Síða 1 af 1

Windows að lagga upp úr þurru

Sent: Þri 10. Feb 2026 23:54
af Fennimar002
Sælir félagar,
hafa aðrir verið að lenda í því að Windows laggar alveg rosalega upp úr þurru. hélt þetta væri eitthvað lélegt update en prufaði að eyða nýjasta updatei OG fresh install'a win10.

Hef tekið eftir þessu þegar ég opna chrome, en heldur samt áfram eftir að ég loka vafrann.

Einhver sem kannast við þetta? :-"

Re: Windows að lagga upp úr þurru

Sent: Mið 11. Feb 2026 00:34
af gunni91
Aldrei heyrt um svona,

Ertu búinn að skoða task manager þegar þetta gerist?

Hver er cpu staða load %?
Er clock speed að lækka a cpu eða stable þegar þetta gerist ?
Hvað ertu með mikið í ram usage þegar þetta gerist?
Disk load í task manager þegar þetta gerist?

Re: Windows að lagga upp úr þurru

Sent: Mið 11. Feb 2026 07:51
af rostungurinn77
Svarið við spurningunni þinni er nei.

Windows 10 er ekki að haga sér svona alla jafna og ekki einu sinni á tölvum sem eru mun lakari en það sem er í undirskrift.

Sem þýðir að vélbúnaðurinn gæti verið að stríða þér.

Re: Windows að lagga upp úr þurru

Sent: Mið 11. Feb 2026 08:15
af Fennimar002
Þegar ég er með Task managerinn opinn, þá tek ég ekki eftir neinu spike'i í CPU, RAM, GPU, SSD né HDD.
EN ég tek eftir því að ethernet spike'i.

Athugaði með AI seint í gær og það sagði mér að slökkva á einhverjum stillingum í Chrome. Hardware acceleration og eitt í viðbót. Á eftir að nota tölvuna eitthvað "almennilega".
Það er kki langt síðan ég setti upp Edgerouter X í stað fyrir ISP router. getur verið einhver stillingaratriði í honum tengt offloading eða eh?

(Er búinn að install'a nýjasta LAN port driver fyrir MB)

Re: Windows að lagga upp úr þurru

Sent: Mið 11. Feb 2026 08:16
af brain
Ertu nokkuð að spila gamla leiki ?
Frændi minn lendir í þegar hann spilar City og Heroes, and windows fer að lagga, og heldur áfram þótt hann slökkvi á leiknum.
Hann fann út að ef hann opnar browser og setur í full window og svo minimisar, þá virðist þetta hætta.

Hasnn setti windows upp á nýtt inn, en breyttist ekki.
Finnst þetta skrýtið.

Re: Windows að lagga upp úr þurru

Sent: Mið 11. Feb 2026 08:19
af Fennimar002
Neibb, hef ekkert verið að spila PC leiki í smá ´tima.

Varðandi Chrome... þá slökkti ég á Experimental QUIC protocol.

Re: Windows að lagga upp úr þurru

Sent: Mið 11. Feb 2026 09:00
af ejm
Ég lenti í þessu á fartölvu um daginn, þá var það thermal CPU throttling sem lagaðist þegar ég skipti um viftu.

Re: Windows að lagga upp úr þurru

Sent: Mið 11. Feb 2026 15:04
af worghal
búinn að slökkva á að chrome keyri í bakgrunni þótt chrome sé lokað?

Re: Windows að lagga upp úr þurru

Sent: Mið 11. Feb 2026 15:54
af gunni91
Fennimar002 skrifaði:Þegar ég er með Task managerinn opinn, þá tek ég ekki eftir neinu spike'i í CPU, RAM, GPU, SSD né HDD.
EN ég tek eftir því að ethernet spike'i.

Athugaði með AI seint í gær og það sagði mér að slökkva á einhverjum stillingum í Chrome. Hardware acceleration og eitt í viðbót. Á eftir að nota tölvuna eitthvað "almennilega".
Það er kki langt síðan ég setti upp Edgerouter X í stað fyrir ISP router. getur verið einhver stillingaratriði í honum tengt offloading eða eh?

(Er búinn að install'a nýjasta LAN port driver fyrir MB)


Ekki skoða endilega bara % fyrir cpu, skoða real time ghz a cpu. Throttle getur átt sér stað og þá dettur cpu í limp mode þó hann recovery síðan.

Re: Windows að lagga upp úr þurru

Sent: Mið 11. Feb 2026 20:20
af Fennimar002
jebb, búinn að slökkva á crome í bakgrunni.

Þarf að skoða hvort thermal throttle eigi sér stað. en ég hef ekkert verið að fikta í clock speed eða þannig. Er bara með clocked á 4.2ghz

Annars er sturr stutt video þar sem það sést í laggið í örfára sek: https://www.youtube.com/watch?v=xZPvn8aPUuE
Sést best í lok videos :)