Síða 1 af 2

iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Þri 18. Sep 2018 10:19
af GuðjónR
Það er vika frá síðustu Appel kynningu þar sem ný lína af iPhone var kynnt, þar á meðal iPhone XS-Max lesist iPhone X-mas en ekkert bólar á forpöntunum eða verðlista hérna heima.
Alltaf þegar nýr sími er kynntur hjá Apple þá hafa íslenskar verslanir komið með þá á síðurnar sínar strax og margar hverjar boðið upp á forpantanir.

Fyrstu símarnir fara í dreifingu núna á föstudaginn 21. en ekkert bólar á þessum símum hérna?
epli.is nova.is macland.is vodafone.is siminn.is elko.is ... enginn er með neitt um þessa síma? Metnaðarleysi eða eitthvað annað?
Veit einhver hvað veldur?

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Þri 18. Sep 2018 10:25
af wicket
Apple stýrir þessu. Ísland er ekki í fasa 1 í forsölu / afhendingum. Höfum síðustu skipti verið í fasa 2.

Forsala má byrja 21.sept og afhending 28.sept miðað við það sem mér var sagt hjá mínum viðskiptastjóra.

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Þri 18. Sep 2018 10:27
af GuðjónR
wicket skrifaði:Apple stýrir þessu. Ísland er ekki í fasa 1 í forsölu / afhendingum. Höfum síðustu skipti verið í fasa 2.

Forsala má byrja 21.sept og afhending 28.sept miðað við það sem mér var sagt hjá mínum tengilið.


Það getur vel verið að þeir megi ekki taka niður pantanir fyrr en 21, en má ekki birta vöruna og verð hennar á heimasíðum fyrirtækja fyrr en 21?

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Þri 18. Sep 2018 10:33
af wicket
Þetta er Apple, þeir stjórna ferðinni.

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Þri 18. Sep 2018 10:39
af Njall_L
Rakst á þessa grein frá Nova: https://www.nova.is/dansgolfid/hvad-er- ... -fra-apple

Þar er tekið fram "Símarnir koma í sölu á Íslandi 28. september". Tek samt undir það að þetta launch hérlendis er mjög skrýtið. Síðustu ár hafa símaverslanir keppst við að bjóða upp á forpöntun strax eftir kynningu. Hef ekkert séð fá neinum með það.

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Þri 18. Sep 2018 10:52
af GuðjónR
Njall_L skrifaði:Rakst á þessa grein frá Nova: https://www.nova.is/dansgolfid/hvad-er- ... -fra-apple

Þar er tekið fram "Símarnir koma í sölu á Íslandi 28. september". Tek samt undir það að þetta launch hérlendis er mjög skrýtið. Síðustu ár hafa símaverslanir keppst við að bjóða upp á forpöntun strax eftir kynningu. Hef ekkert séð fá neinum með það.


Nákvæmlega, engar forpantanir engar auglýsingar og tækin ekki sett á sölusíður fyrirtækjanna.
Þess vegna var ég að spá í hvað veldur, getur varla verið metnaðarleysi, of mikil tilviljun að öll fyrirtækin detti í þá gryfju á sama tíma?

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Þri 18. Sep 2018 11:22
af DJOli

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Þri 18. Sep 2018 11:46
af GuðjónR

Að hann pessi ekki í hendurnar á konum?
Það held ég nú ekki, fullt af konum með iPhoneX...
Ég myndi frekar gangrýna Apple fyrir að hafa ekki almenninlegan straumbreyti, þessi 5W er ekki alveg að gera sig.
Svo hefði 128GB mátt vera base í stað 64.
Margir sem segia að 64 sé of lítið en 256 óþarflega mikið.

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Þri 18. Sep 2018 12:41
af DJOli
GuðjónR skrifaði:

Að hann pessi ekki í hendurnar á konum?
Það held ég nú ekki, fullt af konum með iPhoneX...
Ég myndi frekar gangrýna Apple fyrir að hafa ekki almenninlegan straumbreyti, þessi 5W er ekki alveg að gera sig.
Svo hefði 128GB mátt vera base í stað 64.
Margir sem segia að 64 sé of lítið en 256 óþarflega mikið.


