siminn.is


Höfundur
kuub
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Fim 19. Ágú 2004 16:29
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

siminn.is

Pósturaf kuub » Sun 14. Sep 2014 05:16

Sælir, er að spá í hvort aðrir séu að lenda í sama rugli og ég með símann (er ekki ennþá búinn að skipta I know I know) en þetta er bara bullshit. Mánuðirinn byrjar normal svo uppúr 9.sept byrjar allt að hækka þótt að ég hafi ekki breytt neinu innanlands eða utanlands. En þar sem sýnir 45.72GB frá 00-01 náði ég í MAX 6GB.. Svo ég spyr hvað er í gangi?!
Viðhengi
zz.jpg
zz.jpg (107.12 KiB) Skoðað 3602 sinnum




Kindineinar
Fiktari
Póstar: 54
Skráði sig: Mán 06. Maí 2013 20:30
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf Kindineinar » Sun 14. Sep 2014 06:47

Vá eithvað í gangi hjá mér einnig.
Haha ekki einu sinni með stream í bestu gæðum 24/7 gefur mér svona mikið download, eitthvað í gangi finnst mér.

http://i.imgur.com/NQJgkUm.png



Skjámynd

sakaxxx
FanBoy
Póstar: 752
Skráði sig: Fim 24. Jan 2008 16:22
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf sakaxxx » Sun 14. Sep 2014 17:33

sama hér 66,34gb á einum klukkutíma

Mynd


2600k gtx780 16gb

sjónvarps Intel Core2 Quad q6600 @3.0 Gtx660
  ▲
▲ ▲

Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf intenz » Sun 14. Sep 2014 17:40

Þeir eru farnir að mæla allt innlent líka með erlenda, bæði download og upload. Gæti það ekki bara verið út af því?


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64


wicket
FanBoy
Póstar: 766
Skráði sig: Mán 07. Sep 2009 09:30
Reputation: 57
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf wicket » Sun 14. Sep 2014 17:43

Mæling á öllu byrjar ekki fyrr en 1.okt var mer sagt



Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1796
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf Danni V8 » Sun 14. Sep 2014 17:46

Samkvæmt þessu hjá mér þá náði ég í 45gb á 3 klst millibili frá 7-10 í gærkvöldi. Á ADSL.

Ég var ekkert heima í allan gærdag :lol:

wicket skrifaði:Mæling á öllu byrjar ekki fyrr en 1.okt var mer sagt


"Einungis gögn sótt frá útlöndum eru mæld, en mælingarnar birtast hér 1-3 klst eftir notkun. Breytingar á mælingu taka gildi 1. sept"

Þetta stendur á gagnamagnasíðunni þeirra. Annars vegir segja þeir að þeir mæli bara erlent, hinsvegar að breytingarnar tóku gildi 1. sept sem þýðir að þeir ættu að vera byrjaðir að mæla allt. Spurning hvort er rétt...


Asus ROG Strix Z390-F Gaming | Intel Core i5 9600K @ 4,7GHz | Crosshair H100i | Corsair Vengance 16GB | Asus ROG Strix RTX2060 | Corsair RM 650x

Skjámynd

DaRKSTaR
Geek
Póstar: 800
Skráði sig: Þri 08. Apr 2003 04:01
Reputation: 76
Staðsetning: Akureyri
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf DaRKSTaR » Sun 14. Sep 2014 17:57

Danni V8 skrifaði:Samkvæmt þessu hjá mér þá náði ég í 45gb á 3 klst millibili frá 7-10 í gærkvöldi. Á ADSL.

Ég var ekkert heima í allan gærdag :lol:

wicket skrifaði:Mæling á öllu byrjar ekki fyrr en 1.okt var mer sagt


"Einungis gögn sótt frá útlöndum eru mæld, en mælingarnar birtast hér 1-3 klst eftir notkun. Breytingar á mælingu taka gildi 1. sept"

Þetta stendur á gagnamagnasíðunni þeirra. Annars vegir segja þeir að þeir mæli bara erlent, hinsvegar að breytingarnar tóku gildi 1. sept sem þýðir að þeir ættu að vera byrjaðir að mæla allt. Spurning hvort er rétt...


þeir eru ekki byrjaðir á þessu ennþá eitthvað að enda í rugli hjá þeim þar sem síminn er að verða búinn að missa alla kúnnana og það er farið að renna 2 grímur á þá.

ég færði mig yfir í vodafone og spara mér ca 2 þús kall á mán með sama pakka og síminn var að "gefa" mér.
ég rak þetta ofan í þá hjá símanum og sagði honum að allir sem ég vissi um hjá símanum væru að færa sig annann þá sagði hann að það væri rétt hjá mér.. mjög margir væru búnir að segja upp og þeir væru jafnvel farnir að ýhuga að hætta við þetta.

