Enn einn þráðurinn. Tölva fyrir Tölvunarfræði


Höfundur
Carragher23
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Mið 22. Mar 2006 20:09
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Enn einn þráðurinn. Tölva fyrir Tölvunarfræði

Pósturaf Carragher23 » Mán 12. Ágú 2013 17:12

Er að fara byrja í námi í haust og fyrir nokkrum dögum ákvað MacbookAir tölvan mín að hrynja. Tiltörlega nýdottin úr ábyrgð þannig þetta er mjög svekkjandi.

Mér skilst að það sé öllu þæginlegra að vera með Windows vél í þessu námi ( og ódýrara ).

Er búinn að kortleggja nokkrar vélar en vantar endilega hjálp við að ákveða þetta vegna valkvíða :)

Budget er ca 150-200 þús. Kannski aðeins yfir....

Er hrifnastur af þessum persónulega:

Ætla bæta því við að vélin verður með SSD drifi en ekki disk. Þannig þær vélar sem eru með disk þá verður því skipt út fyrir 120gb SSD.

Ódýr og öflug:
http://tolvutek.is/vara/packard-bell-ea ... olva-svort

https://www.advania.is/vefverslun/vara/ ... iron-(5521)-15R-fartolva---i7/
https://www.advania.is/vefverslun/vara/ ... iron-(7520)-15R-SE-fartolva---i7/
http://tolvutek.is/vara/dell-inspiron-1 ... rtolva-bla
https://www.advania.is/vefverslun/vara/ ... ningarvel/

Líst rosalega vel á þessa fyrir utan 17" skjáinn sem er dáldið turnoff
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2488

Bæta við uppí 6-8gb ram á þessari
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2446

http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2369
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2345

Endilega koma með ráðleggingar


Cooler Master HAF932 - Gigabyte GA-X58A-UD7 - Intel i7 930 @3,8GHz - Kingston 6GB HyperX DDR3 1730MHz - Crucial RealSSD C-300 128GB og 2x1TB samsung spinpoint F3 í Raid0 - Gigabyte HD5770 1GB - Noctua NH-D14 - Cooler Master Silent ProM 850W - "25" Full Hd I-Inc


Höfundur
Carragher23
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Mið 22. Mar 2006 20:09
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Enn einn þráðurinn. Tölva fyrir Tölvunarfræði

Pósturaf Carragher23 » Þri 13. Ágú 2013 12:44

ttt


Cooler Master HAF932 - Gigabyte GA-X58A-UD7 - Intel i7 930 @3,8GHz - Kingston 6GB HyperX DDR3 1730MHz - Crucial RealSSD C-300 128GB og 2x1TB samsung spinpoint F3 í Raid0 - Gigabyte HD5770 1GB - Noctua NH-D14 - Cooler Master Silent ProM 850W - "25" Full Hd I-Inc

Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4328
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 383
Staða: Ótengdur

Re: Enn einn þráðurinn. Tölva fyrir Tölvunarfræði

Pósturaf chaplin » Þri 13. Ágú 2013 12:52

Persónulega fengi ég mér eingöngu 13.3-14" vél, finnst það vera svona "ideal" stærð fyrir skólavélar.

Ef þér er sama ef tölvan er notuð þá er þessi til sölu - 13", i5, 4GB vinnsluminni, 128GB SSD, 12klst rafhlöðuending og á 85.000 kr.

Gangi þér vel! :happy


youtube.com/c/nútímatækni
AirPods ◦ Google Home Mini ◦ Anne Pro ◦ GDPR ◦ Sonos One ◦ Logitech MX Anywhere 2S ◦ Alan Turing ◦ Note 9 ◦ iPhone XS


Bioeight
Gúrú
Póstar: 526
Skráði sig: Þri 31. Mar 2009 22:41
Reputation: 6
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Enn einn þráðurinn. Tölva fyrir Tölvunarfræði

Pósturaf Bioeight » Þri 13. Ágú 2013 13:51

Mæli ekki með því að þú fáir þér stærri en 15.6" skjá og helst minni eins og chaplini segir. Borðin geta verið óþægilega lítil stundum í þessum skólum, í stóru fyrirlestrarsölum HR er borðið t.d. ansi mjótt þannig að ef þú ert með 16-17" vél þar þá er ekki þægileg staðan sem þú ert í, mun þægilegra að vera með minni vél þar. Svo nennir maður miklu frekar að taka með sér litla þægilega vél.

Þeir sem voru með Mac lentu stundum í vandræðum en þeir hjálpuðu oftast hvor öðrum að leysa vandamálin. Stundum var voðalega lítið hægt að gera en þá voru kennararnir í HR skilningsríkir, sumir þeirra voru líka Macca notendur.

Skiptir mestu máli að skjárinn og lyklaborðið séu þægileg og það er mikið persónulegt mat, best að fara að skoða vélarnar, horfa á skjáina(skoða viewing angles) og máta lyklaborðin. Allir þessi nýju Intel örgjörvar eru nóg í allt sem maður þarf að gera í tölvunarfræðináminu, minnst 4GB minni og svo er SSD-diskur stór plús.


