Ég gerði þetta fyrir nokkrum árum. Náði tveimur cat snúrum í flest rör en þremur í sum sem voru bein.
Ef þú ert með lagnateikningar þá hjálpar það - við vorum stundum í smá brasi að finna út hvernig þetta var lagt milli hæða. Enduðum á að þurfa að rífa frá hluta af eldhúsinnréttingunni þar sem eitt rörið kom út úr veggnum.
Aðal munurinn er samt að coax er lagður í lykkju meðan cat er stjarna. Ég þurfti t.d. að setja swiss á efri hæðinnin þar sem að það var bara eitt rör milli hæða og það hefði ekki náð að þjónusta alla tenglana á hæðinni.
Svo hætti ég að nota þetta á endanum
![Wink ;)](./images/smilies/icon_wink.gif)
Fékk mér bara auka þráðlausan punkt uppi og er núna með fínt signal um allt hús. Þráðlausu netin eru bara orðin svo góð. Eina tækið sem er tengt við cat snúru hjá mér er afruglarinn og netbúnaðurinn. Hef ekki einusinni tengt ps5 vélina við vír eftir að ég færði hana milli herbergja.