Ný ADSL áskrift... Síminn, Hive, BTnet eða OgVodafone


Höfundur
arnibjorn
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Fim 19. Maí 2005 12:42
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Ný ADSL áskrift... Síminn, Hive, BTnet eða OgVodafone

Pósturaf arnibjorn » Þri 25. Apr 2006 14:25

Sælir ég er nýfluttur og er að fara sækja um ADSL tengingu í nýju íbúðina.

Ég er með net fyrir framan mig alla vinnuvikuna og get sótt flest allar þær upplýsingar sem ég þarf þar. Eina almennilega notkun á tengingunni yrði því dl. c.a 10GB á mán.

Ég tími ekki að taka e-h dýra tengingu heldur myndi ég sætta mig við 2MB + ótakmarkað.
Var t.d. að hugsa um BTnet... Ég heyrði slæmar sögur af þeim þegar þeir voru nýbyrjaðir á markaðnum og var að velta fyrir mér hvernig þjónustan er hjá þeim núna. Fínt ef e-h veit.
Ég var með OG1 6MB tengingu hjá OgVoda.. og þar áður 2MB tengingu hjá símanum. (Hjá símanum náði ég mun hraðari tengingu en OG1 nokkurntíma)
Svo er ég búinn að vera að lesa spjallið hér um Hive og eru þar mis ánægðir kúnnar...

Frábært ef þið getið komið með góðar uppástungur...




Rusty
Tölvutryllir
Póstar: 651
Skráði sig: Lau 31. Des 2005 16:42
Reputation: 0
Staðsetning: Eyjar
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Rusty » Þri 25. Apr 2006 15:25

Síminn, hundleiðinleg þjónusta
OgWtf, lagg
BtNet, huh? eru þeir enn lifandi? Ekkert heyrt um þá lengi
Hive, P2P cappað.




Yank
</Snillingur>
Póstar: 1058
Skráði sig: Mið 29. Des 2004 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: www.tech.is
Staða: Ótengdur

Pósturaf Yank » Þri 25. Apr 2006 16:07

Síminn.

Byrjaði þar fyrir ég veit ekki hvað mörgum árum og er þar enn. Það er ekki vegna þess að ekkert annað er í boði. Heldur einfaldlega besta tengingin og besta þjónusta.




zverg
Fiktari
Póstar: 64
Skráði sig: Þri 13. Des 2005 12:02
Reputation: 0
Staðsetning: blönduós
Staða: Ótengdur

Pósturaf zverg » Þri 25. Apr 2006 16:30

síminn svo góð tilboð láttu þá bara bjóða i net uppsetningu


afsakið stafsettningavillur


Rusty
Tölvutryllir
Póstar: 651
Skráði sig: Lau 31. Des 2005 16:42
Reputation: 0
Staðsetning: Eyjar
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Rusty » Þri 25. Apr 2006 17:12

Síminn? Góð þjónusta? Bestu tilboðin? Viss um að þið séuð ekki að fara mannaviltir..?



Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1270
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Reputation: 13
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Pósturaf ponzer » Þri 25. Apr 2006 17:48

Er búinn að vera hátt í tvo ár hjá Símanum með 1MB tengingu og hef ekkert slæmt um þá að segja fyrir utan þetta blessaða þjónustuver.


Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.


zverg
Fiktari
Póstar: 64
Skráði sig: Þri 13. Des 2005 12:02
Reputation: 0
Staðsetning: blönduós
Staða: Ótengdur

Pósturaf zverg » Þri 25. Apr 2006 18:06

hja simanum er mjög litið að vesenum


afsakið stafsettningavillur

Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3071
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 42
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf beatmaster » Þri 25. Apr 2006 18:26

Bara verið í vandræðum með símann :evil: En er með Hive max núna og er rosalega sáttur :)


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.


Rusty
Tölvutryllir
Póstar: 651
Skráði sig: Lau 31. Des 2005 16:42
Reputation: 0
Staðsetning: Eyjar
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Rusty » Þri 25. Apr 2006 19:49

beatmaster ekkert p2p lagg?



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6432
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 293
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Þri 25. Apr 2006 20:12

ponzer skrifaði:Er búinn að vera hátt í tvo ár hjá Símanum með 1MB tengingu og hef ekkert slæmt um þá að segja fyrir utan þetta blessaða þjónustuver.


Eina sem þú hefur að kvarta undan hjá þjónustufyrirtæki er þjónustan... Er það ekki bara frekar slæmt?

Ég hef ekki að kvarta yfir neinu hjá Vodafone. Svara í símann um leið og maður hringir í þá, maður lendir næstum undantekninga laust á einhverjum sem veit eitthvað og getur leist vandamálið fyrir mann á notime, og teningin hjá þeim er mjög stabíl og hröð.

Ég hef verið að ná allt að 750KBps á erlendum torrentum, og sama hraða frá erlendum síðum.


"Give what you can, take what you need."

Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1270
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Reputation: 13
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Pósturaf ponzer » Þri 25. Apr 2006 20:33

gnarr skrifaði:
ponzer skrifaði:Er búinn að vera hátt í tvo ár hjá Símanum með 1MB tengingu og hef ekkert slæmt um þá að segja fyrir utan þetta blessaða þjónustuver.


Eina sem þú hefur að kvarta undan hjá þjónustufyrirtæki er þjónustan... Er það ekki bara frekar slæmt?

Ég hef ekki að kvarta yfir neinu hjá Vodafone. Svara í símann um leið og maður hringir í þá, maður lendir næstum undantekninga laust á einhverjum sem veit eitthvað og getur leist vandamálið fyrir mann á notime, og teningin hjá þeim er mjög stabíl og hröð.

Ég hef verið að ná allt að 750KBps á erlendum torrentum, og sama hraða frá erlendum síðum.


Ég hringi ekki í þjónustuverið ef tengingin er í lagi, hef þurft að hringja þangað nokkrum (einu eða tvisvar) sinnum og það var þegar eitthvað mikið var að hjá þeim :P

Það sem ég er að meina er, ef tengingin er í lagi að þá þarftu ekki á þjónustuveri að halda.


Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.


Skoop
has spoken...
Póstar: 179
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 16:13
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Skoop » Þri 25. Apr 2006 21:41

ég er bara nokkuð sáttur við mína vodafone tengingu í augnablikinu


Quad Q6600, Gigabyte X38-DQ6 ,GeForce 8800 GTX , 4 GB ram , 2x150 GB raptor (raided), dell 2407WFP , antec p182, thermaltake 700w psu


Rusty
Tölvutryllir
Póstar: 651
Skráði sig: Lau 31. Des 2005 16:42
Reputation: 0
Staðsetning: Eyjar
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Rusty » Þri 25. Apr 2006 22:24

Eitt sinn nennt að hafa samband við þjónustuver hjá Símanum. Það var eftir klukkustund á hold. Annars ef maður eru þolinmóður, þá virkar oftast 8007000 @ siminn.is




@Arinn@
Kerfisstjóri
Póstar: 1280
Skráði sig: Þri 03. Maí 2005 18:39
Reputation: 1
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf @Arinn@ » Þri 25. Apr 2006 22:31

Ég er með Hive max 12mb og ég get ekki verið sáttari. Núna þarf maður ekki að bíða í 20 mínútur í þjónustusímanum og hraðari og betri tenging og hef aldrei lennt í neinu slow rugli.




Andri Fannar
Tölvutryllir
Póstar: 687
Skráði sig: Fim 08. Jan 2004 20:53
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Andri Fannar » Þri 25. Apr 2006 22:50

2MB Vodafone, gæti ekki verið sáttari. :8)


« andrifannar»


valur
Fiktari
Póstar: 88
Skráði sig: Fös 25. Okt 2002 00:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf valur » Mið 26. Apr 2006 00:19

Er með tengingu frá btnet, búið að vera í næstum ár.
Hraðinn er fínn, torrent og browse, veit ekki með netleiki.
Router bilaði um daginn og honum var skipt út án vesens.

Mæli alveg með þessu.



Skjámynd

natti
Tölvutryllir
Póstar: 659
Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
Reputation: 61
Staðsetning: 107
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf natti » Mið 26. Apr 2006 13:11

gnarr skrifaði:
ponzer skrifaði:Er búinn að vera hátt í tvo ár hjá Símanum með 1MB tengingu og hef ekkert slæmt um þá að segja fyrir utan þetta blessaða þjónustuver.


Eina sem þú hefur að kvarta undan hjá þjónustufyrirtæki er þjónustan... Er það ekki bara frekar slæmt?

Ég hef ekki að kvarta yfir neinu hjá Vodafone. Svara í símann um leið og maður hringir í þá, maður lendir næstum undantekninga laust á einhverjum sem veit eitthvað og getur leist vandamálið fyrir mann á notime, og teningin hjá þeim er mjög stabíl og hröð.

Ég hef verið að ná allt að 750KBps á erlendum torrentum, og sama hraða frá erlendum síðum.


Alveg magnað hvað sumir hlutir verða að trúarbrögðum hjá sumu fólki...


Mkay.


axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1783
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 75
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Pósturaf axyne » Mið 26. Apr 2006 14:21

Ég er búinn að vera ánægður viðskiptavinur ogvodafone í 2 ár.

með 6 Mbit. og alltaf fínn hraði.




