Síða 1 af 1

Backup check ?

Sent: Mið 05. Feb 2025 14:55
af falcon1
Nú er ég með öll gögn (myndasöfn, myndbönd o.s.frv. ) afrituð á nokkrum stöðum og stærðin hleypur á milli 10-20tb. Hvernig er best að tékka hvort að afritin séu í lagi eða ekki? Ég fer oft á flakkarana til að opna skrár og svona til að tékka en dugar það?

Re: Backup check ?

Sent: Mið 05. Feb 2025 15:13
af rapport
Alltaf þegar ég fæ mér nýja diska þá restora ég inná þá og tékka hvort gagnamagnið og file count stemmi við gamla diskinn áður en ég wipa hann og nota í annað.

Backblaze er lítið að klúðra málunum.

Re: Backup check ?

Sent: Mið 05. Feb 2025 22:58
af olihar
Gera hash check.

Re: Backup check ?

Sent: Fös 07. Feb 2025 16:29
af falcon1
olihar skrifaði:Gera hash check.

Er þá eitthvað forrit sem gerir það? Alveg grænn í þessu. :D

Re: Backup check ?

Sent: Fös 07. Feb 2025 16:39
af olihar
Já hægt að gera hash check með allskonar aðferðum.

Re: Backup check ?

Sent: Þri 10. Feb 2026 13:27
af falcon1
hvaða forritum mælið þið með til þess að tékka á heilbrigði afritsins? Ég hef bara notað þá aðferð að tékka á hvort skrárstærðin passi nákvæmlega, mér er sagt að það sé ekki nóg.

Re: Backup check ?

Sent: Þri 10. Feb 2026 13:41
af axyne
falcon1 skrifaði:hvaða forritum mælið þið með til þess að tékka á heilbrigði afritsins? Ég hef bara notað þá aðferð að tékka á hvort skrárstærðin passi nákvæmlega, mér er sagt að það sé ekki nóg.


Ég hef notast við WinMerge, finnst það fínt

Re: Backup check ?

Sent: Þri 10. Feb 2026 14:39
af rostungurinn77
Bara fara yfir þetta pixel fyrir pixel!

Re: Backup check ?

Sent: Þri 10. Feb 2026 14:42
af falcon1
rostungurinn77 skrifaði:Bara fara yfir þetta pixel fyrir pixel!

Hvernig geri ég það?

Re: Backup check ?

Sent: Þri 10. Feb 2026 14:48
af rostungurinn77
falcon1 skrifaði:
rostungurinn77 skrifaði:Bara fara yfir þetta pixel fyrir pixel!

Hvernig geri ég það?


Ágætt að nota stækkunargler og síðan bara rúðustrikaða bók eða excelskjal.

Síðan ef t.d. mynd er 24 mp þá bara geri ég excel skjal sem er 6000x4000 og fer yfir pixlana á báðum myndum og merki við hvort afritið og upprunalega eintakið stemma ekki pixel fyrir pixel.

Sumum finnst þetta óþarflega mikil vinna og mig rámar eitthvað í að þetta hafi verið eitt af þeim atriðum sem konan minntist á þegar hún fór frá mér og tók hundinn en ...

rétt skal vera rétt !! ](*,)

Re: Backup check ?

Sent: Sun 22. Feb 2026 01:18
af falcon1
Þegar maður býr til hash fyrir t.d. jpeg-skrá er maður þá að búa til nýja skrá með einhverju skráarsniði? Mynda- og videósafnið mitt er um 10tb, er ég þá að fara að bæta við einhverjum slatta af gb af gögnum á diskinn? :)

Checksum er þá að skoða þessar nýju skrár og bera saman?

Eða er ég alveg úti á túni? :D