Síða 1 af 2

Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 18:15
af Einar Ásvaldur
Hvað segja menn er ekki kominn tími á app fyrir vaktina sem maður myndi fá tilkynningar og svona beint í símann

Hugsunin er ef það er einhver stórkostnaður við að gera appið að það væri hægt að hafa svona (parteon/kikstarter) sem menn geta styrkt kostnaðinn frá 100kr upp í það sem þeir tíma að borga.
Segjum að það séu um 1000 á vaktinni og myndu leggja í 100kr á mann væri það komið í 100.000kr

Eða hugsanlega fá styrki frá þessum helstu tölvu verslunum því vaktin er ein stór auglýsing fyrir þessar verslanir

Er þetta kanski hugmynd sem hefur komið framm áður og ekki verið talin betri en vefsíða

P.S. Ef möguleki væri að hafa þá appið addfree allavega fyrir þá einstaklinga sem myndu styrka í byrjun

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 18:26
af ColdIce
+1

Myndi styrkja

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 19:10
af beggi90
Myndi persónulega ekki nota það, nenni ekki að hafa app fyrir hverja vefsíðu sem ég nota.

Hver er kosturinn við app annar en notifications?

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 19:26
af Einar Ásvaldur
beggi90 skrifaði:Myndi persónulega ekki nota það, nenni ekki að hafa app fyrir hverja vefsíðu sem ég nota.

Hver er kosturinn við app annar en notifications?

Gæti verið þæginlegra fyrir marga, hægt að hafa spjall grúbbu inní því sem væri þá áhuga hópar um leiki/tækin og þess háttar,
möguleki á þæginlegra aðgenig að stillingum og spjöllum, getur verið svo markir kostir og gallar jafnvel í leiðinni.

En aðal hugsunin var að geta fenigið tilkyningar.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 19:30
af Lexxinn
Virkar bara ágætlega í símanum þau fáu skipti sem ég nota þetta þannig.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 21:05
af appel
Það er spurning hvað þú meinar með "app fyrir vaktina", því það eru allnokkur kerfi á vaktinni, gagnagrunnar, forum, og allskonar dót í gangi.

Forum virkar ágætlega í mobile browser.
En þegar maður er að púsla saman vél þá er maður kannski frekar að gera það í desktop mode en mobile mode.
Verðvaktin mætti vera betri í mobile þó.

Viltu fá notifications um allar breytingar, nýja pósta og hvaðeina? :D ekkert pirrar meira mig meira en óþarfa notifications.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 21:30
af Einar Ásvaldur
appel skrifaði:Það er spurning hvað þú meinar með "app fyrir vaktina", því það eru allnokkur kerfi á vaktinni, gagnagrunnar, forum, og allskonar dót í gangi.

Forum virkar ágætlega í mobile browser.
En þegar maður er að púsla saman vél þá er maður kannski frekar að gera það í desktop mode en mobile mode.
Verðvaktin mætti vera betri í mobile þó.

Viltu fá notifications um allar breytingar, nýja pósta og hvaðeina? :D ekkert pirrar meira mig meira en óþarfa notifications.

Fá bara tilkynningar þegar maður fær skilaboð eða þegar það er commentað á pósta hjá manni og svoleiðis,
ég persónulega er oftast í símanum á vaktinni en ekki í tölvu nema stundum á kvöldin.

Vill geta verið fljótur að svara skilaboðum an þess að þurfa að vera á hverri mín að checka hvort það sé komin skilaboð.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 21:50
af appel
Einar Ásvaldur skrifaði:

Er þetta ekki inni?

Undir mitt stjórnborð, smellir á nafnið þitt uppi til hægri. Þar er stjórnborðið mitt.
Þar er svo stillingar stjórnborðs.
Svo Breyta valkostum tilkynninga.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 21:56
af hagur
Nei takk. Sé enga þörf fyrir þetta, ef ég á að vera "brutally honest".

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 22:25
af Cascade
Sé sjálfur enga þörf fyrir appi

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 22:55
af GuðjónR
Við eigum alltaf eftir að updeita í næsta version af phpBB ... veit ekki hversu betra það er en það er alla vega nýrra.
Svo verður Vaktin.is 20 ára á næsta ári...það væri gaman að fríska upp á hana fyrir afmælið.
Við vorum eitt sinn með app, 3d. party Tapatalk sem var alveg ágætt þar til þeir breyttu því í spyware.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 23:32
af bjoggi
Held frekar að efla mobile formið á vefsíðunni sjálfri sé málið, app nú til dags er ekki beint vettvangur fyrir spjallborð að mínu mati.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fim 16. Des 2021 23:47
af oliuntitled
GuðjónR skrifaði:Við eigum alltaf eftir að updeita í næsta version af phpBB ... veit ekki hversu betra það er en það er alla vega nýrra.
Svo verður Vaktin.is 20 ára á næsta ári...það væri gaman að fríska upp á hana fyrir afmælið.
Við vorum eitt sinn með app, 3d. party Tapatalk sem var alveg ágætt þar til þeir breyttu því í spyware.

