Síða 1 af 1

Reynsla af Airtag?

Sent: Fim 02. Sep 2021 08:49
af blitz
Hefur einhver hér reynslu af Airtags frá Apple? Var að gæla við að kaupa eitt stykki og setja á hjólið hjá stráknum núna þegar hann er farinn að fara á því í skólann, svona ef því skyldi vera stolið.

Re: Reynsla af Airtag?

Sent: Fim 02. Sep 2021 08:55
af Njall_L
Er með svona á lyklakippunni hjá mér og í skólatöskunni. Hefur ekki enn komið til að ég þurfi að nýta þetta fyrir raunveruleg atvik en öll "demo" atvik sem ég hef prófað hafa komið vel út og auðvelt að finna hlutinn aftur.

Ég tók Airtag fram yfir allt annað á markaðnum vegna þess hve mörg iTæki eru hérlendis og þetta byggir auðvitað á því að ef Airtagið týnist þarf það að pinga eitthvað iTæki sem sendir upplýsingarnar áfram á þig.
Tile byggir á sömu hugmynd en Tile'ið þarf þá að pinga Tile notanda sem ég leyfi mér að fullyrða að séu miklu, miklu færri af heldur en Apple notendum.

Re: Reynsla af Airtag?

Sent: Fim 02. Sep 2021 09:09
af blitz
Njall_L skrifaði:Er með svona á lyklakippunni hjá mér og í skólatöskunni. Hefur ekki enn komið til að ég þurfi að nýta þetta fyrir raunveruleg atvik en öll "demo" atvik sem ég hef prófað hafa komið vel út og auðvelt að finna hlutinn aftur.

Einmitt - eina sem ég velti fyrir mér í þessu var ef hjólið er úr alfaraleið, þá veltur það væntanlega staðsetning á því að einhver með Apple tæki labbar nálægt og pingi taggið?

Re: Reynsla af Airtag?

Sent: Fim 02. Sep 2021 09:17
af dori
Ég er með þetta á lyklakippu og hef notað til að finna hana þegar ég er að flýta mér út og sé hana ekki. Alveg gagnlegt og nokkuð nákvæmt í því sem það segir þér. Þarft samt alveg að vera tiltölulega nálægt til að síminn pikki merkið upp þannig að það geti beint þér í rétta átt.

Annars er þetta minna gagnlegt en ég bjóst við/vonaðist eftir. Ég einhvernvegin gerði bara ráð fyrir að það væri hægt að deila þessu (family sharing eða bara deila taggi beint) en það er ekki í boði þannig að þetta er eingöngu fyrir einn notanda.

Re: Reynsla af Airtag?

Sent: Fim 02. Sep 2021 09:36
af Njall_L
blitz skrifaði:
Njall_L skrifaði:Er með svona á lyklakippunni hjá mér og í skólatöskunni. Hefur ekki enn komið til að ég þurfi að nýta þetta fyrir raunveruleg atvik en öll "demo" atvik sem ég hef prófað hafa komið vel út og auðvelt að finna hlutinn aftur.

Ég tók Airtag fram yfir allt annað á markaðnum vegna þess hve mörg iTæki eru hérlendis og þetta byggir auðvitað á því að ef Airtagið týnist þarf það að pinga eitthvað iTæki sem sendir upplýsingarnar áfram á þig.
Tile byggir á sömu hugmynd en Tile'ið þarf þá að pinga Tile notanda sem ég leyfi mér að fullyrða að séu miklu, miklu færri af heldur en Apple notendum.

Einmitt - eina sem ég velti fyrir mér í þessu var ef hjólið er úr alfaraleið, þá veltur það væntanlega staðsetning á því að einhver með Apple tæki labbar nálægt og pingi taggið?

Já, það er hugmyndin með alla svona trackera.

Re: Reynsla af Airtag?

Sent: Fim 02. Sep 2021 12:38
af sverrirgu

Re: Reynsla af Airtag?

Sent: Fim 02. Sep 2021 14:05
af kelirina
einn mínus sem ég hef tekið eftir. Ekkert family sharing í boði. Annars ágætis tracker

Re: Reynsla af Airtag?

Sent: Þri 02. Maí 2023 13:31
af falcon1
Gæti maður notað Airtag til að finna bílinn sinn aftur á bílastæði/bílastæðahúsi?

Re: Reynsla af Airtag?

Sent: Þri 02. Maí 2023 16:58
af Tiger
Sama hér, er með 4 svona í gangi en hef aldrei lent í að virkilega þurfa á þessu að halda en þetta virkar bara....just works.

bíllykill 1
bíllykill 2
golfsett
hlaupahjól

Og eins og aðrir hafa sagt, að það sé ekki hægt að hafa familly sharing á þessu er helsti ókostur en ekki neinn dealbraker.

Re: Reynsla af Airtag?

Sent: Mið 03. Maí 2023 10:12
af AntiTrust
Með þetta á bíllyklinum og hendi stundum einu í töskur hjá dóttirinni sem setur dótið sitt hingað og þangað - nota þetta líklega 1x í viku og hefur ansi oft bjargað mér.

Re: Reynsla af Airtag?

Sent: Mið 03. Maí 2023 11:12
af russi
þetta á hjólið hjá stelpunni, þetta steinliggur alveg.
Er líka með svona á bíllyklunum og hefur alveg hjálpað stundum þegar maður settur ekki lyklana á venjulega staðinn