Síða 6 af 9

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Lau 01. Maí 2021 16:24
af Le Drum
Ég hef verið svolítið að flakka á milli vafra sökum þess að ég er með Macbook heima og Windows í vinnunni en eftir að ég fór að nota Vivaldi hef ég ekki snúið við síðan, eina sem ég sakna er að hafa ekki IOS útgáfu enn þá.

Eitt sem ég hefði viljað fá er samt "other bookmarks" á bookmarks barinn í staðinn fyrir að nota bookmarks hnappinn fyrir ofan. Er sá fídus kannski til og ég finn hann ekki?

Annars langar mér bara að hrósa ykkur Vivaldi snillingum, þið eruð að gera gott mót.

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Lau 01. Maí 2021 17:04
af JónSvT
Dropi skrifaði:
JónSvT skrifaði:
steinarorri skrifaði:
JónSvT skrifaði:Þá er komin ný útgáfa af Vivaldi. Þetta er 3.8. [...] Hér höfum við lagt inn meðal annars möguleika til að fjarlægja Cookie spurningar. Njótið!

Nú verð ég að skipta yfir til ykkar, þoli ekki cookie spurningarnar... Flott framtak

:)

Er þetta satt? Ég er ennþá á 3.6, mér finnst erfitt og stundum brussulegt að fá vivaldi til að uppfæra sig. Tók mig óratíma að laga eitthvað repo signed key dæmi á linux vélinni minni, hún var á 3.0. Ég er á windows og var að reyna að keyra update notifierinn og ekkert gerðist. Hann er á auto start í taskmgr, en hann startar sér ekki.

Á einni vél var ég óvart með útgáfu 1.2 þangað til í fyrra, skildi ekkert í því afhverju svo margar vefsíður virkuðu ekki. Núna er ég að reyna að keyra update notifierinn og hann neitar að fara af stað.

Edit: ég náði að fá update notifierinn upp með því að fara í settings, keybinda "Check for notifications" og nota keybindið. Það vantar takka í settings sem heitir bara "Check for updates".

Við erum að vinna að því að gera auto update einfaldara. Það verður default að uppfæra sjálfkrafa. Notendur mega þó láta vera að gera þetta. Þetta er jú Vivaldi... En þetta verður allt einfaldara í næstu útgáfum.

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Lau 01. Maí 2021 17:11
af JónSvT
Le Drum skrifaði:Ég hef verið svolítið að flakka á milli vafra sökum þess að ég er með Macbook heima og Windows í vinnunni en eftir að ég fór að nota Vivaldi hef ég ekki snúið við síðan, eina sem ég sakna er að hafa ekki IOS útgáfu enn þá.

Gaman að heyra.

Le Drum skrifaði:Eitt sem ég hefði viljað fá er samt "other bookmarks" á bookmarks barinn í staðinn fyrir að nota bookmarks hnappinn fyrir ofan. Er sá fídus kannski til og ég finn hann ekki?

Áttu við til að opna bookmarks manager? Þar gæti verið ágætt að nota CTRL-B, ef ég hef skilið þig rétt.

Le Drum skrifaði:Annars langar mér bara að hrósa ykkur Vivaldi snillingum, þið eruð að gera gott mót.

Takk fyrir það. Við höfum gott teymi. :)

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Lau 01. Maí 2021 17:40
af Le Drum
Átti við hnapp í Bookmarks bar þar sem kemur felli listi niður þegar manni vantar eitthvað annað en maður er þegar með í Bookmarks bar :)

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Lau 01. Maí 2021 18:03
af JónSvT
Le Drum skrifaði:Átti við hnapp í Bookmarks bar þar sem kemur felli listi niður þegar manni vantar eitthvað annað en maður er þegar með í Bookmarks bar :)

Lagði þetta við listann.

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Sun 02. Maí 2021 12:22
af Dropi
kizi86 skrifaði:File > Help > check for updates...

Öll þessi ár og aldrei séð file áður, lærði eitthvað nýtt. Ég fer alltaf í settings þegar mig vantar eitthvað. Samt sem áður er þessi staðsetning mjög falin og kemur ekki upp í leitinni undir settings.

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Sun 23. Maí 2021 18:53
af TheAdder
Hvernig hefur ykkur gengið að setja inn PWA á Vivaldi? Ég er ekki að finna möguleikann á því, fyrir utan eitt hak í "vivaldi:experiments" sem virðist ekkert gera.

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Mið 09. Jún 2021 13:56
af JónSvT
TheAdder skrifaði:Hvernig hefur ykkur gengið að setja inn PWA á Vivaldi? Ég er ekki að finna möguleikann á því, fyrir utan eitt hak í "vivaldi:experiments" sem virðist ekkert gera.