Það að hann passi illa í hendur á konum er einmitt alveg nóg. Femínistar eru svo grimmir, og ítökin sem þeir hafa eru alveg rosaleg.
Á léttu nótunum, kannski er þetta orsökin: https://www.youtube.com/watch?v=k97UV85eybY (skiptu út mac fyrir iphone)

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Þri 18. Sep 2018 13:03
af asgeireg
Án þessa að vera apple fan þá hlakkar mig aðeins til að sjá hvaða verð verða á þessum símum.

Fæ alltaf auglýsingapóst frá Dustin í Svíðþjóð þar sem ég er að versla aðeins við þá hugbúnað og þeirra forsala er að byrja og þau verð eru nú ekki í lægri kanntinum

Fyrri linkurinn er fyrir almenning og seinn líklega án vsk því hann er fyrir fyrirtæki. Ódýrasti á 160 þús íslenskar út úr búð til alemnnings og um 130 þús til fyrirtækja.

https://www.dustinhome.se/tillverkare/a ... max-180914

https://www.dustin.se/brands/apple/prod ... ribed=true

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Þri 18. Sep 2018 15:51
af GuðjónR
Jahhh, miðað við hvað X kostar þá má áætla að verðin verði frá 130k (XR) - 260k (X-Max 512)

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fim 20. Sep 2018 15:08
af GuðjónR
Sá þessa auglýsingu á dv.is ... vísar bara á elko.is en ekki neitt annað.
Er bannað að auglýsa þessa síma fyrr en á morgun?

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fim 20. Sep 2018 17:18
af Viktor

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fim 20. Sep 2018 18:23
af GuðjónR
Sallarólegur skrifaði:http://blogg.elko.is/iphone-xs/

Einmitt;
Þú getur tryggt þér eintak í forsölu ELKO sem byrjar 21. september. Síminn verður svo afhentur 28. september.

Af hverju gefa þeir ekki upp verðin? :money

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fös 21. Sep 2018 00:11
af Tesy
Komið verð á iPhone XS Max hjá símanum. 189.990 - 249.990kr
https://vefverslun.siminn.is/vorur/farsimar

Ætli XS starti ekki í 149.990 - 159.990kr?

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fös 21. Sep 2018 03:10
af peturthorra
Xs startar á 169.990kr, mikið er fólk bilað að fara að kaupa þessa síma á þessu verði! Xs Max 512gb á 249.990kr, for god sake! Þetta er farsími!

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fös 21. Sep 2018 07:54
af B0b4F3tt
peturthorra skrifaði:Xs startar á 169.990kr, mikið er fólk bilað að fara að kaupa þessa síma á þessu verði! Xs Max 512gb á 249.990kr, for god sake! Þetta er farsími!


Nei, fyrir suma er þetta e-penis :megasmile

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fös 21. Sep 2018 10:57
af gutti
Elko er byrja gera með forpantanir á iphone xs max

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fös 21. Sep 2018 11:05
af Jac
Ég neyðist því miður til að kaupa mér nýjan síma því iPhone 4 (sem var og er fyrsti snjallsíminn minn), sem ég er með, er orðinn ansi slappur og heyrist nánast ekkert í mér í símtölum ásamt öðrum vandamálum. Tekur þvi víst ekki að gera við. Hef reyndar haft auga á verðum íslensku verslananna frá því að iPhone 7 plus var kynntur því hann var með stórum skjá - tók þá strax eftir gömlu góðu íslensku verð"samkeppninni".

