Síða 2 af 3

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Mán 03. Maí 2021 21:37
af BugsyB
Síminn er með esim

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Mán 03. Maí 2021 21:43
af Steini B
Ég er búinn að vera með eSIM frá Símanum í næstum því ár núna...

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Maí 2021 00:12
af Tiger
Nova bara með í úrin (Apple og Samsung) en Síminn bara með í síma eins og ég skil þetta.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Maí 2021 09:14
af ColdIce
Enn önnur töf hjá Símanum fyrir úrin…lok árs segja þeir núna

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Maí 2021 11:05
af Tiger
ColdIce skrifaði:Enn önnur töf hjá Símanum fyrir úrin…lok árs segja þeir núna


Og Vodafone veit ekkert og hefur hvorugt.....

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Maí 2021 11:25
af GuðjónR
Er þá ekki málið að hætta að vera risaeðla og fara yfir til NOVA?

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Maí 2021 12:12
af Steini B
Ööö, ég er með eSIM frá símanum í galaxy watch úrinu mínu... :-k

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Maí 2021 14:04
af Pandemic
Nova var heillengi að bíða eftir að starfsmaður hjá Apple kæmi til landsins og samþykkti þetta. Gæti verið að Síminn og Vodafone séu ekki komnir svo langt að fá samþykki frá Apple.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Maí 2021 14:15
af dori
Steini B skrifaði:Ööö, ég er með eSIM frá símanum í galaxy watch úrinu mínu... :-k

Er það eins og í Apple Watch þar sem það hringir með aðal númerinu eða ertu með sér númer á því?

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Maí 2021 18:02
af jonfr1900
Síminn er búinn að vera með esim síðan árið 2020.

Rafræn SIM kort í fyrsta sinn á Íslandi! (Síminn)
Fann ekkert esim hjá Vodafone á Íslandi.
Er Nova með eSIM í farsímann? - Nova takmarkar esim vegna rafrænu skilríkjanna. Þetta er ekkert vandamál ef rafrænu skilríkin eru á öðru númeri.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Þri 04. Maí 2021 19:33
af Steini B
dori skrifaði:
Steini B skrifaði:Ööö, ég er með eSIM frá símanum í galaxy watch úrinu mínu... :-k

Er það eins og í Apple Watch þar sem það hringir með aðal númerinu eða ertu með sér númer á því?

Það er hinsvegar gallinn, þarft að vera með sér númer.
En ég er hvorteðer bara með það til að geta notað netið og get sett forward frá aðalnúmerinu ef þess þarf.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Fim 06. Maí 2021 02:02
af BugsyB
eg er með esim í úrinu minu frá símanumm og búinn að vera með í tæpt ár - en ég er aftur á moti með samsung úr ekki apple

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Fim 06. Maí 2021 10:05
af bigggan
Reyndi að taka við símanum en þeir sögðu þetta kæmi bara seinna á árinu... er með samsung úr.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Fim 14. Okt 2021 18:00
af netkaffi
Eitthvað update?

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Fim 25. Nóv 2021 19:18
af Nariur
Síminn var að segja mér að þeir væru ekki með e-sim stuðning á Samsung úrum. Ég er voðalega confused.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Fim 25. Nóv 2021 20:45
af iceair217
Nariur skrifaði:Síminn var að segja mér að þeir væru ekki með e-sim stuðning á Samsung úrum. Ég er voðalega confused.


Sama hjá mér. Ég var að kaupa Galaxy snjallúr en áður en ég gerði það talaði ég við Símann á netspjalli þar sem mér var sagt að eSim væri í boði án kostnaðar (tengist símanúmerinu mínu) og ég þurfi að koma í verslun til að græja þetta.

Í kjölfarið keypti ég mér úr með LTE stuðningi og fór í símann en þá sagði annar starfsmaður að þetta væri ekki í boði og væri ekki í boði fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót.

