Síða 2 af 2

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Sun 03. Okt 2021 21:29
af netkaffi
Frussi skrifaði:Held að það sé alltaf fingerprint authentication
Já, þarft ekki að aflæsa símanum bara réttir hann að posanum og setur þumalinn á símann til að votta greiðslu, síminn helst í lás minnir mig. Geri þetta án þess að hugsa bara þar sem puttinn fer á þægilegan stað og iPhone SE mjög meðfærilegur (minnsti iPhone síminn). Þetta er eins og þú sért að borga með kortinu nema puttinn á ákveðnum stað á kortinu. Þetta er hendin ofan í vasann að sækja símann, og rétta hann að posa með þumalinn á home takkanum/skannannum. Svo gerist nákvæmlega sama ferli á sama hraða og tíma og þegar þú borgar með korti. Í staðin fyrir að hafa kort með mér þá er ég bara með símann með mér eins og venjulega og aldrei klikkað. 100% fool & bulletproof, hvern einasta dag hvert einasta skipti síðan ég fékk þennan síma.

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Mán 04. Okt 2021 14:32
af Rafurmegni
Nariur skrifaði:
Sinnumtveir skrifaði:Ég spyr mig stundum: Hvað er með þetta fólk sem borgar með síma? Tekur oftar en ekki 3 - 10 sinnum lengur en með korti í posa. Nær samt ekki fólkinu sem er með "actual" peninga eða þær konur sem finna ekki kortið sitt í handtöskunni :)


Hvað ertu að tala um? Það tekur nákvæmlega jafn langan tíma. Maður aflæsir símanum og boopar. Búið.


Reyndar fljótlegra að nota símann ef posinn fer fram á pin kóða. Það þarf engan kóða fyrir símann

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Mán 04. Okt 2021 16:33
af thrkll
Apple fanboys alveg úti að aka eins og venjulega :megasmile

Íslandsbanki kynnti fyrstur snertilausar greiðslur fyrir Android í nóvember 2018. Apple Pay kom svo til landsins hálfu ári seinna í maí 2019.

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Mán 04. Okt 2021 23:40
af netkaffi
Ég er n.b. ekki Apple fanboy. Held mér líki frekar við Android. En er ekkert á móti Apple þannig. iPhone SE var fyrsti apple síminn minn og hann virkaði ótrúlega vel. Ég líka kýs minni síma af því ég er ekki það mikið í símanum, og SE er einn minnsti snjallsíminn og er samt mjög öflugur (miðað við þa ðsem ég þarf). Og var líka snilld að strauja með honum.

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Þri 05. Okt 2021 17:13
af TheVikingBear
Það er í mínum síma fítus sem heitir "Tap&pay" sem leyfir mér að borga strax þegar ég aflæsi símanum.
Finn það undir stillingum -> bluetooth & Device Connection -> tap&pay, þarf ekki að opna nein öpp né neitt bara aflæsa símanum og leggja hann að posanum, er með One Plus 7 Pro

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Þri 05. Okt 2021 20:35
af urban
netkaffi skrifaði:
Frussi skrifaði:Held að það sé alltaf fingerprint authentication
Já, þarft ekki að aflæsa símanum bara réttir hann að posanum og setur þumalinn á símann til að votta greiðslu, síminn helst í lás minnir mig. Geri þetta án þess að hugsa bara þar sem puttinn fer á þægilegan stað og iPhone SE mjög meðfærilegur (minnsti iPhone síminn). Þetta er eins og þú sért að borga með kortinu nema puttinn á ákveðnum stað á kortinu. Þetta er hendin ofan í vasann að sækja símann, og rétta hann að posa með þumalinn á home takkanum/skannannum. Svo gerist nákvæmlega sama ferli á sama hraða og tíma og þegar þú borgar með korti. Í staðin fyrir að hafa kort með mér þá er ég bara með símann með mér eins og venjulega og aldrei klikkað. 100% fool & bulletproof, hvern einasta dag hvert einasta skipti síðan ég fékk þennan síma.


Þú semsagt setur fingurinn á fingrafaraskannan.
Það hlýtur að aflæsa símanum.

Landsbankakortið virkar NÁKVÆMLEGA svona eins og þú ert að tala um.
https://www.landsbankinn.is/einstakling ... -greidslur

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Þri 05. Okt 2021 21:02
af orn
ashaiw skrifaði:Ég er með Samsung S21 síma og Íslandsbanka appið. Lendi oft í því að það virkar ekki, þá þarf ég að endurræsa, fara inn í appið og virkja kortið aftur. Þá virkar það stundum strax. Er að fara að gefast upp á þessu en ætla að heya í Íslandsbanka og láta vita.
Þegar þetta virkar er nóg að aflæsa símanum. Er að virka í þriðja til fimmta hvert skipti en kannski er þetta eitthvað mismunandi eftir posum.

Ég er með sama setup og lenti í þessu í upphafi. Það eru samt ansi margir mánuðir síðan ég hef lent í nokkru veseni. Maður þarf samt að passa að aflæsa með trusted aðferð. Held að facial unlock sé ekki nóg (var það a.m.k. ekki), en pin/pattern/fingrafar er það.

Einstaka sinnum er maður beðinn um að aflæsa appinu, en þá opnast það sjálfvirkt og biður um aflæsingu. Flestir posar þekkja þetta og bíða eftir frekari auðkenningu. Lít ekki á það sem vesen. Það er bara jafngildi þess að vera beðinn um PIN endrum og eins með snertilausri greiðslu á korti.

