Síða 1 af 1

Setja upp þráðlausa netbrú

Sent: Mán 30. Ágú 2021 17:34
af Krissinn
Ég þarf smá hjálp við að setja upp þráðlausa netbrú milli 2ja bygginga. Húsnæðin eru í sjónlínu, mig langar að helst að hafa þetta svona:

Húsnæði 1,- Router - Endurvarpi/útisendir ---- Húsnæði 2,- Endurvarpi/útisendir (móttaka) - Aðgangspunktur.

Það væri gott ef loftlínan milli bygginga væri ekki aðgengileg, því mig langar að hafa aðgangspunkt í húsnæði 2 fyrir wifi merki innanhúss. Ég vona að þetta sé skiljanlegt 8-[

Re: Setja upp þráðlausa netbrú

Sent: Mán 30. Ágú 2021 17:40
af hagur
Hvað vantar þig hjálp við? Að velja búnaðinn?

Re: Setja upp þráðlausa netbrú

Sent: Mán 30. Ágú 2021 20:24
af Krissinn
hagur skrifaði:Hvað vantar þig hjálp við? Að velja búnaðinn?


Meðal annars það, líka hvernig best væri að setja þetta upp.

Re: Setja upp þráðlausa netbrú

Sent: Mán 30. Ágú 2021 21:54
af hagur
Ég myndi skoða þetta:

https://store.ui.com/products/unifi-bui ... ing-bridge

Uppsetningin á þessu virðist vera mjög einföld líka.

Re: Setja upp þráðlausa netbrú

Sent: Þri 31. Ágú 2021 01:07
af Fumbler
Sæll
Unifi er alveg málið hérna, en algjör óþarfi að fara í 400$ pakka taktu 2 svona á 67$ hvor
https://store.ui.com/collections/operat ... beam-16-db
og svo ap(https://www.tl.is/product/unifi-access-punktur-ac-lite) til að setja á endann


Þessir ætti að draga auðveldlega 2 - 5 KM en ef þú þarft að ná lengra þá eru stærri tæki hér
https://store.ui.com/collections/operat ... ax-devices

hvað þarftu mikinn hraða á milli?


t.d. þessi hér er með 2 eth port, hægt að tengja ap beint við mótakaran og þá þarftu bara einn* poe injector fyrir bæði tækinn
https://store.ui.com/collections/operat ... m-5ac-gen2
*einn sem er gerður fyir 2 tæki

Re: Setja upp þráðlausa netbrú

Sent: Þri 31. Ágú 2021 02:39
af jonfr1900
Þú þarft að gera geislann eins þröngan og hægt er og setja þetta upp í kerfinu sendir - móttakari. Svipað og þú leggur upp með. Fjarlægðin er eitthvað sem þú þarft að athuga, þar sem aflið á 2,4Ghz rásum er aðeins 100mW og drægni er að jafnaði ekki meira en 1 km í flestum tilfellum. Í Reykjavík og öðru þéttbýli eru flestar rásir í notkun og það dregur drægni yfir miklar fjarlægðir í svona tengingum. Í sveitum á Íslandi er þetta ekki vandamál, enda flest allt 2,4Ghz WiFi tíðnisviðið laust þar.

Því lengra sem er á milli punkta í kerfinu, því meira skiptir nákvæminn máli. Þannig að skekkja upp á 0,5° (gráður) getur haft mikið að segja. Þar sem það getur fært geislann um marga metra og komið í veg fyrir móttöku.

Re: Setja upp þráðlausa netbrú

Sent: Þri 31. Ágú 2021 13:53
af Rafurmegni
Er þetta ekki verkefni fyrir Nanostation?

Kaupa tvö svona stykki:

https://verslun.origo.is/Netbunadur-og- ... 555.action

Þetta er 5 GHz kerfi og geislinn er 30° minnir mig þannig að það þarf ekki að vera súper nákvæmur með miðið eins og á Nanobeam. Svo væri líklega skynsamlegt að hafa aðgangspunktinn á fjarstöðinni bara sér tæki (upp á staðsetningu í húsnæðinu).

kv, Megni

Re: Setja upp þráðlausa netbrú

Sent: Fös 03. Sep 2021 13:22
af Krissinn
Takk fyrir aðstoðina :)