Síða 2 af 2

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Þri 16. Feb 2021 08:50
af jardel
Þakka þér fyrir svarið Revenant.

Svona er staðan hjá mér.

rererewrerer.png
rererewrerer.png (86.04 KiB) Skoðað 1695 sinnum

tttttttttttttttttttttt.png
tttttttttttttttttttttt.png (87.38 KiB) Skoðað 1695 sinnum

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Þri 16. Feb 2021 16:59
af Revenant
jardel skrifaði:Þakka þér fyrir svarið Revenant.

Svona er staðan hjá mér.

Þetta viðhengi rererewrerer.png er ekki lengur aðgengilegt

Þú verður að raða eftir "Address In Stack" (ekki eftir Filename) til að geta séð í hvaða driver Windows er að crash-a í.

bluescreenview.png
bluescreenview.png (15.96 KiB) Skoðað 1668 sinnum

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Þri 16. Feb 2021 18:34
af jardel
Svona er það þar ert þú eitthvað nær? Það kemur allavegana voðalega lítið út úr google.

qqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqq.png
qqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqq.png (30.89 KiB) Skoðað 1657 sinnum

tutyutututututyutyutyututyuy.png
tutyutututututyutyutyututyuy.png (117.03 KiB) Skoðað 1660 sinnum

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Þri 16. Feb 2021 19:33
af Revenant
jardel skrifaði:Svona er það þar ert þú eitthvað nær? Það kemur allavegana voðalega lítið út úr google.

qqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqqq.png

tutyutututututyutyutyututyuy.png

Windows crash-ar ekki í neinum driver heldur beint í NT kernel sem bendir til þess að vinnsluminni, örgjörvi eða móðurborð séu vandamálið.
Þar sem þú ert búin að keyra memtest (sem er lang líklegast að bili) þá stendur eftir örgjörvinn eða móðurborðið.

Mögulega gætiru verið að lenda í "fade" minnisvillum en þá tapar minniskubburinn gögnum eftir smá tíma (en getur samt staðist minnispróf). Ef það gerist í mikilvægum minnissvæðum þá panikkar Windows því það býst við ákveðnu gildi sem er ekki til staðar lengur.

Ef þú ert með tvo minniskubba þá geturu prófað að taka annan út og athugað hvort að þú fáir BSOD. Ef þú færð áfram BSOD þá geturu víxlað kubbunum og prófað aftur. Ef þú færð BSOD við báða minniskubbana keyrandi í sitt hvoru laginu þá er líklegast að móðurborðið eða örgjörvinn sé farinn.

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Þri 16. Feb 2021 19:52
af jardel
Þakka þér fyrir að gefa þér tíma í að skoða þetta.
Varðandi ram test eða minnispróf er eitthvað forrit til, til að framkvæma þannig prufu.

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Þri 16. Feb 2021 20:05
af Revenant
Memtest86 er besta forritið til að prófa minnið.

Þarft að skrifa .img skránna á USB kubb með imageUSB forritinu sem fylgir með og boot-a svo af USB kubbnum.

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Þri 16. Feb 2021 20:08
af jardel
Ég prufa það. Varðandi vélina mína, þá kaupi ég hana sirca 4 ára þetta voru þá gamlir partar. minnir að ramið sé DDR3 er það fáanlegt í dag yfir höfuð? Varðandi þetta blue screen vandamál þá gerist þetta við 20H2 windows uppfærsluna.

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Þri 16. Feb 2021 22:44
af jardel
Èg er með 4, ddr3 ram stykki í turninum.
Ég verð að taka þá eitt í einu út.
Þetta er allt mjög skrýtið, þetta gerðist ekki fyrr en ég gerði update á Windows 10 að tölvan fór að bluescreena.

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Mið 17. Feb 2021 12:25
af Uncredible
Samt ekki skrítið, ég uppfærði Windows fyrir áramót og byrjaði að fá BSOD. Kom í ljós að ég var með out dated LED driver. Uppfærði hann og BSOD hefur ekki gerst síðan.

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Mið 17. Feb 2021 14:45
af kizi86
20H2 update-ið er "frægt" fyrir að vera mjög picky á driver-a. lenti sjálfur í BSOD veislu eftir það update, og þá í mínu tilfelli var það BlueTooth driverarnir. en með memtest86, ég hef reglu á að runna það allaveganna 5x áður en ég útiloka ram sem bsod valdinn. (registered EEC ram for the win)

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Fös 19. Feb 2021 22:46
af jardel
kizi86 skrifaði:20H2 update-ið er "frægt" fyrir að vera mjög picky á driver-a. lenti sjálfur í BSOD veislu eftir það update, og þá í mínu tilfelli var það BlueTooth driverarnir. en með memtest86, ég hef reglu á að runna það allaveganna 5x áður en ég útiloka ram sem bsod valdinn. (registered EEC ram for the win)

Takk fyrir póstinn. Nú er þetta samansettur turn hjá mér ekkert bluetooth í honum. Ég er bæði búinn að prufa Auslogics Driver og Driver Booster.
Eru til einhver betri driver forrit en þessi sem ég nefndi?

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Fös 19. Feb 2021 23:19
af SolidFeather
Persónulega myndi ég sleppa því að nota svona driver forrit, windows 10 er nokkuð öflugt í því að setja upp driver-a sjálfkrafa. Ertu með einhverja vírusvörn uppsetta?

Samkvæmt internetinu þá getur þessi BSOD villa komið í tengslum við drivera. Þessi villa þarf ekki að þýða að það sé bilaður vélbúnaðurinn.

Það væri ábyggilega best ef þú gætir fundið út hvaða móðurborð þú ert með, t.d. með Speccy.

Annars eru hér leiðbeiningar til að tékka á því hvaða driver, ef einhver, er að valda þessum vandræðu:

https://answers.microsoft.com/en-us/win ... c91bc7997b

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Fös 19. Feb 2021 23:33
af jardel
SolidFeather skrifaði:Persónulega myndi ég sleppa því að nota svona driver forrit, windows 10 er nokkuð öflugt í því að setja upp driver-a sjálfkrafa. Ertu með einhverja vírusvörn uppsetta?

Takk fyrir svarið nei er ekki með neina víruvörn, varðandi móðurborðið þá er það í lagi. Ég kíki á þennan link sem þú sendir.

Re: kmode exception not handled og blár skjár

Sent: Fös 19. Feb 2021 23:40
af SolidFeather
jardel skrifaði:
SolidFeather skrifaði:Persónulega myndi ég sleppa því að nota svona driver forrit, windows 10 er nokkuð öflugt í því að setja upp driver-a sjálfkrafa. Ertu með einhverja vírusvörn uppsetta?

Samkvæmt internetinu þá getur þessi BSOD villa komið í tengslum við drivera. Þessi villa þarf ekki að þýða að það sé bilaður vélbúnaðurinn.

Það væri ábyggilega best ef þú gætir fundið út hvaða móðurborð þú ert með, t.d. með Speccy.

Annars eru hér leiðbeiningar til að tékka á því hvaða driver, ef einhver, er að valda þessum vandræðu:

https://answers.microsoft.com/en-us/win ... c91bc7997b

Takk fyrir svarið nei er ekki með neina víruvörn, varðandi móðurborðið þá er það í lagi. Ég kíki á þennan link sem þú sendir.

Já ég veit að móðurborðið er líklegast í lagi, en það gengur betur að bilanagreina ef við vitum um hvaða móðurborð ræðir. Þá er hægt að skoða hvaða drivera það notar.