Hmm. Þetta experiment á að virka. Það virkar ekki hjá þér?

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Mið 09. Jún 2021 14:00
af JónSvT
Mjög stór, ný útgáfa í dag. Vivaldi 4.0. Hér höfum við lagt inn Vivaldi Translate, sem er hýst hér á Íslandi, og betu af Vivaldi Mail, Vivaldi Calendar og Vivaldi Feeds. Hlakkar til að heyra hvað ykkur finnst!

Mikið af þróunarvinnunni af Vivaldi Mail, Vivaldi Calendar og Vivaldi Feeds er gerð á landinu líka. Við höfum unnið við þetta í langan tíma og ég vona að þið séuð eins hrifin af þessu og ég er.

https://vivaldi.com/blog/vivaldi-4-0/

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Mið 09. Jún 2021 15:56
af TheAdder
JónSvT skrifaði:
TheAdder skrifaði:Hvernig hefur ykkur gengið að setja inn PWA á Vivaldi? Ég er ekki að finna möguleikann á því, fyrir utan eitt hak í "vivaldi:experiments" sem virðist ekkert gera.

Hmm. Þetta experiment á að virka. Það virkar ekki hjá þér?

Mér gekk ekki að finna neinn möguleika til þess að "install as pwa" eða eitthvað álíka.
En seinna hoppaði upp gluggi með spurningunni hvort ég vildi setja þetta upp sem virkaði svo fínt.

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Mán 28. Jún 2021 15:29
af JónSvT
Smá grein sem ég var að skrifa. Mæli með að þið lesið þetta. Það er tími til kominn að banna auglýsingar byggðar á njósnum!

https://vivaldi.com/blog/its-time-to-ban-surveillance-based-advertising/

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Mán 28. Jún 2021 20:45
af kizi86
eitt skrítið ves með vivaldi, allt í einu hætti ég alveg að heyra hljóð, sem kemur frá tiktok og 9gag síðunum, BARA þeim, allt annað virkar, hvað gæti verið málið? (og nei er ekki með valið mute tab)

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Mán 28. Jún 2021 20:59
af JónSvT
kizi86 skrifaði:eitt skrítið ves með vivaldi, allt í einu hætti ég alveg að heyra hljóð, sem kemur frá tiktok og 9gag síðunum, BARA þeim, allt annað virkar, hvað gæti verið málið? (og nei er ekki með valið mute tab)

Það er þekkt vandamál sem strákarnir eru að vinna að lausn á. Veit ekki hvað gerði það, en það er verið að vinna að lausn.

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Mán 28. Jún 2021 21:45

flott <3 er að elska að geta svona auðveldlega haft beint samband :) þessi browser er uppáhaldið mitt, og ég bendi öllum á að skipta yfir í vivaldi ! geggjað support!

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Þri 29. Jún 2021 11:48
af JónSvT
kizi86 skrifaði:

Takk! :)

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Þri 29. Jún 2021 18:02
af kizi86
er vivaldi eitthvað í ruglinu núna? fékk error um að sync væri stoppað og svo kom þetta.. að ég þyrfti að uppfæra vivaldi, en það eru engin updates?

Mynd

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Þri 29. Jún 2021 18:15
af JónSvT
kizi86 skrifaði:er vivaldi eitthvað í ruglinu núna? fékk error um að sync væri stoppað og svo kom þetta.. að ég þyrfti að uppfæra vivaldi, en það eru engin updates?

Mynd

Það er bug í snapshot hjá okkur, sem tengist uppfærslu á Chromium. Við vinnum að lausn. Til að takmarka vandamálið, þá stoppuðum við að Sync virki fyrir snapshot þangað til við leysum þetta.

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Þri 29. Jún 2021 19:15
af kizi86
svo af einhverri ástæðu, get ég ekki fengið felligluggan niður með mest notuðu slóðunum (örin niður í url glugganum) ef ég er á einhverri síðu nema Start Page, bara í start page virkar felliglugginn <<< EDIT browserinn hjá mér fór greinilega í self-destruct mode, því stuttu eftir þetta funky atriði, þá bara hætti hann alveg að virka, þurfti að gjörsamlega eyða honum út og öllum traces, og setja upp á nýtt, og núna er ekkert vesen :)

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Mið 21. Júl 2021 22:27
af audiophile
Veit ekki af hverju en allt í einu hætti spjallið á Vaktinni að birtast eðlilega í Vivaldi á Android. Búinn að reyna að hreinsa Cache osfrv. Virkar allt eðlilega í öðrum vöfrum eins og Chrome, Opera og DuckDuckGo.