@Arinn@
Kerfisstjóri
Póstar: 1280
Skráði sig: Þri 03. Maí 2005 18:39
Reputation: 1
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf @Arinn@ » Mið 26. Apr 2006 14:22

Þetta er allt voðalega svipað, þetta fer eftir því við hvern þú hefur alltaf verslað og hvar þér finnst þægilegast að vera.




gutti
Bara að hanga
Póstar: 1590
Skráði sig: Lau 19. Apr 2003 22:56
Reputation: 44
Staðsetning: REYKJAVIK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gutti » Mið 26. Apr 2006 15:47

'Eg er hjá siman það virkar fínt fyrir utan dl á bitcome er lala er að frá 13 til 30 kb kb dl á 6 mb :twisted: er með wireless :?:



Skjámynd

djjason
Ofur-Nörd
Póstar: 258
Skráði sig: Fim 06. Maí 2004 23:39
Reputation: 0
Staðsetning: Boston, MA
Staða: Ótengdur

Pósturaf djjason » Mið 26. Apr 2006 15:56

gnarr skrifaði:
ponzer skrifaði:Er búinn að vera hátt í tvo ár hjá Símanum með 1MB tengingu og hef ekkert slæmt um þá að segja fyrir utan þetta blessaða þjónustuver.


Eina sem þú hefur að kvarta undan hjá þjónustufyrirtæki er þjónustan... Er það ekki bara frekar slæmt?

Ég hef ekki að kvarta yfir neinu hjá Vodafone. Svara í símann um leið og maður hringir í þá, maður lendir næstum undantekninga laust á einhverjum sem veit eitthvað og getur leist vandamálið fyrir mann á notime, og teningin hjá þeim er mjög stabíl og hröð.

Ég hef verið að ná allt að 750KBps á erlendum torrentum, og sama hraða frá erlendum síðum.


Sammála, faðir minn hefur verið hjá OgVodafone (Íslandssíma fyrir tíma OgV) bæðið með heimilið og vinnustaðinn og ég og hann höfum ekkert nema gott um þá að segja. Tek undir allt sem gnarr segir.
Síðast breytt af djjason á Mið 26. Apr 2006 15:58, breytt samtals 1 sinni.


"Only wimps use tape backup: _real_ men just upload their important stuff on ftp, and let the rest of the world mirror it"
- Linus Thorvalds


KristinnHrafn
Græningi
Póstar: 36
Skráði sig: Sun 09. Okt 2005 10:40
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf KristinnHrafn » Mið 26. Apr 2006 15:58

Er með 6 mb hjá símanum. Get ekki sagt að ég mæli með þeim. Tengingin var biluð í einhverjar 3 vikur eftir að við keyptum hana og svo er alltof löng bið þegar maður hringir í þjónustuverið þeirra.




Höfundur
arnibjorn
Nýliði
Póstar: 10
Skráði sig: Fim 19. Maí 2005 12:42
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Hér er smá verðsamanburður.

Pósturaf arnibjorn » Mið 26. Apr 2006 16:22

Þakka góðar viðtökur..
Hér er smá verðsamanburður.

Net.......lína.........mánaðargj............tenging
-----------------------------------------------------------
BTNET+OGV.........kr.5230.........4MB + ótakmarkað
BTNET+síminn......kr.5285.........4MB + ótakmarkað
OG1.....................kr.7000.........4MB + ótakmarkað
Hive+OGV............kr.7330.........12MB + ótakmarkað
Hive+síminn.........kr.7385.........12MB + ótakmarkað
Síminn.................kr.7385.........4MB + ótakmarkað

Raðað eftir verðum og eins og sést er BTNET með besta boðið á ótakmörkðu niðurhali..
Spurningin er hvenær byrjar það að borga sig að spara?




Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Mið 26. Apr 2006 17:51

gutti skrifaði:'Eg er hjá siman það virkar fínt fyrir utan dl á bitcome er lala er að frá 13 til 30 kb kb dl á 6 mb :twisted: er með wireless :?:


Geturu ekki skrifað læsilega? Það er búið að segja þér að vanda stafsetningu og málfræði í öllum bréfum sem þú hefur skrifað.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3819
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 143
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Hér er smá verðsamanburður.

Pósturaf Daz » Fim 27. Apr 2006 12:52

arnibjorn skrifaði:Þakka góðar viðtökur..
Hér er smá verðsamanburður.

Net.......lína.........mánaðargj............tenging
-----------------------------------------------------------
BTNET+OGV.........kr.5230.........4MB + ótakmarkað
BTNET+síminn......kr.5285.........4MB + ótakmarkað
OG1.....................kr.7000.........4MB + ótakmarkað
Hive+OGV............kr.7330.........12MB + ótakmarkað
Hive+síminn.........kr.7385.........12MB + ótakmarkað
Síminn.................kr.7385.........4MB + ótakmarkað

Raðað eftir verðum og eins og sést er BTNET með besta boðið á ótakmörkðu niðurhali..
Spurningin er hvenær byrjar það að borga sig að spara?


Þegar þú segir + lína ertu þá að bæta við kostnaðinum við að hafa tengda símalínu? Svo vil ég benda á að Hive bjóða líka pakka með 8mbit hraða og 4gb niðurhal á 3990, ef maður er ekkert að nota bittorrent þá er 4gb meira en nóg.