Síða 1 af 1

Heimagerður 2.5GB router

Sent: Fim 05. Okt 2023 11:21
af DanniFreyr
Langar að fá 2.5Gb tengingu og er að reyna að græja þetta eins ódýrt og mögulegt er.

Er með eina litla itx vél sem mig langaði að keyra OPNSense eða Pfsense á.

Vandmálið er að ég bara með eina pci-e rauf og það er bara 1Gb port á vélinni sjálfri.

Veit einhver hér hvort hægt er að nota eitt pci-e netkort og eitt usb kort ?

Eins og t.d.

https://www.bhphotovideo.com/c/product/ ... l/overview
https://www.bhphotovideo.com/c/product/ ... html/specs

Eða ef það virkar ekki, virkar að vera með eitt dual port kort ?

https://www.bhphotovideo.com/c/product/ ... html/specs

Að lokum, fæst einhvað eins og þetta hérna heima ?

Re: Heimagerður 2.5GB router

Sent: Fim 05. Okt 2023 12:00
af TheAdder
Dual kort ætti alveg að virka, vertu bara viss um að þú veljir kort sem er supported af hugbúnaðinum sem þú notar.

Re: Heimagerður 2.5GB router

Sent: Fim 05. Okt 2023 17:57
af kornelius
Ef þú ert ekki nú þegar búinn að panta þér kort, að þá á ég svona dual 2.5Gbe kort sem þú getur fengið fyrir lítið.
https://www.aliexpress.com/item/1005001 ... 18027KDXWa

K.

Re: Heimagerður 2.5GB router

Sent: Fim 05. Okt 2023 22:30
af Langeygður
Getur fengið þér eitthvað svona fyrir future proofing, https://www.ebay.com/p/28032818923 . Á eftir að kosta aðeins meira. Ef þú leitar aðeins færðu þetta á um $60.

Re: Heimagerður 2.5GB router

Sent: Fös 06. Okt 2023 10:27
af dori
Ég myndi velta aðeins fyrir mér hvað þú ert að reyna að gera. Veistu hvað þessi ITX vél notar mikið rafmagn?

50W kostar ~7000 kr. að hafa í gangi allan sólarhringinn í ár. Venjulegur router notar kannski 10-20W

Re: Heimagerður 2.5GB router

Sent: Lau 07. Okt 2023 04:05
af Langeygður
Frekar en að smíða Itx tölvu sem notase í ekkert nema router, fáðu þér mini tölvu sem höndlar það til dæmis https://www.amazon.com/Ethernet-Firewal ... QKHZV?th=1 notar miklu minna rafmagn.

Re: Heimagerður 2.5GB router

Sent: Sun 08. Okt 2023 18:00
af Viktor

Re: Heimagerður 2.5GB router

Sent: Þri 10. Okt 2023 20:31
af russi
Hvað með Orange Pi 5 Plús, tölva með dual 2.5Gbit portum