Staða 5G farsímaneta á Íslandi


Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf jonfr1900 » Lau 13. Feb 2021 01:55

Veit einhver hver staða 5G farsímakerfa er á Íslandi. Það er ekki mikið komið um útbreiðslukort um 5G hjá farsímafyrirtækjunum. Það er helst kort frá Nova sem ég hef séð. Eins og þetta kort sem fylgdi með fréttinni um iPhone 12 og 5G.

5G í boði fyr­ir iP­ho­ne (mbl.is)
Tilkynningin frá Nova um það sama.

Síminn er kominn með 5G vefsíðu en ekkert annað sýnist mér. Ég hef ekki séð neina 5G vefsíðu hjá Vodafone. Það verður einnig mikill munur þegar farsímafyrirtækin fara að slökkva á 3G kerfunum sem eru úrelt og fáir nota í dag.



Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1244
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 372
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf Njall_L » Fös 19. Feb 2021 08:20

Þekki nú ekki hvernig gengur að koma 5G sendum upp eða hverjir eru að byggja upp kerfi. Eru enn bara Vodafone og Síminn að byggja upp kerfin og síðan leigja öðrum inn á þau? Eða er þessi kynslóð eitthvað öðruvísi?

Hinsvegar var mér ánægjulega komið á óvart þegar ég mætti í vinnuna (póstnúmer 203) í morgun og sá að ég lenti á fullu 5G neti í fyrsta skiptið. Er með iPhone 12 Pro og henti í eitt speed-test. Get nú ekki sagt að það sé neinn áþreifanlegur munur 5G á 4G sem var hérna áður en þó alltaf gaman að sjá hærri tölur.

151312098_152522443369544_5855340046339382843_n.jpg
151312098_152522443369544_5855340046339382843_n.jpg (64.28 KiB) Skoðað 5890 sinnum


Löglegt WinRAR leyfi

Skjámynd

zetor
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Sun 17. Júl 2011 23:12
Reputation: 77
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf zetor » Fös 19. Feb 2021 08:31

Viðskiptablaðið 11.október 2020

"Byltingin í tengslum við 5G fjarskiptakerfið er að hefjast hérlendis. Eru fjarskiptafyrirtæki þegar búin að koma upp nokkrum 5G-sendum, þannig er Vodafone með sendi við höfuðstöðvar sínar á Suðurlandsbraut og Nova hefur sett upp sendi í Reykjavík, sem og í Sandgerði, Vestmannaeyjum og á Hellu. Síminn er að hefja sína uppbyggingu. Heiðar Guðjónsson, forstjóri Vodafone, telur að ekki sé nema eitt ár í að 5G nái almennilegri fótfestu hér á landi."

Er er einhver sem býr þarna í Sandgerði, Hellu og Vestmanneyjum og er með reynslu af þessu neti síðan þetta var sett upp?
Síðast breytt af zetor á Fös 19. Feb 2021 08:33, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3754
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 121
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf Pandemic » Fös 19. Feb 2021 11:46

Besta sem ég hef fengið hérna í Skeifunni á 5G
148235677_447247676416662_7788503629378535971_n.png
148235677_447247676416662_7788503629378535971_n.png (719.34 KiB) Skoðað 5789 sinnum
Síðast breytt af Pandemic á Fös 19. Feb 2021 11:46, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf GuðjónR » Fös 19. Feb 2021 13:33

I’m 5G ready!
Viðhengi
0D72AA3F-2FA7-486B-8EBB-E4816AFDEABD.jpeg
0D72AA3F-2FA7-486B-8EBB-E4816AFDEABD.jpeg (26.22 KiB) Skoðað 5720 sinnum




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf jonfr1900 » Lau 20. Feb 2021 00:23

Ég held að Nova sé komið lengst í að byggja upp 5G farsímakerfi. Samkvæmt tíðnileyfi allra farsímafyrirtækjanna þá þurfa þau að ná 25% af íbúarfjölda Íslands fyrir 31.12.2021 og lágmark 30 senda. Síðan er sérkrafa um útbreiðslu á landsbyggðinni.