ég benti honum á að það væri orðið fullseint þegar þeir væri búnir að hrekja alla kúnanna frá sér.


I9 10900k | Gigabyte RTX 3060 TI | Samsung Odyssey G7 32" | Corsair H100x | Gigabyte Z490 Aorus Elite | G.SKILL Trident Z 32GB @ 3600mhz | Lian-Li O11 XL ROG | XPG Pro 512GB | Seasonic Focus 850W Gold | Corsair K95 Platinum | Logitech G502 Hero | Steelseries Arctis Pro Wireless

Skjámynd

svensven
spjallið.is
Póstar: 453
Skráði sig: Þri 16. Mar 2010 16:10
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf svensven » Sun 14. Sep 2014 19:22

Ég efast stórlega um að síminn séu á verða búnir að missa alla sína kúnna eins og Darkstar vill meina - Væri áhugavert að sjá hversu margir sé í raun farnir frá þeim vegna breytingana á mælingum.

DaRKSTaR skrifaði:ég rak þetta ofan í þá hjá símanum og sagði honum að allir sem ég vissi um hjá símanum væru að færa sig annann þá sagði hann að það væri rétt hjá mér.. mjög margir væru búnir að segja upp og þeir væru jafnvel farnir að ýhuga að hætta við þetta.


Ég efast um að gæji í þjónustuverinu fái að vita mikið um þetta mál, þó svo að þetta væri í skoðun :-k

En "on topic" þá er þetta líka svona hjá mér inni á þjónustuvefnum:

11:00 - 11:59 5,7 GB
12:00 - 12:59 6,88 GB
13:00 - 13:59 6,4 GB
14:00 - 14:59 3,01 GB
15:00 - 15:59 2,42 GB
16:00 - 16:59 3,25 GB

og á ADSL í þokkabót, efast um að ég nái því að sækja það sem ég á að hafa sótt á milli 11:00-13:59 þó svo ég væri að nýta alla mína bandbreidd í það.



Skjámynd

Nitruz
spjallið.is
Póstar: 417
Skráði sig: Mið 13. Júl 2011 19:14
Reputation: 32
Staðsetning: milli steins og sleggju
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf Nitruz » Sun 14. Sep 2014 19:57

Pantaði flutning yfir í vodafone og þar var mér sagt að þeir voru að drukkna í fólki sem væri að flýja símann.
Sá sami sagði mér að það væri 20 daga bið í tæknimann vegna "flóttans" þannig að eitthvað eru þeir að tapa.



Skjámynd

þorri69
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 303
Skráði sig: Lau 17. Apr 2010 00:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf þorri69 » Sun 14. Sep 2014 20:40

hvernig gét ég séð sundurliðað gagnamagn ?
sorry, fann þetta :megasmile


Ekkert til að monta mig af.....


Double H
Nýliði
Póstar: 13
Skráði sig: Sun 13. Mar 2011 23:07
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf Double H » Sun 14. Sep 2014 20:55

Held að það sé eitthvað að mælunum hjá þeim.
Viðhengi
Screenshot (34).png
Screenshot (34).png (6.78 KiB) Skoðað 3258 sinnum




kfc
Ofur-Nörd
Póstar: 225
Skráði sig: Fös 18. Mar 2011 23:36
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf kfc » Sun 14. Sep 2014 21:10

Flutti mig frá Símanum til Hringdu og það tók einn dag.......

Mjög sáttur




mainman
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 369
Skráði sig: Sun 08. Jan 2006 15:40
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf mainman » Sun 14. Sep 2014 22:42

Ég er líka svakalega ánægður með hringdu, er búinn að vera með heimasíma og nokkra gsm þar í yfir ár núna og það virkar fínt og mjög stabílt og flott netið hjá þeim.
En ég reyndar flutti gsm símana frá þeim fyrir stuttu vegna þess að maður er fucked ef maður fer aðeins yfir gagnamagnið á netinu í símanum.
Þurfti að borga 13 þús extra bara fyrir net á einum símanum hjá mér og 26 þús á öðrum og rúmlega 3 þús á þeim þriðja fyrir einn mánuð og þá fékk ég nóg af gsm hjá hringdu.
Þá var ég búinn að borga tæplega 60 þús bara fyrir umframnet í gsm á tvemur mánuðum.
Ef ég man rétt þá var 26 þús króna reikningurinn samt ekki nema sirka 5gb niðurhal, frekar dýrt.
Fór til nova með allt gsm ið hjá mér og borga helmingi minna fyrir allt stuffið.



Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf intenz » Sun 14. Sep 2014 23:16

Ég er líka að fara að flytja mig frá Símanum. Ég er búinn að vera í viðskiptum hjá þeim í yfir 10 ár. Ég bara læt ekki bjóða mér svona rugl.

En mér finnst skrítið að þeir hafi ekki getað reiknað dæmið til enda og séð að þetta myndi gerast. Þótt að þetta hafi bara átt að eiga við um 2% viðskiptavina þeirra, þá er það bara reiknað fyrir ákveðinn tíma. Þeir geta ekki séð fyrir um framtíðina og ég efast um að það séu einhverjir spádóms-reikningar í þessari prósentutölu.

Það er enginn hér á landi að mæla innlenda traffík, þannig að sjálfsögðu fer fólk eitthvað annað. Þetta var risastórt feilspor hjá þeim. En aðgerðir hafa afleiðingar, og þeir verða bara að læra af mistökunum.


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64


Throstur
Fiktari
Póstar: 53
Skráði sig: Fim 17. Okt 2002 10:52
Reputation: 3
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf Throstur » Sun 14. Sep 2014 23:27

Já svipað hjá mér, gagnamagnið rýkur upp 9. sept.
Síminn virðist ekki vita sjálfur hvenær eigi að byrja að rukka þetta - á þjónustuvefnum segir 1. september, fjölmiðlafulltrúinn sagði 1. október í útvarpinu um daginn ....

Ég er allavega búinn að fá nóg af þessu bulli og var að enda við að panta mér ljósleiðaratengingu hjá Hringiðunni. :P




Throstur
Fiktari
Póstar: 53
Skráði sig: Fim 17. Okt 2002 10:52
Reputation: 3
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf Throstur » Sun 14. Sep 2014 23:30

http://www.siminn.is/thjonusta/internet ... i/ljosnet/

Þeir virðast að vera að reyna að klóra í bakkann eitthvað, stærsti pakkinn er/átti að vera 600 GB (allavega segir þjónustuvefurinn að ég sé með 600 GB pakka....?) en skv. þessum link þá er stærsti pakkinn kominn í 1,5 TB .... er þetta ekki eitthvað nýtt? Allavega þá er þetta endalaust hringl fram og til baka hjá þeim með dagsetningar og stærð pakkanna ekki traustvekjandi



Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6309
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 445
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Tengdur

Re: siminn.is

Pósturaf worghal » Sun 14. Sep 2014 23:39

Throstur skrifaði:http://www.siminn.is/thjonusta/internet/leidir-i-bodi/ljosnet/

Þeir virðast að vera að reyna að klóra í bakkann eitthvað, stærsti pakkinn er/átti að vera 600 GB (allavega segir þjónustuvefurinn að ég sé með 600 GB pakka....?) en skv. þessum link þá er stærsti pakkinn kominn í 1,5 TB .... er þetta ekki eitthvað nýtt? Allavega þá er þetta endalaust hringl fram og til baka hjá þeim með dagsetningar og stærð pakkanna ekki traustvekjandi

lol, þessi mundi samt ekki covera mína umferð xD


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

Nariur
Of mikill frítími
Póstar: 1826
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Reputation: 181
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf Nariur » Mán 15. Sep 2014 02:12

worghal skrifaði:
Throstur skrifaði:http://www.siminn.is/thjonusta/internet/leidir-i-bodi/ljosnet/

Þeir virðast að vera að reyna að klóra í bakkann eitthvað, stærsti pakkinn er/átti að vera 600 GB (allavega segir þjónustuvefurinn að ég sé með 600 GB pakka....?) en skv. þessum link þá er stærsti pakkinn kominn í 1,5 TB .... er þetta ekki eitthvað nýtt? Allavega þá er þetta endalaust hringl fram og til baka hjá þeim með dagsetningar og stærð pakkanna ekki traustvekjandi

lol, þessi mundi samt ekki covera mína umferð xD


http://www.siminn.is/thjonusta/internet ... ar-leidir/

Þá kæmi þessi sterkur inn...


AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED


playman
Of mikill frítími
Póstar: 1999
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 71
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf playman » Mán 15. Sep 2014 09:22

Þannig að ég er ekki sá eini sem að er að lenda í einhverju kjaftæði hjá þeim.
Búinn að hafa samband við annan ISP, nenni ekki svona kjaftæði!
Notabene er ég á ADSL með 300gb pakka, og ég er ekki að fara í stærri pakka.
Viðhengi
siminn.jpg
siminn.jpg (103.7 KiB) Skoðað 2948 sinnum


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6345
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf AntiTrust » Mán 15. Sep 2014 09:29

Þessar mælingar sem eru að gefa upp 40-100+ GB á dag á ADSL tengingum eru alveg örugglega vitlausar og verða leiðréttar.




fedora1
Ofur-Nörd
Póstar: 292
Skráði sig: Sun 20. Jún 2010 23:05
Reputation: 8
Staðsetning: Rvk.
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf fedora1 » Mán 15. Sep 2014 09:55

Það er bara hrikalega neyðarlegt fyrir símann að ætla í þessa aðgerð og lenda svo í því að birta óáreiðanlegar talningar á umferðinni :face



Skjámynd

siminn
Fiktari
Póstar: 76
Skráði sig: Mán 07. Sep 2009 10:04
Reputation: 8
Staðsetning: Ármúli 25, Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf siminn » Mán 15. Sep 2014 10:29

Sælir Vaktarar,

Þetta er bilun sem er verið að laga í þessum töluðu orðum. Leiðrétting fer vonandi í loftið á eftir og þá mun Þjónustuvefurinn sýna rétt gögn.

Mælingar á allri umferð er ekki hafin, hefst 1.október bara svo það því sé haldið til haga.

kveðja,
Guðmundur hjá Símanum




playman
Of mikill frítími
Póstar: 1999
Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
Reputation: 71
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf playman » Mán 15. Sep 2014 10:42

siminn skrifaði:Sælir Vaktarar,

Þetta er bilun sem er verið að laga í þessum töluðu orðum. Leiðrétting fer vonandi í loftið á eftir og þá mun Þjónustuvefurinn sýna rétt gögn.

Mælingar á allri umferð er ekki hafin, hefst 1.október bara svo það því sé haldið til haga.

kveðja,
Guðmundur hjá Símanum

Jæja, þið fáið allaveganna 1+ fyrir að koma hérna og láta okkur vita stöðu mála.
En nú var ég rukkaður um 100gb í auka gagnamagn því að ég fór víst yfir gagnamagnið vegna þessarar villu hjá ykkur, verður það ekki þá bakfært líka?


CPU: Intel Core i7-8700K hexa Core @ 3.7GHz RAM: Mushkin 16GB DDR4 1333MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
HDD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z370 AORUS Gaming 3 GPU: NVIDIA GeForce GTX 1070 4Gb
Main screen: BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9 Secondary screen: BenQ GW2455 - 24" 16:9 Tertiary Screen BenQ GW2455 24" 16:9

Skjámynd

siminn
Fiktari
Póstar: 76
Skráði sig: Mán 07. Sep 2009 10:04
Reputation: 8
Staðsetning: Ármúli 25, Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf siminn » Mán 15. Sep 2014 10:46

playman skrifaði:
siminn skrifaði:Sælir Vaktarar,

Þetta er bilun sem er verið að laga í þessum töluðu orðum. Leiðrétting fer vonandi í loftið á eftir og þá mun Þjónustuvefurinn sýna rétt gögn.

Mælingar á allri umferð er ekki hafin, hefst 1.október bara svo það því sé haldið til haga.

kveðja,
Guðmundur hjá Símanum

Jæja, þið fáið allaveganna 1+ fyrir að koma hérna og láta okkur vita stöðu mála.
En nú var ég rukkaður um 100gb í auka gagnamagn því að ég fór víst yfir gagnamagnið vegna þessarar villu hjá ykkur, verður það ekki þá bakfært líka?


Auðvitað, gerum massaleiðréttingu á alla sem hafa fengið stækkun á sig útaf þessari bilun.

kveðja,
Guðmundur hjá Símanum



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16302
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2015
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: siminn.is

Pósturaf GuðjónR » Mán 15. Sep 2014 11:33

siminn skrifaði:Auðvitað, gerum massaleiðréttingu á alla sem hafa fengið stækkun á sig útaf þessari bilun.

kveðja,
Guðmundur hjá Símanum


Sæll Guðmundur, og takk fyrir svörin að ofan.
Það væri gaman að fá svör við eftirfarandi spurningum ef þú mættir vera að:

1.) Í ljósi þess að bæði Vodafone og Síminn hafa lent í "bilunum" þar sem augljóslega allt of mikið gagnamagn er talið, hvernig geta viðskiptavinir ykkar verið öruggir um að gagnamagnið sé alltaf 100% rétt talið?

2.) Núna fór ekki á milli mála að rangt væri talið þar sem skekkjan var það stór, hvað ef það væri alltaf "örlítil skekkja" segjum 10%-15%? eru mæliaðferðirnar (mælitækin) löggild? þ.e. er einhver annar en þið sjálf sem fylgist með því að allt sé rétt og heiðarlegt?