En núna í dag athugaði ég líka verð í öðrum löndum og ef einhver hefur áhuga á þá eru hér niðurstöðurnar (USA er unlocked og eftir þvi sem ég best veit eru hin löndin það líka). Notaðist við XE.com við gengisreikninga:



iPhone Xs Max 64gb
USA: 1099 USD = 120.889,59 ISK
(https://www.apple.com/shop/buy-iphone/i ... 0,31,40,60)

UK: 1099 GBP = 159.394,60 ISK
(https://www.apple.com/uk/shop/buy-iphon ... y#01,11,20)

Ástralía: 1799 A = 144.188,81 ISK
(https://www.apple.com/au/shop/buy-iphon ... y#01,11,20)

Danmörk: 9799 kr = 170.014,63 ISK
(https://www.apple.com/dk/shop/buy-iphone/iphone-xs/6,5”-skærm-64gb-space-grey#01,11,20)

Noregur: 12690 kr = 171.409,20 ISK
(https://www.apple.com/no/shop/buy-iphon ... å#01,11,20)

Svíþjóð: 13995 kr = 175.141,49 ISK
(https://www.apple.com/se/shop/buy-iphon ... å#01,11,20)

Finnland: 1279 evrur = 165.519,41 ISK
(https://www.apple.com/fi/shop/buy-iphon ... a#01,11,20)

Síminn, Vodafone, Macland:
189.990

Nova og Epli:
Ekkert verð komið (en skal veðja skrilljón að það verði hið rosalega "samkeppnishæfa" verð 189.990)

Elko:
189.895 (95 krónum ódýrari …….. ](*,) )

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fös 21. Sep 2018 11:24
af GuðjónR
Eins og ég hef sagt, þegar allir eru með nákvæmlega sama verðið þá borgar sig að athuga hver er með bestu ábyrgðarskilmálana.
Fyrir þá sem kaupa út á kennitölu munar miklu um auka ár í ábyrgð (NOVA) og endalausa á byrgð (Costco).

Annað sem er doldið súrt að sjá að það er hægt að kaupa farsíma með 512MB geymslu meðan MacBook PRO koma með 128MB.
https://www.epli.is/mac/macbookpro-2/ma ... ilver.html

Hvað eru Apple að spá að framleiða ennþá fartölvur með 128MB óútskiptanlegu geymsluplássi? Og kalla það "Pro"...

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fös 21. Sep 2018 11:30
af KermitTheFrog
GuðjónR skrifaði:Hvað eru Apple að spá að framleiða ennþá fartölvur með 128MB óútskiptanlegu geymsluplássi? Og kalla það "Pro"...


Hvernig eiga þeir öðruvísi að selja þér cloud geymslu þá?

En að öllu gríni slepptu, þá gæti það haft eitthvað að gera með eitthvað svona: https://www.howtogeek.com/196541/emmc-v ... -is-equal/ ? Veit ekki hversu relevant þetta er eða hvaða tækni er í þessum nýju símum.

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fös 21. Sep 2018 13:39
af GuðjónR
KermitTheFrog skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Hvað eru Apple að spá að framleiða ennþá fartölvur með 128MB óútskiptanlegu geymsluplássi? Og kalla það "Pro"...


Hvernig eiga þeir öðruvísi að selja þér cloud geymslu þá?

True! :D

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fös 21. Sep 2018 14:10
af chaplin
Mér finnst verðið vera ekkert allt of hátt hérna heima, mætti alveg vera 10.000 kr ódýrara en það að verslanir hérna heima eru allar þriðji aðili (vs. að geta keypt beint frá Apple), 25% skattur (og önnur innflutningsgjöld) og að þurfa að bjóða upp á 2 ára ábyrgð að þá "skil" ég verðið.

Ég er einnig nokkuð viss um að verslanir hérna heima verði að kaupa símana frá Epli og fái aðeins 1 ár í ábyrgð (hugsanlega fá þær 2 ára ábyrgð) þannig að smyrja 20.000 kr á síma og taka á sig kostnað ef síminn bilar á öðru ári, húsnæði, starfsmannakostnaður ofl. að þá finnst mér persónulega verðið hérna heima ekkert allt of hátt.