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Þri 05. Okt 2021 21:11
af Sinnumtveir
Svo er þetta:

"Apple Pay with Visa Hacked to Make Payments via Locked iPhones" https://threatpost.com/apple-pay-visa-hacked-locked-iphones/175229/

Í áður ósögðum fréttum sá ég einn gæja borga á nóinu með síma fyrir nokkrum dögum. Sá lógó Landsbankans rétt sem snöggvast á símanum þegar greiðslu lauk.

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Mið 06. Okt 2021 15:42
af netkaffi
urban skrifaði:Þú semsagt setur fingurinn á fingrafaraskannan.
Það hlýtur að aflæsa símanum.
Nei, að aflæsa síma (opna) og votta greiðslu ert tvennt mismunandi, þó bæði sé hægt að gera með fingrafaraskönnun. Þú þarft s.s. ekki að opna símann hjá Apple, bara berð hann að posa og vottar greiðsluna, þarft ekki að loka honum af því hann opnaðist aldrei.

Til að útskýra meira: Möguleikinn að votta greiðslu kemur sjálfkrafa upp þegar þú berð hann að posa. Hann aflæsist aldrei. Þarft ekki að opna hann til þess að fá það upp og staðfesta svo. Þetta er einni handahreyfingu minna en hjá Android tækjum á Íslandi, eða tveimur ef Android þarf líka að loka símanum eftir greiðslu.

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Mið 06. Okt 2021 16:36
af frr
Ég hélt satt að segja að þetta væri margra ára gamall þráður, endurvakinn.
Það er nú ekki þannig að Apple hafi fundið þetta upp. Óralangt frá því.
Símgreiðslur byrjuðu í lok þar síðustu aldar. https://www.smithsonianmag.com/history/ ... 180952727/

Símgreiðslur með SMS árið 1997. Auðvitað finnar á bak við það.
En, eins og komið hefur fram, margir bjóða upp á þetta, t.d. Curve.
En mér finnst eðlilegt að almenningur taki sér tíma í að taka þetta upp. Það er ekkert lame að vera eftir á í tækni sem snýr að mans eigin peningum.

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Mið 06. Okt 2021 20:49
af netkaffi
Ég hélt ekkert að Apple hefði fundið þetta upp. Ég hafði bara heyrt að Android á Íslandi væri ekki með eins öfluga touchless möguleika eða væri ves (í samanburði) og ég vildi vita hvort svo væri áður en ég keypti mér annan Apple síma eða færi í Android eins og mig langar.

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Fim 07. Okt 2021 06:13
af Viktor
frr skrifaði:Símgreiðslur byrjuðu í lok þar síðustu aldar. https://www.smithsonianmag.com/history/ ... 180952727/


Þetta er grein um tíkallasíma #-o

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Fös 08. Okt 2021 12:37
af frr
Sallarólegur skrifaði:
frr skrifaði:Símgreiðslur byrjuðu í lok þar síðustu aldar. https://www.smithsonianmag.com/history/ ... 180952727/


Þetta er grein um tíkallasíma #-o


Upphaftenging peninga og síma. Ég verð að játa að ég hefði mátt orða þetta betur.

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Fös 08. Okt 2021 14:02
af Frussi
Ég er android maður en átti iPhone 7 í tæpt ár þangað til fyrir svona þremur mánuðum, eini iPhone-inn sem ég hef átt og hef engan áhuga á að skipta þangað. Snertilausar greiðslur virkuðu alltaf og ekkert mál að setja upp.

Ég er búinn að reyna í viku að setja upp korta app Landsbankans en ekkert virkar, hringdi í bankann og ekkert virkar. Kærastan er með korta appið og svona einu sinni í viku þarf hún að setja upp "pay in store" sem tekur alveg góðan tíma, allavega lengri tíma en maður vill láta fólk bíða í röð eftir. Ég stend ennþá við það að þetta er eina ástæðan fyrir því að eiga iPhone, alltof ótraust á android ennþá allavega

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Fös 08. Okt 2021 14:49
af Steini B
Ég er búinn að nota appið frá Íslandsbanka nánast frá því að þetta var fyrst í boði og er búinn að nota þetta mjög mikið á 3 mismunandi símum (s9, One+ 8 og s21) svo ég er mjög sáttur með þetta
Eina sem hefur klikkað er klaufaskapur í sjálfum mér og að einu sinni lenti ég í að posinn bað um pin númer, sem á ekki að gerast og var því allt stopp

En þetta er svo mikið sneggra en að nota kortið, og að þurfa ekki að slá inn pin er góður kostur í covid

Svo er ég með Öku, Vinnuvéla og ADR réttindin öll í símanum líka, vantar bara skotvopnaskýrteinið og þá er veskið farið úr sögunni :D

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Fös 08. Okt 2021 15:32
af Dóri S.
Ég nota Fitbit úrið mitt til að borga með. Set inn pin nr. þegar ég set úrið á mig, svo þarf ég bara að halda inni einum takka í augnablik til að virkja kortið (kemur mynd af kortinu á úrið, hægt að vera með mörg sem maður getur valið á milli)

Re: Snertilaust: Eru komnar snertilausar greiðslur í Android síma eins og í Apple hérna á Íslandi?

Sent: Þri 12. Okt 2021 13:25
af netkaffi
Er það ekki rétt hjá mér að það þurfa allir símar og úr að vera með NFC til að borga snertilaust? Er að spá í 2 svipuðum símum hérna, budget símanir frá Nokia og Moto, og bara Nokia virðist vera með NFC.