Síða 1 af 1

Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 11:27
af k0fuz
Sælir vaktarar,

Hefur einhver reynslu af góðu SSD/HDD cloning software sem ég get notað í að færa allt af C:/ drifinu yfir á nýjan og stærri SSD og láta svo þennan nýja SSD taka yfir sem C:/ drif.

Ástæðan er sú að ég er svo nýlega búinn að formatta og applya product key fyrir Windows 11 að ég nenni því ekki aftur :megasmile

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 12:04
af Hjaltiatla
Samsung Magician >> mjög einfalt ef þú ert að versla nýjan Samsung SSD disk.
Sumar HDD dokkur eru með "Clone" takka innbyggðum.
Macrium Reflect >> Einfalt í notkun fyrir Windows vélar
Clonezilla >> Flóknara en Macrium Reflect en virkar vel og hentugra ef þú nennir ekki að spá í leyfismálum.

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 12:18
af k0fuz
Hjaltiatla skrifaði:Samsung Magician >> mjög einfalt ef þú ert að versla nýjan Samsung SSD disk.
Sumar HDD dokkur eru með "Clone" takka innbyggðum.
Macrium Reflect >> Einfalt í notkun fyrir Windows vélar
Clonezilla >> Flóknara en Macrium Reflect en virkar vel og hentugra ef þú nennir ekki að spá í leyfismálum.

Samsung Magician, hvað ef ég er með Corsair disk fyrir og kaupi nýjan Samsung disk, virkar það?

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 12:21
af Hjaltiatla
k0fuz skrifaði:

Já, mjög einfalt í notkun.

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 12:39
af audiophile
Samsung Magician/ Data Migration er nánast næg ástæða til að kaupa Samsung SSD yfir aðra framleiðendur. Þetta er svo einfalt og þægilegt forrit fyrir notendur til að spegla gamla diskinn á nýja.

Eru svosem til allskonar önnur tól en annaðhvort kosta eða flóknari í notkun.

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 12:41
af Viktor
Vó ég var einmitt í sömu pælingum og var að kaupa Samsung 980 \:D/

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 13:02
af danniornsmarason
k0fuz skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:Samsung Magician >> mjög einfalt ef þú ert að versla nýjan Samsung SSD disk.
Sumar HDD dokkur eru með "Clone" takka innbyggðum.
Macrium Reflect >> Einfalt í notkun fyrir Windows vélar
Clonezilla >> Flóknara en Macrium Reflect en virkar vel og hentugra ef þú nennir ekki að spá í leyfismálum.

Samsung Magician, hvað ef ég er með Corsair disk fyrir og kaupi nýjan Samsung disk, virkar það?

Var einmitt að kaupa nýjan SSD og var með corsair, færði yfir í nýjan samsung í gær og notaði þetta forrit. mjög auðvelt í notkun

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 13:28
af k0fuz
lovely, þá verður samsung fyrir valinu, takk!

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 15:46
af worghal
virkar magician eingöngu með samsung diskum?

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 16:20
af Hjaltiatla
worghal skrifaði:virkar magician eingöngu með samsung diskum?

Það er hannað sérstaklega fyrir Samsung diska , viðurkenni að ég hef ekki prufað það en miðað við stutt Google þá væri takmarkaður stuðingur að nota tólið á öðrum diskum.

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 17:41
af MrIce
Ég hef notast við Acronis True image þegar ég hef svissað út C drivinu hjá mér. Hef gert þetta 4-5 skipti og so far hef ég ekki lent í neinu veseni með afritin, allt virkar fyrir og eftir.

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 20:43
af emmi
Acronis líka, engin vandamál.

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Sun 24. Sep 2023 21:21
af CendenZ
svo er rosa mikilvægt að nota samsung magician ef þú ert með nvme diska því það er búið að vera firmware vitleysa í gangi hjá samsung.
Ég tapaði 2tb 980 pro.. hann gjöreyðilagðist útaf biluðu firmware-i

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Fös 29. Sep 2023 10:46
af k0fuz
CendenZ skrifaði:svo er rosa mikilvægt að nota samsung magician ef þú ert með nvme diska því það er búið að vera firmware vitleysa í gangi hjá samsung.
Ég tapaði 2tb 980 pro.. hann gjöreyðilagðist útaf biluðu firmware-i

Áhugavert, var að fá mér eins nema 1tb, firmware virtist bara up-to-date. En hvernig lýsti þetta sér hjá þér? leið langur tími þar til hann skemmdist? og var það ekki bara coverað af warranty?

En annars þá virkaði þetta fáránlega vel. Tók um 10min og þá var ég búinn að clone-a og restarta og vola nýji orðinn að C drifinu og gamli að hinu. Virkaði betur en ég þorði að vona :D

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Fös 29. Sep 2023 12:04

Þetta var aðallega bundið við 2TB diska en ef þú ert með up-to-date firmware þá ættiru að vera í góðum málum :)
https://www.pcgamer.com/an-error-in-samsungs-980-pro-firmware-is-causing-ssds-to-die-id-check-your-drive-right-now-tbh/
https://www.reddit.com/r/sysadmin/comments/10teqk1/samsung_980_pros_have_a_firmware_issue_thats/

Re: Besta SSD Cloning software-ið ?

Sent: Fös 29. Sep 2023 12:28
af CendenZ
k0fuz skrifaði:
CendenZ skrifaði:svo er rosa mikilvægt að nota samsung magician ef þú ert með nvme diska því það er búið að vera firmware vitleysa í gangi hjá samsung.
Ég tapaði 2tb 980 pro.. hann gjöreyðilagðist útaf biluðu firmware-i

Áhugavert, var að fá mér eins nema 1tb, firmware virtist bara up-to-date. En hvernig lýsti þetta sér hjá þér? leið langur tími þar til hann skemmdist? og var það ekki bara coverað af warranty?

En annars þá virkaði þetta fáránlega vel. Tók um 10min og þá var ég búinn að clone-a og restarta og vola nýji orðinn að C drifinu og gamli að hinu. Virkaði betur en ég þorði að vona :D

Nei, engin fyrirvari.
Bara allt í einu virkaði ekkert og gat ekki restartað. Gat recoverað allt nema 2 tónleika :)
990 pro þurfti líka nýtt firmware en það var out-of-the-box uppfærsla þannig hann er í lagi, gerði það um leið og ég setti upp windowsið