Síða 2 af 3

Re: Windows 11 announcement

Sent: Fös 25. Jún 2021 17:53
af jonfr1900
Það er einnig að koma fram núna að Windows 11 mun aðeins styðja ákveðið gamla örgörva.

Hérna eru listanir yfir það sem er stutt í Windows 11.

Windows 11 Supported AMD Processors
Windows 11 Supported Intel Processors

Re: Windows 11 announcement

Sent: Fös 25. Jún 2021 17:55
af dadik
Eins og áður hefur komið fram eru þetta ekki persónugreinanleg gögn sem er verið að senda - nema lagst sé í víðtækar aðgerðir til að greina þau. Einhvernvegin efast ég um að það sé takmarkið.

Núna senda bæði iOS og Android frá sér telemetry við fjölmörg tækifæri og enginn virðist gera athugasemd við það.

btw - hversu mikils virði heldurðu að driverasamsetningin á vélinni hjá þér sé? Ég skal borga þér 10 krónur fyrir þessar upplýsingar.

Re: Windows 11 announcement

Sent: Fös 25. Jún 2021 19:03
af upg8
Flest skipti sem ég lendi í að hjálpa fólki með tölvur heima hjá sér þá tengist það því að fólk þrjóskast við og neitar að setja upp Microsoft account hjá sér, alveg óþolandi nútildags eins og það er þægilegt. TPM hefur annars ekker með Microsoft account að gera heldur er það öryggisbúnaður sem hefði fyrir löngu átt að vera staðalbúnaður og fleiri en átta sig á því eru í rauninni með TPM búnað í tölvunni hjá sér eða tengi til að uppfæra móðurbróðið með kubbi sem reyndar eru komnir upp í scalper verð strax síðan í gær

Re: Windows 11 announcement

Sent: Fös 25. Jún 2021 19:21
af TheAdder
Það er náttúrulega hvers og eins hvort þeir eru á móti eða með gagnasöfnun tæknirisanna.
Ég er pínu miffaður yfir að það sé verið að þvinga mann til þess að nota MS account á Windows, án nokkurrar haldbærrar ástæðu fyrir notandann.

Re: Windows 11 announcement

Sent: Fös 25. Jún 2021 20:12
af brain

Re: Windows 11 announcement

Sent: Lau 26. Jún 2021 02:39
af jonfr1900
Síðan krefst uppsetning Windows 11 aðeins 64GB af harða diska plássi.

Re: Windows 11 announcement

Sent: Lau 26. Jún 2021 07:54
af depill
nonesenze skrifaði:hlakka til að prufa þetta og setja þetta upp, skil ekki alveg þetta upplýsinga safn paranoju, hvað hafið þið svona mikið að fela? allar mínar upplýsingar meiga alveg liggja einhverstaða bara ef það er ekki verið að misnota þær. ég fíla alveg að það sé verið að auglýsa mér eitthvað sem ég hef áhuga á en ekki eitthvað random stuff, að vera með microsoft account og t.d. google account er bara þæginlegt sérstaklega ef þeir synca saman, android app og svona verður líka flott að hafa í w11, multi desktop fyrir 2x skjái

Arguing that you don't care about the right to privacy because you have nothing to hide is no different than saying you don't care about free speech because you have nothing to say.

Þetta er spurning um control og persónufrelsi og fólk á ekki að gefa eftir eina sek af því. Ég er samt engan vegin saklaus, keyri á Macca, nota iPhone, er með iCloud, O365 o.s.frv. þetta vond þróun.

Re: Windows 11 announcement

Sent: Lau 26. Jún 2021 12:10
af Hjaltiatla
Fannst þetta frekar boring kynning, en alltaf gott að fylgjast með.
Fannst lítið gefið upp um samhæfingu við Office365 og Windows virtual desktop og remote öpp .
Finnst það mest spennandi möguleikinn þ.e að geta verið með stýrikerfið aðgengilegt á öllum tækjum og nota Windows virtual desktop.
En leyfismál hafa alltaf verið frekar weird hjá Microsoft og ég t.d átta mig ekki ennþá hvað maður fær útúr því að vera t.d með business premium áskrift þegar maður er að vilja nota Windows virtual desktop (kemur fram að það sé innifalið á þessari síðu undir "Apps and services included" ef maður er með Business premium áskrift)
https://www.microsoft.com/en-ww/microsoft-365/business/microsoft-365-business-premium?market=is

Re: Windows 11 announcement

Sent: Lau 26. Jún 2021 14:44
af Zethic

Er W11 insider komið út ?

En díses strákar ef þið eruð þetta paranoid yfir Microsoft account þá notiði bara linux og hættið þessu niðurdrepandi væli. Ég geri fastlega ráð fyrir að þið séuð með takkasíma, með engar ljósaperur heima hjá ykkur og gangið um með álhatt

jonfr1900 skrifaði:Síðan krefst uppsetning Windows 11 aðeins 64GB af harða diska plássi.

