Síða 1 af 1

sækja video af síðu

Sent: Þri 25. Júl 2023 09:46
af emil40
Sælir félagar.


Núna er ég að pæla í því hvernig að ég get sótt video af síðu sem er með opin video til 30 júlí. Þetta er https://chessmood.com/ og þeir eru með skáknámskeið þar frí til 30 júlí. Eruð þið með einhverjar hugmyndir fyrir mig hvernig er best fyrir mig að sækja þetta til að ég geti átt þetta ?

Re: sækja video af síðu

Sent: Þri 25. Júl 2023 09:53
af kornelius
https://github.com/yt-dlp/yt-dlp

Ég prufaði og þetta virkar :)

K.

Re: sækja video af síðu

Sent: Þri 25. Júl 2023 10:33
af jericho
Ég hef notað OBS með góðum árangri. Þetta er einfaldlega screen recorder og maður þarf að spila videoið frá upphafi til enda og ýta sjálfur á "stop recording" í lokin (mér finnst best bara að stilla timer á símanum rétt áður en ég þarf að stöðva upptöku).

https://obsproject.com/

Re: sækja video af síðu

Sent: Þri 25. Júl 2023 10:59
af emil40
kornelius skrifaði:https://github.com/yt-dlp/yt-dlp

Ég prufaði og þetta virkar :)

K.



geturðu hjálpað mér með hvernig þetta virkar ? ég er að reyna að skoða það?

Re: sækja video af síðu

Sent: Þri 25. Júl 2023 11:37
af kornelius
emil40 skrifaði:
kornelius skrifaði:https://github.com/yt-dlp/yt-dlp

Ég prufaði og þetta virkar :)

K.



geturðu hjálpað mér með hvernig þetta virkar ? ég er að reyna að skoða það?


Ef þú ert búinn að install'a þá gera t.d.

yt-dlp -F https://chessmood.com/course/scotch-game
þá færðu upp lista sem þú síðan velur úr það myndband sem þú ætlar að sækja t.d.

yt-dlp -f dash-google_mediacdn-video-61063e20 https://chessmood.com/course/scotch-game

Stórt F gefur þér lista og lítið f möguleikann að sækja.

K.

Re: sækja video af síðu

Sent: Þri 25. Júl 2023 15:19
af emil40
prófa þetta takk

Re: sækja video af síðu

Sent: Mið 26. Júl 2023 22:52
af emil40
ég er í einhverju veseni með þetta, er einhver með aðra betri hugmynd ?

Re: sækja video af síðu

Sent: Fim 27. Júl 2023 17:40
af brain
Nota alltaf OBS

eins einfalt og hægt er.

Re: sækja video af síðu

Sent: Fim 27. Júl 2023 19:38
af emil40
brain : það er bara svo rosalega tímafrekt

Re: sækja video af síðu

Sent: Fim 27. Júl 2023 20:23
af JReykdal
emil40 skrifaði:ég er í einhverju veseni með þetta, er einhver með aðra betri hugmynd ?


Ertu ekki pottþétt að keyra þetta í CMD glugga og ert á réttum stað í honum?

Re: sækja video af síðu

Sent: Lau 29. Júl 2023 19:32
af emil40
jú jú í cmd glugga prófaði bæði venjulega og líka með admin