Corsair Carbide 400Q| MSI Nvidia 2080| AMD R9 5900X| Gigabyte X470 Aorus Gaming 5| EVGA SuperNOVA 750 G3


enypha
Fiktari
Póstar: 79
Skráði sig: Lau 31. Maí 2003 23:21
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Enn einn þráðurinn. Tölva fyrir Tölvunarfræði

Pósturaf enypha » Þri 13. Ágú 2013 16:28

Thinkpad er safe bet í mínum bókum, þó með þeim fyrirvara að um sé að ræða fyrirtækjalínurnar T-W-X etc. Hef verið með nokkrar í vinnunni og séð enn fleiri í höndunum á tölvuböðlum án þess að slá feilpúst. Er með W520 núna, sem er nú líklega overkill fyrir þig, en það eru nokkrar nýlegar til sölu á vefnum-sem-ekki-má-ræða sé ég, einhverjar enn í ábyrgð. T420 T420s t.d. sem væru alveg perfect.

Hvað sem þú velur, veltu vandlega fyrir þér að uppfæra í SSD. Það er án nokkurs vafa besta uppfærsla sem nokkur vél fengi, finnur mikið meira fyrir því en að fara úr 4-16GB RAM, i5 í i7 etc.


x86 4Mhz - 640KB RAM - 30MB HDD - Gultintaður skjár


Höfundur
Carragher23
Ofur-Nörd
Póstar: 230
Skráði sig: Mið 22. Mar 2006 20:09
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Enn einn þráðurinn. Tölva fyrir Tölvunarfræði

Pósturaf Carragher23 » Fim 15. Ágú 2013 21:56

Takk fyrir þetta.

Langar samt að spyrja, var s.s. í tölvubúð í dag og ég tjáði starfsmanni að ég hefði ekki góða reynslu af Acer og vildi helst skoða aðrar vélar, þá segir hann við mig að Acer hafi fyrir 2 árum síðan rekið nánast alla starfsmenn sina, ráðið nýja hæfari og ákveðið var að reyna betrumbæta vélarnar sínar.

Þetta á að hafa tekist og vélarnar eiga að vera betri í dag, auk þess sem umboð er fyrir Acer á Íslandi í dag, sem er auvðitað kostur.

Er þetta alveg raunin eða eru þessar vélar eitthvað sem á að forðast?


Cooler Master HAF932 - Gigabyte GA-X58A-UD7 - Intel i7 930 @3,8GHz - Kingston 6GB HyperX DDR3 1730MHz - Crucial RealSSD C-300 128GB og 2x1TB samsung spinpoint F3 í Raid0 - Gigabyte HD5770 1GB - Noctua NH-D14 - Cooler Master Silent ProM 850W - "25" Full Hd I-Inc


k0fuz
vélbúnaðarpervert
Póstar: 992
Skráði sig: Sun 05. Jún 2005 20:06
Reputation: 19
Staðsetning: RVK
Staða: Ótengdur

Re: Enn einn þráðurinn. Tölva fyrir Tölvunarfræði

Pósturaf k0fuz » Fim 15. Ágú 2013 22:08

Carragher23 skrifaði:Takk fyrir þetta.

Langar samt að spyrja, var s.s. í tölvubúð í dag og ég tjáði starfsmanni að ég hefði ekki góða reynslu af Acer og vildi helst skoða aðrar vélar, þá segir hann við mig að Acer hafi fyrir 2 árum síðan rekið nánast alla starfsmenn sina, ráðið nýja hæfari og ákveðið var að reyna betrumbæta vélarnar sínar.

Þetta á að hafa tekist og vélarnar eiga að vera betri í dag, auk þess sem umboð er fyrir Acer á Íslandi í dag, sem er auvðitað kostur.

Er þetta alveg raunin eða eru þessar vélar eitthvað sem á að forðast?


Ég átti acer vél sem móðurborðið crashaði í þegar vika var eftir af ábyrgðinni (ég veit heppinn ég) s.s. rétt að verða 2 ára og ég fékk 100k uppí nýja og fékk mér acer aftur (þeir höfðu lítið úrval) og þessi acer vél er ennþá á lífi eftir einhver 4 ár.. held þetta séu ekkert verri vélar en aðrar.. ég tæki samt í dag Thinkpad held ég.. rosa þægilegt lyklaborð á þeim.


ASRock Z790 Pro RS WiFi | Intel i5 13600K @ 5.1GHz | Noctua NH-D14 | Gainward GeForce RTX 3060Ti Ghost OC | 2x16GB G.Skill Ripjaws S5 5600MHz DDR5 | 240GB Corsair MP510 NVMe & 250GB Samsung 850 EVO SSD | 2TB & 3TB Seagate | BenQ Zowie 25" XL2546 240Hz | 650W Corsair RM650x PSU.


Alex97
spjallið.is
Póstar: 499
Skráði sig: Lau 11. Feb 2012 17:22
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Enn einn þráðurinn. Tölva fyrir Tölvunarfræði

Pósturaf Alex97 » Fim 15. Ágú 2013 22:48

Hér er vél sem er algjör snild, http://tolvutek.is/vara/acer-aspire-s5- ... olva-svort
Einnig þá er þetta rétt sem þér var sagt í búðinni að acer hafi ákveðið að betrum bæta vélarnar sínar og þær eru núna orðnar algjörar snildar vélar.


- Corsair 600t - MSI Z77 MPower - Intel i5 3570K - Evga Gtx 580, Gigabyte 280x, HD Radion 7950 - Corsair vengeance 16gb - Plextor M5 256GB SSD - Custom vatnskæling