Síða 1 af 1
					
				Edimax router með stæla við Xbox 360
				Sent: Mið 01. Ágú 2012 16:37
				af capteinninn
				Er með einhverja stæla frá Edimax router frá Hringdu.
Xbox 360 virðist ekki ná að tengjast við routerinn hvorki með snúru eða þráðlaust. Talaði við Hringdu á vefspjallinu og þeir könnuðust ekki við þetta. Mér var samt sagt að færa klukkuna 2 eða 3 ár aftur í tímann og uppfæra firmware-ið því ég get ekki loggað mig inn í routerinn.
Hefur einhver annar lent í þessu? Er ég að taka einhverja sénsa með því að uppfæra firmware að ég geti látið hann bilað?
			 
			
					
				Re: Edimax router með stæla við Xbox 360
				Sent: Mið 01. Ágú 2012 17:19
				af depill
				Nei þú ert ekki að taka séns, svo er hann líka í ábyrgð.
Þú ert greinilega með 7284WnA routerinn frá Edimax. Hér er firmwareið 
http://www.edimax.com/en/support_detail ... 4&pl1_id=1Hér er útskýringin fyrir vandamálinu 
http://www.edimax.com/images/Image/Firm ... 0fails.pdfMyndi setja routerinn í 1.12 og vera viss um að Edimaxinn sé örugglega með UPnP enabled.
 
			
					
				Re: Edimax router með stæla við Xbox 360
				Sent: Mið 01. Ágú 2012 19:56
				af capteinninn
				Snilld, takk fyrir þetta
Man einhver hvað default router pass er á þessum edimax routerum?
Er það ekki 1234 eða eitthvað ?
 
			
					
				Re: Edimax router með stæla við Xbox 360
				Sent: Mið 01. Ágú 2012 20:04
				af depill
				hannesstef skrifaði:Man einhver hvað default router pass er á þessum edimax routerum?
Er það ekki 1234 eða eitthvað ?
Jú það er user admin ( velur hann )  og pass 1234. Hann mun samt segja það sé rangt user og pass nema að þú spólir tímanum aftur í tölvunni þinni eins og leiðbeiningarnar segja til um.
 
			
					
				Re: Edimax router með stæla við Xbox 360
				Sent: Mið 01. Ágú 2012 22:45
				af capteinninn
				Búinn að uppfæra
Netið varð miklu hægara, fór úr rúmlega 8-10 mbps yfir í 1.5
Xboxið virkar ekki ennþá. Fæ bara upp að hún fær ekki IP tölu frá router
			 
			
					
				Re: Edimax router með stæla við Xbox 360
				Sent: Sun 05. Ágú 2012 18:41
				af capteinninn
				Veit einhver hvað getur oldið því að netið verði talsvert hægara þegar ég uppfæri firmware-ið á routernum ?
			 
			
					
				Re: Edimax router með stæla við Xbox 360
				Sent: Sun 05. Ágú 2012 18:58
				af depill
				hmm yfir wifi eða kapal. Wifi stillingarnar gætu hafa breyst við firmware upgrade.
Er Xbox vélin ekki að fá ip tölu er það sem sagt vandamálið ? Ekki NAT Restricted o.s.frv ? Er hún tengd þráðlaust eða með kapli ?
			 
			
					
				Re: Edimax router með stæla við Xbox 360
				Sent: Sun 05. Ágú 2012 19:15
				af capteinninn
				Er með net yfir rafmagn á tölvunni þannig að tæknilega séð er þetta kapall.
Er með xboxið tengt beint með snúru þar sem routerinn er hliðiná tölvunni.
Samkvæmt local network glugganum í routernum fær xboxið ip tölu en ég held að ég þurfi að opna port fyrir xboxið en það gengur eitthvað illa
			 
			
					
				Re: Edimax router með stæla við Xbox 360
				Sent: Þri 07. Ágú 2012 20:11
				af capteinninn
				Veit einhver góða leið til að opna port fyrir xbox með þessum router? Finn ekki leiðbeiningar á portforward fyrir þennan router