Ætli það sé einhver frá Símanum sem getur leyst þetta. Sérstaklega þar sem aðrir vaktarar eru með esim frá Símanum á Samsung úrum.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Fim 25. Nóv 2021 20:58
af Nariur
Ég er búinn að grafa aðeins. Það lítur út fyrir að Síminn styðji e-sim á Samsung úrum, en ekki með tengingu við símanúmerið manns, þ.e. bara venjulegt gagnakort. Fullur stuðningur kemur svo á Valve tíma. https://twitter.com/siminn/status/1224690883725012994

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Lau 04. Des 2021 21:45
af jonfr1900
iceair217 skrifaði:
Nariur skrifaði:Síminn var að segja mér að þeir væru ekki með e-sim stuðning á Samsung úrum. Ég er voðalega confused.


Sama hjá mér. Ég var að kaupa Galaxy snjallúr en áður en ég gerði það talaði ég við Símann á netspjalli þar sem mér var sagt að eSim væri í boði án kostnaðar (tengist símanúmerinu mínu) og ég þurfi að koma í verslun til að græja þetta.

Í kjölfarið keypti ég mér úr með LTE stuðningi og fór í símann en þá sagði annar starfsmaður að þetta væri ekki í boði og væri ekki í boði fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót.

Ætli það sé einhver frá Símanum sem getur leyst þetta. Sérstaklega þar sem aðrir vaktarar eru með esim frá Símanum á Samsung úrum.


Ég var að kaupa Galaxy Watch 3 og ég fékk e-sim hjá Síminn sem gagnakort. Það var ekkert vesen. Ég gerði þetta yfir net-spjallið hjá þeim.

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Mið 17. Ágú 2022 12:17
af kjartanbj
Ætli sé ekkert að frétta af esim stuðning hjá fleirum væri fínt að fá þetta í úrið hjá mér með Hringdu

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Mið 17. Ágú 2022 18:58
af russi
kjartanbj skrifaði:Ætli sé ekkert að frétta af esim stuðning hjá fleirum væri fínt að fá þetta í úrið hjá mér með Hringdu


Það er augljóst að símfyrirtækin eru að draga lappirnar allverulega í þessum málum, hafa og meira og minna gefið sömu svör síðustu 2-3 ár.

Afsökun Nova um rafræn skilríki er líka barnaleg þar sem eru til lausnir frá Auðkenni sem tækla þetta, vandamálið þar reyndar að nánast engin er búin að innleiða þá lausn. Það þarf auðvitað að pressa á það og simfyrirtækin eru réttu aðilarnir til þess

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Mið 17. Ágú 2022 19:28
af kjartanbj
Algerlega fáránlegt að þetta sé ekki komið hjá öllum fyrirtækjum. Ég ætla ekkert að færa mig til nova bara til að fá esim í úrið mitt.. Meira ruglið

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Mið 17. Ágú 2022 20:45
af slapi
Var einmitt að fá vinnusíma í dag (Vodafone) og næ ekki að dual simma því ég er hjá Nova og hvorugt fyrir fyrirtækið með esim stuðning #-o ](*,)

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Sun 08. Jan 2023 16:30
af Trihard
Hvað er að frétta hjá Hringdu/símanum? Er of dýrt fyrir þá að fá úr SIM samþykkt hjá Apple?

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Sun 08. Jan 2023 17:00
af GuðjónR
Trihard skrifaði:Hvað er að frétta hjá Hringdu/símanum? Er of dýrt fyrir þá að fá úr SIM samþykkt hjá Apple?

HA? eru þeir ekki komnir með þetta?
Er búinn að nota eSim í nokkur ár hjá NOVA.
Hvaða risaeðlur eru þetta... :guy

Re: eSim hvenær verður það í boði hérlendis?

Sent: Mán 09. Jan 2023 18:39
af Tiger
GuðjónR skrifaði:
Trihard skrifaði:Hvað er að frétta hjá Hringdu/símanum? Er of dýrt fyrir þá að fá úr SIM samþykkt hjá Apple?

HA? eru þeir ekki komnir með þetta?
Er búinn að nota eSim í nokkur ár hjá NOVA.
Hvaða risaeðlur eru þetta... :guy


Nibb.... risaeðlur dauðans og galið dæmi miðað við fréttir frá Símanum síðan 2020 þar sem þeir sögðu "kemur fyrir lok árs".

Screenshot 2023-01-09 at 18.38.04.png
Screenshot 2023-01-09 at 18.38.04.png (1 MiB) Skoðað 3358 sinnum