Síða 1 af 1
					
				Router og HDD
				Sent: Mið 13. Jún 2012 11:24
				af Bjösssi
				Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort það sé ekki möguleiki að tengja flakkara í gegnum usb við vodafone router sem ég er með og nýta hann þannig sem miðlægann gagnaserver?
Er með ljósleiðara og hvíta klassíska Vodafone router með usb tengi.
Hefur einhver reynt eitthvað þessu líkt?
Kv. Bjössi
			 
			
					
				Re: Router og HDD
				Sent: Mið 13. Jún 2012 11:34
				af upg8
				Hef prófað það með FAT32 disk án vandræða, með stærri NTFS disk gekk það ekki hjá mér en kannski var hann bara of stór. Flakkarinn ætti að koma upp undir "VOX" í Network hjá þér.
			 
			
					
				Re: Router og HDD
				Sent: Mið 13. Jún 2012 14:51
				af Daz
				Hvítir routerinn í ljósneti Símans  styður bara FAT32 skráarkerfi, kannski eins með Vodafone græjurnar?
			 
			
					
				Re: Router og HDD
				Sent: Mið 13. Jún 2012 15:53
				af Tiger
				Apple Extreme og þú getur haft hvaða skrárkerfi sem er. Ég nota hann með USB disk tengdan við, prentara og svo sér hann um að deila þráðlausa því hann er mjög sterkur á því sviði.