Nova samþykkti þessa smábæi.
Hellu
Sandgerði
Vestmannaeyjar

Vodafone (Sýn) samþykkti þessa smábæi.
Hvolsvelli
Siglufirði
Grindavík

Síminn samþykkti þessa smábæi.
Blönduós
Þorlákshöfn
Egilsstaðir

Það er ekkert sem stöðvar símafyrirtækin að nota önnur tíðnisvið en 3500Mhz til 3700Mhz sem hefur verið sérstaklega úthlutað fyrir 5G. Öll fyrirtækin á Íslandi geta notað 900Mhz/1800Mhz/2100Mhz/2600Mhz fyrir 5G þjónustu samhliða 4G þjónustu. Það eina sem munar er hraðinn. Lægri tíðni þýðir minni hraði vegna takmarkana á bandvídd þar sem úthlutun á þessum tíðnisviðum er takmörkuð við 20Mhz í flestum tilfellum (úthlutun er ekki jöfn á Íslandi af einhverjum ástæðum). Úthlutun á 3500Mhz til 3700Mhz á hvert farsímafyrirtæki fyrir 5G er 100Mhz og það þýðir hraða yfir 1GB eins og sést hérna að ofan.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf jonfr1900 » Mán 12. Apr 2021 17:12

Ég komst loksins til Reykjavíkur í nokkra klukkutíma í dag og þá kemur í ljós að 5G virkar á Samsung Galaxy S20 5G símanum hjá mér. Nova hefur haldið því fram undanfarið (nefnt á einhverjum þræðinum hérna sem ég finn ekki) að Samsung væri ekki búið að kveikja á 5G á Íslandi. Það virðist ekki vera rétt hjá þeim. Ég náði ekki að prufað þetta almennilega núna en mesti hraði í niðurhali sem ég náði var 382Mbps.



Skjámynd

zetor
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Sun 17. Júl 2011 23:12
Reputation: 77
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf zetor » Mán 12. Apr 2021 18:20

jonfr1900 skrifaði:
Vodafone (Sýn) samþykkti þessa smábæi.
Hvolsvelli
Siglufirði
Grindavík



Hvar sástu þessar upplýsingar?



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf urban » Mán 12. Apr 2021 18:57

jonfr1900 skrifaði:Nova samþykkti þessa smábæi.
Hellu
Sandgerði
Vestmannaeyjar

Vodafone (Sýn) samþykkti þessa smábæi.
Hvolsvelli
Siglufirði
Grindavík

Síminn samþykkti þessa smábæi.
Blönduós
Þorlákshöfn
Egilsstaðir


Hvað þarf bær að vera stór til þess að vera ekki smábær ?
Ég sem eyjamaður er brjálaður :mad :mad
:megasmile


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !


Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf jonfr1900 » Mán 12. Apr 2021 21:34

zetor skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:
Vodafone (Sýn) samþykkti þessa smábæi.
Hvolsvelli
Siglufirði
Grindavík



Hvar sástu þessar upplýsingar?


Þetta er í tíðnileyfunum en það er einnig fjallað um þetta í samráðsskjali Fjarskiptastofnunar varðandi 5G frá árinu 2020. Þú getur lesið það hérna.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf GuðjónR » Mán 12. Apr 2021 21:36

urban skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Nova samþykkti þessa smábæi.
Hellu
Sandgerði
Vestmannaeyjar

Vodafone (Sýn) samþykkti þessa smábæi.
Hvolsvelli
Siglufirði
Grindavík

Síminn samþykkti þessa smábæi.
Blönduós
Þorlákshöfn
Egilsstaðir


Hvað þarf bær að vera stór til þess að vera ekki smábær ?
Ég sem eyjamaður er brjálaður :mad :mad
:megasmile

Þú þarft að búa á Íslandi...




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf jonfr1900 » Mán 12. Apr 2021 21:41

urban skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Nova samþykkti þessa smábæi.
Hellu
Sandgerði
Vestmannaeyjar

Vodafone (Sýn) samþykkti þessa smábæi.
Hvolsvelli
Siglufirði
Grindavík

Síminn samþykkti þessa smábæi.
Blönduós
Þorlákshöfn
Egilsstaðir


Hvað þarf bær að vera stór til þess að vera ekki smábær ?
Ég sem eyjamaður er brjálaður :mad :mad
:megasmile


Það er reyndar enginn almennilega sammála þessum stærðum en bær er bær með íbúafjölda frá 10.000 til 100.000 manns. Smábær er því með íbúarfjölda frá 1.000 til 10.000 manns. Á Íslandi eru svo til engin Metropolitan area (veit ekki íslenska orðið) í kringum þá bæi sem eru til. Á Íslandi er þetta allt til bara sveit og óbyggðir.