Er Vivaldi, Vaktin eða ég vandamálið?

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Fim 22. Júl 2021 22:54
af kizi86
audiophile skrifaði:Veit ekki af hverju en allt í einu hætti spjallið á Vaktinni að birtast eðlilega í Vivaldi á Android. Búinn að reyna að hreinsa Cache osfrv. Virkar allt eðlilega í öðrum vöfrum eins og Chrome, Opera og DuckDuckGo.

Er Vivaldi, Vaktin eða ég vandamálið?

sama í vivaldi hjá mér, desktop windows, skiptir engu hvort það sé main release build eða snapshot, og svo virkar twitch.tv ekki lengur hjá mér, kemur bara network error, er í lagi á öllum öðrum vöfrum

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Fös 23. Júl 2021 02:41
af Danni V8
Fyrir forvitnissakir, er eitthvað verið að vinna í því að koma með ios útgáfu fyrir mobile (iPhone)?

Líkar mjög vil þennan vafra en synca mikið á milli Chrome í tölvunni og símanum þannig það er í raun eina sem stöðvar mig frá því að skipta varanlega yfir í Vivaldi.

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Fös 23. Júl 2021 15:13
af Nariur
Ég ákvað að prófa að skipta úr Chrome og gefa Vivaldi séns. Það er allskonar sem ég fíla í botn eins og privacy áherslurnar og innbyggði adblockerinn. Það eru líka hlutir sem mér finnst að mættu vera betri og þá aðallega eitthvað sem mér finnst Chrome gera betur og sakna þaðan.

Það er svo rosalega mikið í gangi í default UI layoutinu. Það er væntanlega af því að þið hafið búið til svo mikið af frábærum features og viljið að fólk noti þau. Þetta er rosalega overwhelming, meira að segja fyrir mjög tæknilega læst fólk og ég trúi því alveg að það geti hrætt nýja notendur.
Mér likar líka bara almennt ekki þegar browser UI tekur helling af plássi. Ég vil bara sjá síðuna sem ég er á.
Þið eruð náttúrulega með heilan helling af customization, svo ég hófst handa við að henda út öllu nema address barnum basically.
Ég myndi endilega vilja geta losnað við home og fast-forwar/rewind takkana, en finn ekki leið til að losna við þá án þess að brjóta allt með custom css.
Eina leiðin sem ég veit um til að sjá zoom level er á bottom barnum, en allt annað á honum er eitthvað sem mér er sama um og mér er í rauninni líka sama um zoom levelið nema það sé eitthvað annað en 100%, svo ég vil ekki kveikja á honum. Mér finnst chrome höndla þetta rosalega vel, með tákni hægra megin á address barnum.

Mér finnst Vivaldi alls ekki höndla það nógu vel þegar maður detach-ar tabs. Dæmi: Ég er með glugga með 2 tabs á skjá 2 og ekkert á skjá 1. Ég vil draga annan tabinn yfir á skjá 1 og setja hann í full screen. Ég dreg tabinn af stikunni og yfir á skjá 1 og sleppi. Tabinn poppar þá upp í nýjum glugga, ennþá á skjá 2, svo ég þarf að draga hann aftur yfir.
Chrome höndlar þetta mjög vel. Um leið og maður dregur tab af stikunni er búið að spawna nýjan glugga sem maður getur dregið og snappað eins og hvern annan glugga.

Mér líkar ekki panels, svo ég slökkti á stikunni, en downloads er náttúrulega þar. Þetta er mjög lítið, en mér þætti frábært að hafa stillingu til að opna downloads sjálfkrafa þegar download fer í gang og UI element til að loka því alveg í einu clicki (stikan, líka þessi mjóa til að opna er algert neinei í minni bók), þ.e. svo ég þurfi ekki að ýta á F4 til að opna og loka. Ég hugsa að svipað eigi við um bookmarks og history, en ég er ekki búinn að nota vafrann nógu lengi til að mynda mér skoðun á því.
Edit: Downloads opnast stundum sjálfkrafa, en ekki alltaf.

Ég er líka að prófa Vivaldi á Android. Mér líkar hann líka. Ég hef samt rekist á tvennt. Ef maður er með address barinn uppi fær maður líka navigation bar niðri, en ef maður er með address barinn niðri fær maður bara hann. Ég myndi elska að hafa bara þann bar uppi og ekkert niðri (eins og Chrome).
Af einhverri ástæðu felur vafrinn líka status barinn í símanum, þ.e. klukkuna, battery, notifications. Mér þætti frábært ef hann gerði það ekki.

Ég er að nota nýjustu útgáfur á Windows 10 og Samsung S21.

