Síða 1 af 2
					
				LG Nexus 4
				Sent: Fös 02. Nóv 2012 21:09
				af Swooper
				Það kemur mér á óvart að það sé ekki kominn þráður um þennan síma ennþá. Eru menn hér ekkert spenntir fyrir honum? Myndi hiklaust fá mér hann sjálfur ef ég væri á leiðinni að endurnýja. Eina turnoffið við hann er SD-leysi, sem maður verður víst að sætta sig við á Nexus símum...

Svo er þetta með verðlagið... 8GB útgáfan kostar $299 úti, $349 fyrir 16GB, sem eru frábær verð fyrir síma af þessum kalíber. Í forpöntun hjá bæði Símanum og Vodafone kostar hann 109.900kr hérna, Síminn segist reyndar vera með 8GB útgáfuna en Vodafone 16GB... Til samanburðar kostar iPad Mini sem var að koma út á nánast sama tíma $330 úti, 60k hér. Allir sem hafa kommentað á 
Vodafone bloggfærsluna um málið eru fjúríus út af verðinu, spurning hvort það takist að pressa þá í að lækka niður í eitthvað skynsamlegra. Endilega takið þátt í hópþrýstingnum ef þið nennið, gengur ekki að þeir komist upp með þetta 

 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Fös 02. Nóv 2012 21:15
				af capteinninn
				Hann fékk ekki það góða dóma hjá Verge
http://www.youtube.com/watch?feature=pl ... erJmqIGOoMGler aftan á símanum sem brotnar víst auðveldlega og erfitt að skipta um
Mig vantar síma en er persónulega ekki mikið spenntur fyrir þessum
 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Fös 02. Nóv 2012 21:18
				af AntiTrust
				Verðið á símanum hjá Vodafone er fáránlegt, eins og ég var búinn að kommenta fyrr á FB.
Sé hinsvegar núna að þeir eru búnir að kommenta og skrifa "Sælir, þessi verð koma okkur verulega á óvart og eru í engu samræmi við innkaupaverðið okkar. Við erum að kanna málið hjá birgjanum okkar. Kv. Sigrún"
En eins og ég hef sagt svo oft áður - 4,7" síma? Bjakk, og ullabjakk! 

 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Fös 02. Nóv 2012 21:22
				af capteinninn
				AntiTrust skrifaði:Verðið á símanum hjá Vodafone er fáránlegt, eins og ég var búinn að kommenta fyrr á FB.
Sé hinsvegar núna að þeir eru búnir að kommenta og skrifa "Sælir, þessi verð koma okkur verulega á óvart og eru í engu samræmi við innkaupaverðið okkar. Við erum að kanna málið hjá birgjanum okkar. Kv. Sigrún"
En eins og ég hef sagt svo oft áður - 4,7 síma? Bjakk, og ullabjakk! 

 
Mér finnst það persónulega eiginlega algjört rugl að kaupa síma á Íslandi, verðin eru aaaalltof há og það er ekki hægt að kenna tolli og vörugjöldum um það, Hátækni og Tæknivörur sem flytja inn flesta síma á Íslandi hafa verið teknir fyrir verðsamráð og ég hef enga trú á öðru en að þeir séu ennþá að því.
Ég kaupi allavega mína síma í útlöndum, er miklu frekar til í að gera það og borga tollinn en að borga þessum svindlurum
 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Fös 02. Nóv 2012 21:29
				af Swooper
				Síminn svaraði mér á 
Twitter: "Mistök nei, við fáum ekki niðurgreitt tæki frá LG eins og Google sjálfir bjóða uppá. Hefur alltaf verið svona með Nexus línuna"
 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Fös 02. Nóv 2012 21:49
				af arnorbarkar
				Hvað var verið að selja Galaxy Nexus 3 símann á í USD? Hann var á 109k hér heima fyrir stuttu. Þessi útskýring hjá símanum afsakar enganveginn 100% verðmun, söluaðilar myndu einfaldlega sleppa því að selja hann ef þetta væri raunin.
			 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Fös 02. Nóv 2012 21:51
				af wicket
				Google eru að selja símann sjálfir í nokkrum löndum, og niðurgreiða tækið. Eins og þeir gera með Nexus 7.
Ísland er væntanlega ekki hluti af því (eins og alltaf í öllu svona) og hér þurfa seljendur tækisins að kaupa hann af LG væntanlega á einhverju verði sem að LG ákveður. 
Hugsa að það sé hæpið að N4 eða önnur Nexus tæki verði hér á verði nálægt því sem að þekkist þar sem Google sjálfur eru með puttana í þessu.
			 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Lau 03. Nóv 2012 09:11
				af audiophile
				Það má reyndar ekki taka The Verge review of alvarlega. Aðal ástæðan fyrir neikvæðninni var skortur á LTE, sem við höfum ekkert við að gera. Þetta er amerísk síða sem dæmir tækin miðað við amerískan markað.
Gler bakhliðin er þó pínu skrítð move hjá LG.
Annars er þetta rosalega aðlaðandi sími og virðist að öllu leyti vera mjög solid. En ekki fyrir sama verð og Galaxy SIII. Ástæðan fyrir að hann er svona áhugaverður er verðið erlendis sem við virðumst ekki njóta góðs af hér.
 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Lau 03. Nóv 2012 10:24
				af hfwf
				LG nuff said! 
Sent from my GT-I9100 using Tapatalk 2
			 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Sun 04. Nóv 2012 13:48
				af Tesy
				Finnst þessi sími bara drullu flottur, eina sem er að stoppa mig er verðið hérna heima! WTF
			 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Sun 04. Nóv 2012 13:52
				af DJOli
				
 LG
 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Sun 04. Nóv 2012 15:24
				af intenz
				Eftir fyrri reynslu af LG Android símum mun ég aldrei nokkurn tíma kaupa LG síma.
En speccarnir eru næs. Það er ekki hægt að neita því.
Sent from my Nexus 7 using Tapatalk 2
			 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Sun 04. Nóv 2012 15:49
				af wicket
				Vandamálið við Nexus síma hefur ekki verið vélbúnaðurinn, hann hefur alltaf verið af toppklassa, bæði í vali á skjá, örgjörva og almennu build quality.
Vandamálið hefur alltaf verið hvernig LG hefur matreitt Android stýrikerfið og sitt  Sense/Touchwiz ofan á stýrikerfið, það var ljótt og bætti engu við heldur flækti hlutina ef eitthvað er. Og vandamál númer eitt hefur auðvitað verið að LG hafa verið glataðir að skila uppfærslum. Ef þær hafa borist hafa þær borist ótrúlega seint en aðal vandamálið hefur verið að þær hafa bara ekkert borist.
Nexus 4 er með stock Android og uppfærslur koma strax þannig að ég ætla að gefu þessu tæki séns, þar sem að LG vandamálin ættu ekki að vera til staðar.
			 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Sun 04. Nóv 2012 16:06
				af audiophile
				Ég átti LG Optimus Black í heilt ár. Besti sími sem ég hef átt fyrir utan hugbúnaðinn.
LG er með gott hardware og Google gott software. Þetta er flottur pakki.
			 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Sun 04. Nóv 2012 17:20
				af Swooper
				wicket skrifaði:Nexus 4 er með stock Android og uppfærslur koma strax þannig að ég ætla að gefu þessu tæki séns, þar sem að LG vandamálin ættu ekki að vera til staðar.
Akkúrat það sem ég hugsaði... Sjáum hvernig dóma hann fær.
 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Sun 04. Nóv 2012 20:05
				af intenz
				AntiTrust skrifaði:Verðið á símanum hjá Vodafone er fáránlegt, eins og ég var búinn að kommenta fyrr á FB.
Sé hinsvegar núna að þeir eru búnir að kommenta og skrifa "Sælir, þessi verð koma okkur verulega á óvart og eru í engu samræmi við innkaupaverðið okkar. Við erum að kanna málið hjá birgjanum okkar. Kv. Sigrún"
En eins og ég hef sagt svo oft áður - 4,7" síma? Bjakk, og ullabjakk! 
 
Ég veit ekkert um hvað þú ert að tala! 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Sun 04. Nóv 2012 23:38
				af wicket
				Þetta súmmerar vel upp stöðuna á Nexus tækjum í löndum sem að Google er ekki með sem official Nexus lönd (sem geta keypt beint af Google)
http://www.androidcentral.com/spanish-r ... ds-pricingLG sér um að selja Nexus 4 beint til sinna birgja, þeir selja tækið á hærra veðri en Google er að selja hann á.
Alveg eins og Samsung gerði með fyrri Nexus tæki og svo framvegis.
Það mun því lítið fyrir okkur að þrýsta á Símann og Vodafone. Þeir eru að kaupa þetta af LG á rugl innkaupsverði. Eflaust lítið sem ekkert sem þeir geta gert.
 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Mán 05. Nóv 2012 05:31
				af coldcut
				Ég er að naga mig í handabökin yfir að hafa keypt Galaxy Nexus á sama verði fyrir einum og hálfum mánuði...
			 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Mán 05. Nóv 2012 10:39
				af Swooper
				Haha, akkúrat, einn félagi minn gengur einmitt stundum með sinn 7" Kindle Fire í vasanum... 4,7" er varla of stórt, sérstaklega miðað við að það inniheldur software takkana. 

 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Mán 05. Nóv 2012 14:25
				af blitz
				Hvernig er best að versla Nexus 4?
Myus? Láta einhvern í USA senda hann hingað?
			 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Mán 05. Nóv 2012 20:24
				af arnorbarkar
				handtec er þegar farin að selja símann, í forsölu, á 239GBP. Það gerir 67.000 komið til Íslands með kostnaði. Það þarf enginn að segja mér að Siminn og Vodafone geti ekki gert mun betur en 109.000.
http://www.handtec.co.uk/product.php/8173/lg-google-nexus-4--8gb--sim-free-unlocked- 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Mán 05. Nóv 2012 22:09
				af wicket
				@arnorbarkar
Sástu það sem ég póstaði aðeins ofar ? 
http://www.androidcentral.com/spanish-r ... ds-pricingÞetta ætti að súmmera nokkuð vel hvernig staðan verður á Íslandi með þennan síma rétt eins og öll önnur niðurgreidd tæki.
 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Mán 05. Nóv 2012 22:40
				af arnorbarkar
				@wicket já, ég sá það. Handtec er ekki Google og þeir eru þá væntalega að kaupa símana af LG, og bjóða uppá þetta verð.
			 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Þri 06. Nóv 2012 01:01
				af Swooper
				Nema þeir séu að kaupa símana af Google. Veit ekki hvernig reglurnar eru með endursölu á niðurgreiddu símunum...
			 
			
					
				Re: LG Nexus 4
				Sent: Þri 06. Nóv 2012 09:03
				af wicket
				arnorbarkar skrifaði:@wicket já, ég sá það. Handtec er ekki Google og þeir eru þá væntalega að kaupa símana af LG, og bjóða uppá þetta verð.
Handtec er ekki Google, rétt.
En þeir eru pottþétt að kaupa magninnkaup af birgja í UK sem fær að kaupa þetta af Google, t.d. Carphone Warehouse eða einhverjum álíka sem fær að kaupa þetta á niðurgreiddu verði.