Settlement hierarchy



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf urban » Mán 12. Apr 2021 21:51

jonfr1900 skrifaði:Það er reyndar enginn almennilega sammála þessum stærðum en bær er bær með íbúafjölda frá 10.000 til 100.000 manns. Smábær er því með íbúarfjölda frá 1.000 til 10.000 manns. Á Íslandi eru svo til engin Metropolitan area (veit ekki íslenska orðið) í kringum þá bæi sem eru til. Á Íslandi er þetta allt til bara sveit og óbyggðir.

Settlement hierarchy


Það er bara svo vont að vera sagt vera smábær á sama tíma og hella og hvolsvöllur :D
Það eru samt náttúrulega bara þorp. (bjó á Hvolsvelli í smá tíma, þekki það)

GuðjónR skrifaði:Þú þarft að búa á Íslandi...


Hey, ég hélt að við sem að byggjum í þessum rokrassgötum stæðum saman :shock:


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !


Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf jonfr1900 » Mán 12. Apr 2021 23:38

Ég gleymdi að nefna áðan að í 5G sambandinu hjá Nova þá fékk ég bæði NSA (Non-standalone mode) og SA (Standalone mode) 5G samband. Upplýsingar hérna, 5G NR. Í NSA móttöku þá er 5G kerfi ofan á 4G kerfi. Í SA móttöku þá er bara 5G kerfi í notkun. Ég tók eftir því að þar sem ég var í sambandi þar sem 4G var einnig notað þá var hraðinn minni en þar sem ég fékk bara 5G samband. Í Samsung Galaxy S20 Ultra 5G þá er 5G merkið öðruvísi eftir því hvaða tenging er í notkun.



Skjámynd

zetor
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Sun 17. Júl 2011 23:12
Reputation: 77
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf zetor » Þri 13. Apr 2021 07:28

urban skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Það er reyndar enginn almennilega sammála þessum stærðum en bær er bær með íbúafjölda frá 10.000 til 100.000 manns. Smábær er því með íbúarfjölda frá 1.000 til 10.000 manns. Á Íslandi eru svo til engin Metropolitan area (veit ekki íslenska orðið) í kringum þá bæi sem eru til. Á Íslandi er þetta allt til bara sveit og óbyggðir.

Settlement hierarchy


Það er bara svo vont að vera sagt vera smábær á sama tíma og hella og hvolsvöllur :D
Það eru samt náttúrulega bara þorp. (bjó á Hvolsvelli í smá tíma, þekki það)

GuðjónR skrifaði:Þú þarft að búa á Íslandi...


Hey, ég hélt að við sem að byggjum í þessum rokrassgötum stæðum saman :shock:


Ég er frá Hvolsvelli og ég vil þakka þér fyrir að nota orðið Þorp. Þorp er mun betra orð heldur en smábær. Við erum
rétt að skríða í 1000 manns, ég mynd halda vætnalega áfram að kalla það þorp ef við myndum ná 10.000Þ
:D Svo er það önnur spekúlasion varðandi Hvolsfjall hvort það má heita fjall...vegna smæðar sinnar.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16258
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1983
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf GuðjónR » Þri 13. Apr 2021 10:24

Þarf að stilla Samsung S21+ eitthvað sérstaklega til að virkja 5G?
Þegar minn iphone dettur sjálfkrafa á 5G þá stendur 4G+ á Samsung símanum.
Viðhengi
9288DD69-DC70-4C84-AA61-8BB1EE630D82.jpeg
9288DD69-DC70-4C84-AA61-8BB1EE630D82.jpeg (150.87 KiB) Skoðað 4899 sinnum



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf dori » Þri 13. Apr 2021 12:36

jonfr1900 skrifaði:Ég komst loksins til Reykjavíkur í nokkra klukkutíma í dag og þá kemur í ljós að 5G virkar á Samsung Galaxy S20 5G símanum hjá mér. Nova hefur haldið því fram undanfarið (nefnt á einhverjum þræðinum hérna sem ég finn ekki) að Samsung væri ekki búið að kveikja á 5G á Íslandi. Það virðist ekki vera rétt hjá þeim. Ég náði ekki að prufað þetta almennilega núna en mesti hraði í niðurhali sem ég náði var 382Mbps.