Mér finnst bara síminn sjálfur vera of dýr. Geri mér grein fyrir því að A12 Bionic er líklegast öflugasta kubbasett-ið á markaðinum, og ef allt við símann væri betra en það sem aðrir væri að bjóða uppá að þá væri verðið "allt-í-lagi", þú borgar premium fyrir það besta, þótt það sé aðeins pínulítið betra. En það virðist vera að myndavélin sé í mörgum tilvikum betra í Pixel 2, skjárinn á Note 9 sé amk. jafn góður os.frv. Í raun eina þar sem Apple eru með algjöra yfirburði er hugbúnaðaruppfærslur. iPhone 5s sem kom út árið 2013 fær iOS12, Galaxy S7 kom út árið 2016 og fær ekki Android P.

Apple geta svo auðvita sett hvaða verð sem er á símana, það er enginn skyldugur til að kaupa þá og það að kaupa nýjan síma á hverju ári er alveg út í hött. OnePlus 6 er mjög áhugaverður sími, Note 9 er tær snilld og POCOPHONE F1 er líklegast fínn ef þú ert til í að vera hluti af vörunni (auglýsingar í stýrikerfinu). Pixel 3 er síðan handa við hornið, mv. hvað Pixel 2 var og er flottur, að þá er P3 sími sem ég er peppaður fyrir! :)

edit

KermitTheFrog skrifaði:Hvernig eiga þeir öðruvísi að selja þér cloud geymslu þá?


Þetta! Þetta finnst mér vera algjörlega glatað hjá Apple. Þeir vilja að upplifunin sé 100% frá því þú ferð í búðina, opnar símann og byrjar að nota hann. En síðan tekst þeim að klúða þessari upplifun með iCloud. 95% af því sem ég heyri fólk kvata yfir iPhone er "Það er alltaf einhvað icloud/storage dót að poppa upp, ógeðslega pirrandi, hvað er þetta?".

iCloud ætti amk. geta tekið við 100% backup af stýrikerfinu, risa plús ef það myndi einnig vista ljósmyndir/myndbönd (á HEIF/HEVC formati eins og Google bjóða upp á).

KermitTheFrog skrifaði:En að öllu gríni slepptu, þá gæti það haft eitthvað að gera með eitthvað svona: https://www.howtogeek.com/196541/emmc-v ... -is-equal/ ? Veit ekki hversu relevant þetta er eða hvaða tækni er í þessum nýju símum.


Einnig mjög góður punktur. iMac Pro er á mjög góður verði mv. ef þú ætlar að smíða jafn öfluga non-iMac vél (stærð, hraði, borðpláss, litanákvæmni etc.). Eru Apple að setja storage kubba + controller-a í nýjustu símana sem eru 500% hraðari en aðrir bjóða upp á?

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Fös 21. Sep 2018 17:57
af audiophile
Lightning í 3.5mm dongle fylgir ekki með lengur. Finnst það alveg lágmark fyrir þennan pening.

Re: iPhone XS-Max áhugaleysi verslana?

Sent: Sun 23. Sep 2018 15:09
af GuðjónR
audiophile skrifaði:Lightning í 3.5mm dongle fylgir ekki með lengur. Finnst það alveg lágmark fyrir þennan pening.

Já það er sjónarmið, annað sem ég les mikið um er að margir eru ósáttir við að hleðslusnúran sé ekki usb-c > lightning þar sem MacBook Pro eru eingöngu með usc-c port. Það sem ég hefði viljað sjá öðruvísi er stærra hleðslutæki, 5W er ekki nóg fyrir svona tæki, ekki frekar en 12W er ekki nóg fyrir 12.9" iPad pro, þar verður þú að blæða í 29W gaurinn ef þú vilt ekki að tækið fjari út í vinnslu, jafnvel þó það sé í sambandi við straum.
https://support.apple.com/en-us/HT208137

Það sem mér finnst svolítið sérstakt er að iPhone XS er með 2.2% minna batterý en eldri iPhone X, sjá myndband: