Síða 1 af 1

Fartölvukaup

Sent: Þri 08. Feb 2005 17:16
af GeiR
Núna þegar maður fer að fara í fjölbraut þá vill maður fá sér fartölvu. Einu skilyrðin hja mér að hún ra´ði líka vel við tölvuleiki.

Örri: vill hafa dothan helst 1.8 eða 2.0 ghz

Minni: vill hafa 1 gb

Skjakort það verður að vera 128 mb , er eitthvað vit í því að fá sér 6800 go?

Langar að sjá hvort þið vitið um einhverja með þessu í ?

Ég er buinn að finna eina http://extranet.ejs.is/extranet/Product ... P9200%2305

Hvað fynst ykkur um þessa? :wink: [/url]

Sent: Þri 08. Feb 2005 17:30
af urban
hérna ég spyr bara hvort þú ætlir (og þá reikna ég með að þú eigir þokkalega borð vél) að seljaborðvélina þína til að fá þér lappa ???

vegna þessað alment þá hafa eru menn með þessar vélar til að læra í
og þegar maður vill leika sér þá fer maður í stóru vélina...

ég allavega mundi kaupa mér bara þokkalega vél á ca 130 -150 þús og nota svo rest til að uppfæra þá borðvélina ennfrekar

Sent: Þri 08. Feb 2005 18:00
af GeiR
Ég er nú með fína borðtölvu myndi ég segja sko.

Ég er að spá í þessu útaf ég er að fara til þýskalands og englands.
því maður getur fengið góða fartölvu þar á verði ágætar henna.
Svo ég ætla að fá mér öfluga :)

Sent: Þri 08. Feb 2005 19:40
af skipio
GeiR skrifaði:Ég er nú með fína borðtölvu myndi ég segja sko.

Ég er að spá í þessu útaf ég er að fara til þýskalands og englands.
því maður getur fengið góða fartölvu þar á verði ágætar henna.
Svo ég ætla að fá mér öfluga :)

Það sem þú verður að passa ef þú kaupir ferðatölvu í útlandinu er að hún sé með alþjóðlegri ábyrgð.
Ferðatölvur eiga það nefnilega mjög mikið til að bila og þú vilt pottþétt ekki vera í þeirri stöðu að þurfa annaðhvort að senda vélina í viðgerð til útlanda eða þá að þurfa að borga fyrir viðgerðina sjálfur. Ef þú ert með alþjóðlega ábyrgð getur þú hinsvegar labbað út í viðkomandi umboð á Íslandi og látið þá gera við vélina. (Það þarf þá auðvitað að vera umboð fyrir vélina á Íslandi.)
Það er hinsvegar hægara sagt en gert að finna ódýrar ferðatölvur með alþjóðlegri ábyrgð. Dýru vélarnar frá stóru framleiðendunum eins og IBM (t.d. T-vélarnar), Dell og HP eru oft með alþjóðlegri ábyrgð. Það eru ódýru vélarnar frá sömu framleiðendum hinsvegar ekki með.

Bara svo það sé alveg ljóst; bilanatíðni á ferðatölvum er miklu hærri en á borðtölvum!!