Símaframleiðendur þurfa að uppfæra eitthvað hjá sér til að leyfa tækjunum að tengjast 5G netum. Ég á ekki 5G síma en ég geri ráð fyrir að þetta komi í "hugbúnaðaruppfærslu".

Apple voru fyrstir með þetta á móti símafyrirtæki á Íslandi þegar þeir leyfðu 5G net Nova í byrjun febrúar. Samsung opnaði á S20 um miðjan mars, held að það hafi bara verið S20 til að byrja með en dettur örugglega inn fyrir restina hægt og rólega.

TBH þá er ég ótrúlega lítið spenntur fyrir 5G sem notandi á höfuðborgarsvæðinu. LTE+ er bara ótrúlega fínt fyrir mig og ég man ekki eftir að hafa lent í vanda með farsímanet í nokkur ár. 5G er geggjað fyrir notendur þar sem það er lélegt framboð á ljósleiðaratengingum (bæði á höfuðborgarsvæðinu og í "smábæjunum" sem voru taldir upp hér fyrir ofan) þar sem þetta getur orðið miklu betra heimanet en koparlínu tengingar.



Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6278
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 434
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf worghal » Þri 13. Apr 2021 12:58

dori skrifaði:Símaframleiðendur þurfa að uppfæra eitthvað hjá sér til að leyfa tækjunum að tengjast 5G netum. Ég á ekki 5G síma en ég geri ráð fyrir að þetta komi í "hugbúnaðaruppfærslu".

er ekki 5G bundið við hardware?


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

zetor
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Sun 17. Júl 2011 23:12
Reputation: 77
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf zetor » Þri 13. Apr 2021 13:49

Hvaða routera eru íslensku fyrirtækin að nota fyrir 5g?




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf jonfr1900 » Þri 13. Apr 2021 14:36

GuðjónR skrifaði:Þarf að stilla Samsung S21+ eitthvað sérstaklega til að virkja 5G?
Þegar minn iphone dettur sjálfkrafa á 5G þá stendur 4G+ á Samsung símanum.


Ég þurfti ekki að gera neitt. Reyndar er ég búinn að setja inn allar uppfærslur sem ég fæ frá Samsung undanfarna mánuði. Síminn hjá mér sýnir 5G í Gerð símkerfis sem er undir farsímakerfi. Þar fæ ég 5G/4G/3G/2G upp.




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf jonfr1900 » Þri 13. Apr 2021 14:38

dori skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:Ég komst loksins til Reykjavíkur í nokkra klukkutíma í dag og þá kemur í ljós að 5G virkar á Samsung Galaxy S20 5G símanum hjá mér. Nova hefur haldið því fram undanfarið (nefnt á einhverjum þræðinum hérna sem ég finn ekki) að Samsung væri ekki búið að kveikja á 5G á Íslandi. Það virðist ekki vera rétt hjá þeim. Ég náði ekki að prufað þetta almennilega núna en mesti hraði í niðurhali sem ég náði var 382Mbps.

Símaframleiðendur þurfa að uppfæra eitthvað hjá sér til að leyfa tækjunum að tengjast 5G netum. Ég á ekki 5G síma en ég geri ráð fyrir að þetta komi í "hugbúnaðaruppfærslu".

Apple voru fyrstir með þetta á móti símafyrirtæki á Íslandi þegar þeir leyfðu 5G net Nova í byrjun febrúar. Samsung opnaði á S20 um miðjan mars, held að það hafi bara verið S20 til að byrja með en dettur örugglega inn fyrir restina hægt og rólega.

TBH þá er ég ótrúlega lítið spenntur fyrir 5G sem notandi á höfuðborgarsvæðinu. LTE+ er bara ótrúlega fínt fyrir mig og ég man ekki eftir að hafa lent í vanda með farsímanet í nokkur ár. 5G er geggjað fyrir notendur þar sem það er lélegt framboð á ljósleiðaratengingum (bæði á höfuðborgarsvæðinu og í "smábæjunum" sem voru taldir upp hér fyrir ofan) þar sem þetta getur orðið miklu betra heimanet en koparlínu tengingar.