Við uppfærslur geymir stýrikerfið fyrri útgáfu til að hægt sé að rúlla til baka. Þannig að þetta er tvöfallt OS ásamt download space

Re: Windows 11 announcement

Sent: Lau 26. Jún 2021 17:08
af FreyrGauti
Engar mega stórar breytingar í þessu frá W10, eina sem fengi mig til að vilja uppfæra er DirectStorage en þessi krafa um TPM module er dick move gagnvart fólki sem er ekki með OEM vélar.

Núna verður áhugavert að sjá hve langt líður í að nýjar útgáfur af móðurborðum fyrir DYI markaðinn sem eru með TPM module koma út.

Ég allavega þarf að bíða með W11 þangað til að ég uppfæri móðurborð og örgjörva næst, vantar TPM header á núverandi móðurborð, sýnist honum hafa verið fórnað til að setja physical takka á það fyrir power, reset og overclocking... :lol:

Re: Windows 11 announcement

Sent: Lau 26. Jún 2021 17:33
af Zethic
FreyrGauti skrifaði:Engar mega stórar breytingar í þessu frá W10, eina sem fengi mig til að vilja uppfæra er DirectStorage en þessi krafa um TPM module er dick move gagnvart fólki sem er ekki með OEM vélar.

Hélt það sama þar sem ég sá ekki neitt TPM í BIOS. Er með Asus Prime Z390 móðurborð og intel örgjörva
Intel PTT == TPM
Þurfti að breyta úr "discrete TPM" í minnir mig "firmware TPM"
Checkaðu líka hvort boot diskurinn sé GPT
https://www.reddit.com/r/pcgaming/comme ... a/h2xdz95/

Eyddi einhverjum 2 tímum því ég trúði ekki að M$ væri bara að gefa DIY heiminum puttann. En þetta hefur víst margra ára aðdraganda og ef móðurborðið styður ekki TPM þá eiga örgjörvarnir að styðja (Intel PTT og AMD fTPM) ef ég skil þetta rétt

Re: Windows 11 announcement

Sent: Lau 26. Jún 2021 17:43
af nonesenze
held að 8th gen og nýrri intel séu með byggt inn tpm, svo þeir sem eru með 7th get og eldri þurfa sennilega module á móðurborðið til að fá þetta til að virka, annars fara 7th gen og eldra að detta út úr MS heiminum, samt nokkur ár í það

Re: Windows 11 announcement

Sent: Sun 27. Jún 2021 17:23
af Dúlli
Þetta er samt helvíti slappt allt þetta viðbótardrasl.

ég er til dæmis en á keyra á i5 3570 örgjörva og hann dugar mér í mest allt sem ég þarf til. Er maður virkilega þvingaður í upgrade á tölvunni fyrir þetta nýja rusl.

Bíð bara þar til það lekur windows 11 á netið sem er ekki með þessu heavy kröfum.

Komast bara yfir special purpose útgáfu. https://www.tomshardware.com/news/windo ... se-systems

Re: Windows 11 announcement

Sent: Sun 27. Jún 2021 19:25
af audiophile
Ég er pínu skúffaður yfir því að það sé krafa að hafa MS account núna. Meira að segja Mac leyfir þér að gera local aðgang.

Re: Windows 11 announcement

Sent: Sun 27. Jún 2021 19:50
af FreyrGauti
Zethic skrifaði:
FreyrGauti skrifaði:Engar mega stórar breytingar í þessu frá W10, eina sem fengi mig til að vilja uppfæra er DirectStorage en þessi krafa um TPM module er dick move gagnvart fólki sem er ekki með OEM vélar.

Núna verður áhugavert að sjá hve langt líður í að nýjar útgáfur af móðurborðum fyrir DYI markaðinn sem eru með TPM module koma út.

Ég allavega þarf að bíða með W11 þangað til að ég uppfæri móðurborð og örgjörva næst, vantar TPM header á núverandi móðurborð, sýnist honum hafa verið fórnað til að setja physical takka á það fyrir power, reset og overclocking... :lol:

Hélt það sama þar sem ég sá ekki neitt TPM í BIOS. Er með Asus Prime Z390 móðurborð og intel örgjörva
Intel PTT == TPM
Þurfti að breyta úr "discrete TPM" í minnir mig "firmware TPM"
Checkaðu líka hvort boot diskurinn sé GPT
https://www.reddit.com/r/pcgaming/comme ... a/h2xdz95/

Eyddi einhverjum 2 tímum því ég trúði ekki að M$ væri bara að gefa DIY heiminum puttann. En þetta hefur víst margra ára aðdraganda og ef móðurborðið styður ekki TPM þá eiga örgjörvarnir að styðja (Intel PTT og AMD fTPM) ef ég skil þetta rétt

Já, rétt hjá þér, eftir fikt og dund þá er TPM up and running af CPU. :happy

Fann þetta þegar að ég fór að googla þetta meira, búið að vera tölvert lengi í boði.
"Intel’s PTT was Introduced in 2013 on select fourth-generation Intel Core processors and chipsets, including Intel Haswell ULT multichip packages, as well as on Atom-based, system-on-a-chip solutions like Bay Trail. PTT enables low-cost and low-power devices to support the same root of trust concepts enabled by hardware-based TPM. Furthermore, it supports all of Microsoft’s requirements for firmware Trusted Platform Module (fTPM) 2.0."

