja þangað til annað kemur í ljós.

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 14:14
af gnarr
Ef þig vantar tölvu sem verður nánast notuð eingöngu í CSGO, þá er þessi mjög góð fyrir ekki roslega mikinn pening:

https://builder.vaktin.is/build/A7B66

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 15:01
af Klemmi
Haraldur25 skrifaði:Ert þú ekki stjórnandi hér? Átt þú ekki að vera þá hlutlaus þangað til annað kemur í ljós? Ertu að ýta undir að menn séu að skammast í öðru fólki án þess af hafa einhverjar frekari upplýsingar en við hin sem eru að '' verja''.

Ef þetta er troll svo á endanum þá skal ég biðja þig afsökunar en á meðan svo er ekki þá finnst mér ekkert að því að verja þangað til annað kemur í ljós.

Til að koma því frá, þá tel ég það ekki koma því við hvort ég sé stjórnandi eða ekki.
Jú, ég er stjórnandi, en fyrst og fremst er ég áhugamaður um tölvur og raftæki, tek þátt í umræðunni hér, er einn af virkustu meðlimum spjallborðsins og tjái mína skoðun ef mér sýnist svo.
Ef það er litið svo á að það sé ekki við hæfi þar sem ég sé stjórnandi, þá hef ég engan áhuga á að vera stjórnandi, enda komnar kvaðir án nokkura kosta á móti.

Að sama skapi tel ég ekki að neinn hafi verið að skammast í OP, heldur einfaldlega að menn hafi talið þetta vera troll, og að viðbrögðin séu í samræmi við það...

Ef beiðnin eftir aðstoð hjá PcErPOG var einlæg, og hann er sár yfir því hvernig komið hefur fram við hann, þá þykir mér það leiðinlegt, en ég stend þó enn í þeirri trú að þetta sé troll, út frá fyrrnefndum rökum um ódýrustu og dýrustu íhluti landsins í hverjum flokki fyrir sig.

Ég veit að kurteisi kostar ekkert, en ég get ekki flokkað commentin hérna sem eitthvað skítkast eða rosalegan dónaskap. Ef þetta er versta mótlætið sem OP þarf að upplifa, þá er hann bara í ágætis málum.

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 15:36
af GuðjónR
gnarr skrifaði:Ef þig vantar tölvu sem verður nánast notuð eingöngu í CSGO, þá er þessi mjög góð fyrir ekki roslega mikinn pening:

https://builder.vaktin.is/build/A7B66

gnarr farinn að segja saman Intel tölvu? :wtf
Á dauða mínum átti ég frekar von... :dead

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 16:05
af gnarr
GuðjónR skrifaði:
gnarr skrifaði:Ef þig vantar tölvu sem verður nánast notuð eingöngu í CSGO, þá er þessi mjög góð fyrir ekki roslega mikinn pening:

https://builder.vaktin.is/build/A7B66

gnarr farinn að segja saman Intel tölvu? :wtf
Á dauða mínum átti ég frekar von... :dead

haha :D Það er ekki séns að fá AMD vél með sama afl fyrir þennann pening.

Ég elska AMD, en ég þoli ekki fanboy'isma. Intel sigrar hands down í þessum verðflokki :happy =D>

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 16:12
af Toy-joda

Ég held nú að gamli 1600x er betri en þessi i3.

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 16:22
af gnarr
gnarr skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
gnarr skrifaði:Ef þig vantar tölvu sem verður nánast notuð eingöngu í CSGO, þá er þessi mjög góð fyrir ekki roslega mikinn pening:

https://builder.vaktin.is/build/A7B66

gnarr farinn að segja saman Intel tölvu? :wtf
Á dauða mínum átti ég frekar von... :dead

haha :D Það er ekki séns að fá AMD vél með sama afl fyrir þennann pening.

Ég elska AMD, en ég þoli ekki fanboy'isma. Intel sigrar hands down í þessum verðflokki :happy =D>

Ég tek þetta til baka. Ég var búinn að gleyma 3000 seríunni frá AMD og 3300x er einfaldlega betri og ódýrari.

Hérna er tölvan sem ég myndi mæla með fyrir CSGO í dag:

https://builder.vaktin.is/build/E65F7

Eða nákvæmlega sama vél en með Ryzen 5 3400G ef þú getur ekki reddað skjákorti. Hann er 2000kr dýrari og pinku lítið hægari, en á móti þá færðu nothæft skjákort innbyggt í örgjörvan.

Toy-joda skrifaði:Ég held nú að gamli 1600x er betri en þessi i3.

Nei, hann á ekki séns. i3 örgjörvinn næst í kringum 545fps average og 292fps í 1% low á meðan 1600x er 432fps average og 227fps í 1% low.

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 16:42

Intel er betri í single core leikjum eins og CSGO :)

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 16:56
af Haraldur25
Klemmi skrifaði:
Haraldur25 skrifaði:Ert þú ekki stjórnandi hér? Átt þú ekki að vera þá hlutlaus þangað til annað kemur í ljós? Ertu að ýta undir að menn séu að skammast í öðru fólki án þess af hafa einhverjar frekari upplýsingar en við hin sem eru að '' verja''.

Ef þetta er troll svo á endanum þá skal ég biðja þig afsökunar en á meðan svo er ekki þá finnst mér ekkert að því að verja þangað til annað kemur í ljós.

Til að koma því frá, þá tel ég það ekki koma því við hvort ég sé stjórnandi eða ekki.
Jú, ég er stjórnandi, en fyrst og fremst er ég áhugamaður um tölvur og raftæki, tek þátt í umræðunni hér, er einn af virkustu meðlimum spjallborðsins og tjái mína skoðun ef mér sýnist svo.
Ef það er litið svo á að það sé ekki við hæfi þar sem ég sé stjórnandi, þá hef ég engan áhuga á að vera stjórnandi, enda komnar kvaðir án nokkura kosta á móti.

Að sama skapi tel ég ekki að neinn hafi verið að skammast í OP, heldur einfaldlega að menn hafi talið þetta vera troll, og að viðbrögðin séu í samræmi við það...

Ef beiðnin eftir aðstoð hjá PcErPOG var einlæg, og hann er sár yfir því hvernig komið hefur fram við hann, þá þykir mér það leiðinlegt, en ég stend þó enn í þeirri trú að þetta sé troll, út frá fyrrnefndum rökum um ódýrustu og dýrustu íhluti landsins í hverjum flokki fyrir sig.

Ég veit að kurteisi kostar ekkert, en ég get ekki flokkað commentin hérna sem eitthvað skítkast eða rosalegan dónaskap. Ef þetta er versta mótlætið sem OP þarf að upplifa, þá er hann bara í ágætis málum.

Ég persónulega hef ekkert á móti neinum stjórnanda hérna.
Finnst þið allir vera að vinna prýðisvinnu hérna á vaktinni.

Finnst bara ofboðslega leiðinlegt að maðurinn sé dæmdur sem tröll strax. Kannski er hann það en ég veit það ekki.

Kemur þinni stöðu ekki við sem stjórnanda, þar er ég ósammála.
Fólk er með hjarðarhegðun í öllu. Þá ef stjórnandi eða stjóri segji eitthvað þá eru margir sammála honum eða henni bara út af stöðunni.

En ég svo sannarlega skil þig með val á íhlutum, er skringilegt og set allveg spurningarmerki við það.

Re: þarf ykkar skoðun

Sent: Þri 25. Maí 2021 21:32
af gnarr
ZiRiuS skrifaði:Intel er betri í single core leikjum eins og CSGO :)

Nei :)