Ég var með 5G virkt í mínum síma löngu fyrir það. Það er mikill hraðamunur á 4G+ og 5G (SA mode). Sérstaklega ef 5G er að nota 3,7Ghz rásir sem eru stærstar í þessu.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3605
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf dori » Þri 13. Apr 2021 16:26

jonfr1900 skrifaði:
dori skrifaði:TBH þá er ég ótrúlega lítið spenntur fyrir 5G sem notandi á höfuðborgarsvæðinu. LTE+ er bara ótrúlega fínt fyrir mig og ég man ekki eftir að hafa lent í vanda með farsímanet í nokkur ár. 5G er geggjað fyrir notendur þar sem það er lélegt framboð á ljósleiðaratengingum (bæði á höfuðborgarsvæðinu og í "smábæjunum" sem voru taldir upp hér fyrir ofan) þar sem þetta getur orðið miklu betra heimanet en koparlínu tengingar.


Ég var með 5G virkt í mínum síma löngu fyrir það. Það er mikill hraðamunur á 4G+ og 5G (SA mode). Sérstaklega ef 5G er að nota 3,7Ghz rásir sem eru stærstar í þessu.

Það er klárlega fullt af hraðamun, bara ekkert sem skiptir mig máli í notkun á símanum mínum. Ég er samt að fá (best case auðvitað) allt að 580Mbps niður og 65Mbps upp hérna í kringum laugardalinn á LTE+ en svo er algengt að fá sirka 150/30.

Það er ekkert sem ég man eftir að hafa gert á símanum mínum þar sem það er raunverulegur munur á upplifun í notkun á símanum þegar ég er með ~500/50 eða ~100/20




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf jonfr1900 » Fim 15. Apr 2021 04:55

Síminn er kominn nálægt því að brjóta skilyrði fyrir 5G tíðnileyfinu. Þar sem það var gefið út 30. Apríl 2020 og þeir höfðu eftir það 12 mánuði til að koma 5G kerfinu í gang hjá sér en ekkert gerist hjá Síminn með 5G.

Tíðniheimild fyrir 5G hjá Síminn. (pdf skjal)




wicket
FanBoy
Póstar: 763
Skráði sig: Mán 07. Sep 2009 09:30
Reputation: 47
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf wicket » Fim 15. Apr 2021 12:43

Finnst þér það líklegt? Síminn er með virka senda í einhverjum tilraunafasa segja þau, geta væntanlega auðveldlega opnað þá ef svo ber undir. Svo getur maður ímyndað sér að frestir sem þessir eru auðveldlega lengdir sökum heimsfaraldurs.

jonfr1900 skrifaði:Síminn er kominn nálægt því að brjóta skilyrði fyrir 5G tíðnileyfinu. Þar sem það var gefið út 30. Apríl 2020 og þeir höfðu eftir það 12 mánuði til að koma 5G kerfinu í gang hjá sér en ekkert gerist hjá Síminn með 5G.

Tíðniheimild fyrir 5G hjá Síminn. (pdf skjal)




Höfundur
jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2347
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 271
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Staða 5G farsímaneta á Íslandi

Pósturaf jonfr1900 » Fim 15. Apr 2021 13:59

wicket skrifaði:Finnst þér það líklegt? Síminn er með virka senda í einhverjum tilraunafasa segja þau, geta væntanlega auðveldlega opnað þá ef svo ber undir. Svo getur maður ímyndað sér að frestir sem þessir eru auðveldlega lengdir sökum heimsfaraldurs.

jonfr1900 skrifaði:Síminn er kominn nálægt því að brjóta skilyrði fyrir 5G tíðnileyfinu. Þar sem það var gefið út 30. Apríl 2020 og þeir höfðu eftir það 12 mánuði til að koma 5G kerfinu í gang hjá sér en ekkert gerist hjá Síminn með 5G.

Tíðniheimild fyrir 5G hjá Síminn. (pdf skjal)


Það er ekkert rosaleg eftirfylgni á þessum tíðnileyfum á Íslandi fyrr en eftir langt ferli miðað við það sem ég hef séð þegar fyrirtæki tapa tíðnileyfi. Annars er alltaf hægt að prufa allt endalaust og eingöngu svo mikið. Þetta er greinilega mjög sérstök stefna hjá Síminn sem er þarna.