Síða 1 af 1

Prenta út möppufyrirkomulag

Sent: Mið 04. Maí 2022 13:00
af falcon1
Ég er dáldið hræddur um að tölvan mín sé eitthvað að fara að klikka... búin að vera skrítin í dag.

Hvernig getur maður prentað út möppufyrirkomulagið (folder structure) hjá sér? Er að nota windows 11

Re: Prenta út möppufyrirkomulag

Sent: Mið 04. Maí 2022 13:09
af worghal
getur notað Tree commandið í CMD

Kóði: Velja allt

Graphically displays the folder structure of a drive or path.

TREE [drive:][path] [/F] [/A]

   /F   Display the names of the files in each folder.
   /A   Use ASCII instead of extended characters.


gætir til dæmis gert eftirfarandi

Kóði: Velja allt

tree c:\ > c:\temp\tree.txt

þá færðu tré yfir allar möppur og vistar í notepad skjal, bætir við /F til að fá öll skjöl líka.

Re: Prenta út möppufyrirkomulag

Sent: Mið 04. Maí 2022 14:08
af falcon1
ég fæ svona tákn í txt skránni

³ ³ ÃÄÄÄ

er hægt að breyta því eða losna við það?

Re: Prenta út möppufyrirkomulag

Sent: Mið 04. Maí 2022 14:12
af worghal
falcon1 skrifaði:ég fæ svona tákn í txt skránni

³ ³ ÃÄÄÄ

er hægt að breyta því eða losna við það?

þarft að bæta við /A.

Kóði: Velja allt

tree /A  c:\ > c:\temp\tree.txt