Ég er núna búin að lesa mig í gegnum seinustu 7-8 þræði um sama umræðuefnið sem og skoða helstu tölvuverslanir en væri til í að fá álit ykkar.
Það sem ég er að leita af er fartölva, helst ekki stærri en 14" og helst ekki minni, finnst 14" vera hin fullkomna stærð. Því hærri upplausn, því betra, s.s. 1600x900 eða 1920x1080 væri flott, SSD Diskur, Létt, nett, og batterý ending mætti vera í lengri kantinum. Falleg hönnun og dillumdá.... verður ekki notuð í leiki, mögulega horfa á þátt eða svipað. Ethernet tengi væri fínt en eflaust ekki hægt að hafa í ultrabooks.
Verðhugmynd um 150k+, má þess vegna vera notuð en sé ekkert í þessum kanti á sölu hérna
![Smile :)](./images/smilies/icon_smile.gif)
Ultrabook hjá flestum framleiðendum, Asus, Acer ofl. hefur komið í huga en var að spá hvað ykkur hinum dettur í hug áður en ég tek hringferð í bænum að skoða tölvurnar í hinum og þessum verslunum
![Smile :)](./images/smilies/icon_smile.gif)
T.d. http://tl.is/product/asus-ux31rs-l830uy-fartolva-i5
mbk,
Vignir