Síða 1 af 1

Synda með tónlist

Sent: Lau 08. Jan 2022 22:35
af Selurinn
Einhver sniðug græja sem þið mælið með svo hægt sé að synda meðan maður hlustar á tónlist?
Það er það eina sem ég er að leitast eftir, þurfa ekki að vera neinir auka fítusar.
Megið líka benda mér á góð earphones sem virka undir vatni

Re: Synda með tónlist

Sent: Sun 09. Jan 2022 19:33
af mikkimás
Mæli ekki með því að synda með annað en vatn í eyrunum.

Bara mín ráðlegging.

Re: Synda með tónlist

Sent: Sun 09. Jan 2022 19:49
af audiophile
Eitt af fáum vörum sem ég veit um sem eru gerðar fyrir þetta.

https://elko.is/vorur/sony-walkman-4-gb ... 5/NWWS413B

Re: Synda með tónlist

Sent: Sun 09. Jan 2022 22:32
af Selurinn
mikkimás skrifaði:Mæli ekki með því að synda með annað en vatn í eyrunum.

Bara mín ráðlegging.


Einhver sérstök ástæða?

Re: Synda með tónlist

Sent: Sun 09. Jan 2022 22:45
af mikkimás
Engin concrete ástæða. Bara veit hvernig mín eyru og mín heyrn bregst við þegar ég set á mig heyrnatól eftir langa sturtuferð.

Hef staðið í þeirri meiningu lengi að það sé ekki sniðugt fyrir heyrnamekanismann að loka vatn þar inni með in-ear heyrnartólum, en m.v. stutta Google rannsóknarvinnu áðan þá virðist það ekki vera sérstaklega hættulegt.

Þ.a. kannski er ég bara að bulla.

Re: Synda með tónlist

Sent: Mán 10. Jan 2022 07:10
af mainman
dottiraudio.
Fékk svona fyrir konuna mína og hún spilar úr garmin úrinu yfir í þessi headsett og það virkar fínt.
100% vatnsþétt og frábær gæði.

Re: Synda með tónlist

Sent: Mán 10. Jan 2022 07:42
af audiophile
mainman skrifaði:dottiraudio.
Fékk svona fyrir konuna mína og hún spilar úr garmin úrinu yfir í þessi headsett og það virkar fínt.
100% vatnsþétt og frábær gæði.


Bluetooth virkar illa eða ekki neitt í vatni. Þess vegna er spilarinn í heyrnatólunum sem ég linkaði á.