Síða 1 af 1

cjs-cdkeys

Sent: Mið 06. Apr 2022 17:31
af dedd10
Hefur einhver reynslu af því að kaupa kóða á https://www.cjs-cdkeys.com ?

Er að spá í eldri office pakka til að nota á heimilistölvu, sé þá á fínu verði þarna, er bara að spá hvort þetta sé alveg legit síða?

Re: cjs-cdkeys

Sent: Mið 06. Apr 2022 17:56
af ElvarP
Held ég pantaði einu sinni þarna einn leik og það virkaði allavegagana fínt á tímanum.

Re: cjs-cdkeys

Sent: Mið 06. Apr 2022 22:48
af Hrotti
Ég fékk notaðan lykil hjá þeim og var í tómu brasi við að fá hann endurgreiddan, það gekk á endanum en þeir leiddu mig endalaust áfram með einhverju autoreply kjaftæði. Ég hefði bara gefist upp ef þetta hefði ekki farið svona mikið í taugarnar á mér. Hef lent í svipuðu með G2A, money back guarantee hjá þeim er bara scam, þarft að kæra til lögreglu (myndi ganga vel fyrir 30$ eða þannig) og endalaust kjaftæði.

Viðbót: það þýðir ekki að allt þarna sé eitthvað svindl, bara ekki búast við neinu ef seljandinn svíkur þig.

Re: cjs-cdkeys

Sent: Fim 07. Apr 2022 07:29
af jardel
dedd10 skrifaði:Hefur einhver reynslu af því að kaupa kóða á https://www.cjs-cdkeys.com ?

Er að spá í eldri office pakka til að nota á heimilistölvu, sé þá á fínu verði þarna, er bara að spá hvort þetta sé alveg legit síða?


Ég hef pantað marg oft hjá þeim. Lykilarnir skila sér alltaf mjög fljótt. Hef ekkert nema gott að segja af minni reynslu af þeim.