Re: Windows 11 announcement

Sent: Mán 28. Jún 2021 22:14
af emil40
getur einhver hjálpað mér að stilla tpm 2.0 hjá mér ?

Re: Windows 11 announcement

Sent: Þri 29. Jún 2021 08:38
af Dropi
emil40 skrifaði:getur einhver hjálpað mér að stilla tpm 2.0 hjá mér ?

fTPM hét það á mínu Asus X570 Prime borði í vinnuni, keyrði svo í run "tpm.msc" til að staðfesta virknina. Þurfti að breyta úr "Discrete" yfir í "Firmware" og þá rauk þetta í gang.

Re: Windows 11 announcement

Sent: Þri 29. Jún 2021 14:32
af emil40
Dropi skrifaði:
emil40 skrifaði:getur einhver hjálpað mér að stilla tpm 2.0 hjá mér ?

fTPM hét það á mínu Asus X570 Prime borði í vinnuni, keyrði svo í run "tpm.msc" til að staðfesta virknina. Þurfti að breyta úr "Discrete" yfir í "Firmware" og þá rauk þetta í gang.

gætir þú leiðbeint mér um hvernig það er gert ?

Re: Windows 11 announcement

Sent: Þri 29. Jún 2021 16:34
af TheAdder
emil40 skrifaði:
Dropi skrifaði:
emil40 skrifaði:getur einhver hjálpað mér að stilla tpm 2.0 hjá mér ?

fTPM hét það á mínu Asus X570 Prime borði í vinnuni, keyrði svo í run "tpm.msc" til að staðfesta virknina. Þurfti að breyta úr "Discrete" yfir í "Firmware" og þá rauk þetta í gang.

gætir þú leiðbeint mér um hvernig það er gert ?

Fylgdu þessum leiðbeiningum:

https://www.youtube.com/watch?v=HKpD-VUgNVk

Re: Windows 11 announcement

Sent: Þri 29. Jún 2021 16:49
af Zethic
Insider DEV buildið er komið út. Óvenjulega stöðugt og þetta gæti mögulega orðið besta Windows útgáfan til þessa... ennnnnnnn sem windows kerfisstjóri þá er ég skeptískur þangað til maður prufar þetta á domaini

Re: Windows 11 announcement

Sent: Þri 29. Jún 2021 20:39
af emil40
TheAdder skrifaði:
emil40 skrifaði:
Dropi skrifaði:
emil40 skrifaði:getur einhver hjálpað mér að stilla tpm 2.0 hjá mér ?

fTPM hét það á mínu Asus X570 Prime borði í vinnuni, keyrði svo í run "tpm.msc" til að staðfesta virknina. Þurfti að breyta úr "Discrete" yfir í "Firmware" og þá rauk þetta í gang.

gætir þú leiðbeint mér um hvernig það er gert ?

Fylgdu þessum leiðbeiningum:

https://www.youtube.com/watch?v=HKpD-VUgNVk

þetta er nákvæmlega það sem ég gerði

Re: Windows 11 announcement

Sent: Þri 29. Jún 2021 21:09
af emil40
Takk fyrir hjálpina. Ég fann hjá kísildal þetta Infenion TPM V2.0 öryggiseining

Infenion TPM V2.0 öryggiseining

https://kisildalur.is/category/21/products/2134

Ég held að þetta sé í fyrsta skipti í mörg ár sem að ég nota bækling sem fylgir móðurborði :)

Re: Windows 11 announcement

Sent: Sun 04. Júl 2021 03:32
af emil40
Hérna er smá fyrir þá sem vilja gera clean install á windows 11 án þess að nota tpm

https://techpp.com/2021/06/30/how-to-in ... -2-bypass/

Ég gerði þetta við mína tölvu og get staðfest að þetta svínvirkar :) Til staðfestingar sendi ég screenshot hérna með :) Njótið vel :D

Re: Windows 11 announcement

Sent: Sun 04. Júl 2021 10:43
af Dúlli
emil40 skrifaði:Hérna er smá fyrir þá sem vilja gera clean install á windows 11 án þess að nota tpm

https://techpp.com/2021/06/30/how-to-in ... -2-bypass/

Ég gerði þetta við mína tölvu og get staðfest að þetta svínvirkar :) Til staðfestingar sendi ég screenshot hérna með :) Njótið vel :D

En hvernig er með activcation ? þarftu ekki að virkja draslið ?

Re: Windows 11 announcement

Sent: Sun 04. Júl 2021 11:19
af dadik
It is possible to activate Windows 11 with Windows 10 keys. And because you can activate Windows 10 with Windows 7, 8, 8.1 you can also activate Windows 11 with these keys.