Síða 1 af 1

Windows 11 vill ekki virkjast

Sent: Þri 07. Mar 2023 21:46
af Frost
Kæru Vaktarar,

Ég var að versla Windows 11 leyfi en ég get með engu móti fengið það til að virkjast.
Fæ bara þetta upp. Hafið þið lent í svipuðum vandamálum með að virkja W11?

Mynd

Re: Windows 11 vill ekki virkjast

Sent: Þri 07. Mar 2023 22:03
af Hizzman
Hvar keyptiru leyfið?

Það er reyndar hlægilega auðvelt að 'krakka' windows! MAS eitthvað ef ég man rétt.

Re: Windows 11 vill ekki virkjast

Sent: Þri 07. Mar 2023 22:04
af Hausinn
Hizzman skrifaði:MAS eitthvað ef ég man rétt.

Microsoft Activation Script eftir MassGravel.

Re: Windows 11 vill ekki virkjast

Sent: Þri 07. Mar 2023 22:14
af Frost
Keypt í gegnum Windows Store...

Re: Windows 11 vill ekki virkjast

Sent: Þri 07. Mar 2023 23:42
af Frost
Hizzman skrifaði:Hvar keyptiru leyfið?

Það er reyndar hlægilega auðvelt að 'krakka' windows! MAS eitthvað ef ég man rétt.


Hausinn skrifaði:
Hizzman skrifaði:MAS eitthvað ef ég man rétt.

Microsoft Activation Script eftir MassGravel.


Takk fyrir ábendinguna. Ég fékk leyfið endurgreitt og þetta kláraði málið á innan við mínútu.
Það var mjög erfitt að fylgjast með þegar tech support tók yfir tölvuna mína... Reyndu allt sem ég var búinn að reyna.

Re: Windows 11 vill ekki virkjast

Sent: Mið 08. Mar 2023 02:32
af Hizzman
ha?
reyndi M$ virkja leyfið?
það tókst ekki?
M$ endurgreiddi?
Þú virkjaðir með MAS?

fór þetta svona?

Re: Windows 11 vill ekki virkjast

Sent: Mið 08. Mar 2023 08:05
af Frost
Hizzman skrifaði:ha?
reyndi M$ virkja leyfið?
það tókst ekki?
M$ endurgreiddi?
Þú virkjaðir með MAS?

fór þetta svona?


Já. Þeir reyndu fullt af aðferðum, meðal annars "soft format" á vélinni. Ég gafst upp á þessu og óskaði eftir endurgreiðslu, sagðist ætla að prófa Windows 10. Fékk leyfið endurgreitt því ég hafði keypt það fyrir einum degi.
Prófaði MAS og það virkaði.