Bara plís ekki gleyma dark mode :D

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fös 17. Des 2021 10:03
af SolviKarlsson
Ég les vaktina mörgum sinnum á dag og 90% skiptanna er það í síma. Það virkar bara þokkalega og maður tekur alveg eftir notifications. En skil vissulega löngunina hjá einhverjum að fá push notifications þegar eitthvað gerist til að bregðast fyrr við en ekki að þurfa kíkja inn af fyrra bragði.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fös 17. Des 2021 10:09
af Daz
Er ekki hægt að stilla nú þegar á vaktinni þannig að maður fái tölvupóstskilaboð þegar ákveðnir atburðir gerast? Er það ekki nægjanleg push notifciation?

Ég er annars almennt á móti því að breyta nothæfum vefsíðum í app, nema vefsíðan sé algerlega ónothæf í mobile browser og lagfæring á því ekki möguleg eða fyrirsjánaleg.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fös 17. Des 2021 11:16
af gnarr
Einar Ásvaldur skrifaði:Segjum að það séu um 1000 á vaktinni og myndu leggja í 100kr á mann væri það komið í 100.000kr

Að þróa svona app mun kosta að lágmarki 5 milljón krónur og líklega nær 10-15 milljónum.

Það er hinsvegar spurning hvort að það sé ekki til eitthvað opensource extension fyrir phpBB sem bætir við API fyrir spjall virknina og opensource React Native eða Flutter app sem getur talað við þann API. Ef það er til, þá er hægt að gera þetta fyrir lítinn pening.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Fös 17. Des 2021 17:24
af hfwf
Hlýtur bara ver ahægt að gera PWA útgáfu af vaktin og þal fá push notification þannig.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Lau 18. Des 2021 00:45
af urban
gnarr skrifaði:
Einar Ásvaldur skrifaði:Segjum að það séu um 1000 á vaktinni og myndu leggja í 100kr á mann væri það komið í 100.000kr

Að þróa svona app mun kosta að lágmarki 5 milljón krónur og líklega nær 10-15 milljónum.

Nú er staðan þannig að ég hef alveg bara akkúrat ekki neitt vit á því að útbúa app.

En hérna. 5 - 15 milljónir.
Afhverju á þetta að kosta svona rosalega upphæð ?
við erum að tala um ca tvöföld árslaun verkamanna.
ok, það eru bara verkamenn.

Við erum samt að tala um heilt ár.
That being said, ég sé engan tilgang í appi, akkúrat engan.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Lau 18. Des 2021 14:18
af Climbatiz
skrítið að það myndi kosta pening að búa til app fyrir vaktina, meina, það er víst ekki mikið mál að læra búa til einfalt app, það að borga hunduðir þúsunda í eitthvað petproject er alveg útí hött

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Lau 18. Des 2021 14:47
af Viktor
Fín hugmynd, en væri líklega best að skipta yfir í eitthvað annað en phpbb.

Væri aðallega til í að þurfa ekki að logga mig inn stanslaust :)

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Lau 18. Des 2021 18:27
af Klemmi
Climbatiz skrifaði:skrítið að það myndi kosta pening að búa til app fyrir vaktina, meina, það er víst ekki mikið mál að læra búa til einfalt app

Ég veit ekki hvort þú ert að grínast eða ekki :o

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Lau 18. Des 2021 18:31
af Mossi__
Hví?

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Lau 18. Des 2021 18:51
af TheAdder
Af því að smíði á einu appi getur tekið tugi eða hundruði klukktíma.

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Lau 18. Des 2021 19:41
af hagur
Climbatiz skrifaði:skrítið að það myndi kosta pening að búa til app fyrir vaktina, meina, það er víst ekki mikið mál að læra búa til einfalt app, það að borga hunduðir þúsunda í eitthvað petproject er alveg útí hött

Viltu ekki bara taka þetta að þér þá, fyrst þetta er svona einfalt? Gerir þetta bara pro bono, þetta er bara pet project.

Ef þetta var sarcasm hjá þér, þá dreg ég þetta til baka. Sarcasm-detectorinn minn pípti ekki í þetta skipti, aldrei þessu vant :sleezyjoe

Re: Hugsanlegt Vaktin.is App

Sent: Lau 18. Des 2021 23:09
af Mossi__
TheAdder skrifaði:Af því að smíði á einu appi getur tekið tugi eða hundruði klukktíma.

jah, ég átti við: af hverju að gera App fyrir vaktina.