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Fös 23. Júl 2021 15:29
af Zethic
Nariur skrifaði:Ég ákvað að prófa að skipta úr Chrome og gefa Vivaldi séns. Það er allskonar sem ég fíla í botn eins og privacy áherslurnar og innbyggði adblockerinn. Það eru líka hlutir sem mér finnst að mættu vera betri og þá aðallega eitthvað sem mér finnst Chrome gera betur og sakna þaðan.

Það er svo rosalega mikið í gangi í default UI layoutinu. Það er væntanlega af því að þið hafið búið til svo mikið af frábærum features og viljið að fólk noti þau. Þetta er rosalega overwhelming, meira að segja fyrir mjög tæknilega læst fólk og ég trúi því alveg að það geti hrætt nýja notendur.
Mér likar líka bara almennt ekki þegar browser UI tekur helling af plássi. Ég vil bara sjá síðuna sem ég er á.
Þið eruð náttúrulega með heilan helling af customization, svo ég hófst handa við að henda út öllu nema address barnum basically.
Ég myndi endilega vilja geta losnað við home og fast-forwar/rewind takkana, en finn ekki leið til að losna við þá án þess að brjóta allt með custom css.
Eina leiðin sem ég veit um til að sjá zoom level er á bottom barnum, en allt annað á honum er eitthvað sem mér er sama um og mér er í rauninni líka sama um zoom levelið nema það sé eitthvað annað en 100%, svo ég vil ekki kveikja á honum. Mér finnst chrome höndla þetta rosalega vel, með tákni hægra megin á address barnum.

Mér finnst Vivaldi alls ekki höndla það nógu vel þegar maður detach-ar tabs. Dæmi: Ég er með glugga með 2 tabs á skjá 2 og ekkert á skjá 1. Ég vil draga annan tabinn yfir á skjá 1 og setja hann í full screen. Ég dreg tabinn af stikunni og yfir á skjá 1 og sleppi. Tabinn poppar þá upp í nýjum glugga, ennþá á skjá 2, svo ég þarf að draga hann aftur yfir.
Chrome höndlar þetta mjög vel. Um leið og maður dregur tab af stikunni er búið að spawna nýjan glugga sem maður getur dregið og snappað eins og hvern annan glugga.

Mér líkar ekki panels, svo ég slökkti á stikunni, en downloads er náttúrulega þar. Þetta er mjög lítið, en mér þætti frábært að hafa stillingu til að opna downloads sjálfkrafa þegar download fer í gang og UI element til að loka því alveg í einu clicki (stikan, líka þessi mjóa til að opna er algert neinei í minni bók), þ.e. svo ég þurfi ekki að ýta á F4 til að opna og loka. Ég hugsa að svipað eigi við um bookmarks og history, en ég er ekki búinn að nota vafrann nógu lengi til að mynda mér skoðun á því.

Ég er líka að prófa Vivaldi á Android. Mér líkar hann líka. Ég hef samt rekist á tvennt. Ef maður er með address barinn uppi fær maður líka navigation bar niðri, en ef maður er með address barinn niðri fær maður bara hann. Ég myndi elska að hafa bara þann bar uppi og ekkert niðri (eins og Chrome).
Af einhverri ástæðu felur vafrinn líka status barinn í símanum, þ.e. klukkuna, battery, notifications. Mér þætti frábært ef hann gerði það ekki.

Ég er að nota nýjustu útgáfur á Windows 10 og Samsung S21.

Nokkuð spot on. Ég hef reynt að nota Vivaldi ótal sinnum en enda alltaf á fara aftur í Chrome (núna Edge reyndar). Næ ekki að setja puttann á nákvæmlega hvað pirrar mig en þetta með detaching er eitt af þeim
Mætti vera svona "aðlögunar" process þar sem vafrinn byrjar eins og aðrir, og maður bætir við einum/nokkrum hlutum í einu. Þegar manni er skellt í svona miklar breytingar er ekki nokkur leið að fylgjast með hvaða breytingar virka og virka ekki

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Sun 25. Júl 2021 23:27
af thrkll
Ég er að prófa Vivaldi núna og líst vel á. Núna var ég hins vegar að sjá að það er ekki hægt að spila Picture-in-picture myndbönd á Rúv.is [-X

Gengur alls ekki fyrir mikla Rúv menn eins og mig. :D

Re: Vivaldi - Íslenskur vafri

Sent: Mán 26. Júl 2021 18:48
af davidsb
Ég lendi í því á android að netspjall á vefsíðum birtist ekki.
T.d. http://www.landspitali.is fæ ég netspjall á chrome en ekki vivaldi.

Hef notað Vivaldi í nokkra mánuði og er hæst ánægður með hann.