Stækka vinnslminni í fartölvu

Skjámynd

Höfundur
Krissinn
1+1=10
Póstar: 1121
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
Reputation: 1
Staðsetning: RNB
Staða: Ótengdur

Stækka vinnslminni í fartölvu

Pósturaf Krissinn » Mið 16. Sep 2020 22:36

Er vitlaust að stækka vinnsluminnið í fartölvunni hjá mér? Þetta er ASUS VivoBook 15 X505BA tölva. Myndi það bæta hana eitthvað að skipta út eða stækka vinnsluminnið?

Mynd
photo hosting free



Skjámynd

olihar
spjallið.is
Póstar: 428
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 85
Staða: Ótengdur

Re: Stækka vinnslminni í fartölvu

Pósturaf olihar » Mið 16. Sep 2020 23:37

Það þarf allavegana að rífa hana í spað miðað við videó.

https://youtu.be/GcZFapu7jpI




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4170
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1303
Staða: Ótengdur

Re: Stækka vinnslminni í fartölvu

Pósturaf Klemmi » Mið 16. Sep 2020 23:46

Fer bara eftir því hvað þú ert að gera...
Í hvaða vinnslu ertu?

Annars eru skv. Crucial tvær raufar í tölvunni sem styðja allt að 2x16GB af DDR4 vinnsluminni. Ekki dýrt að kaupa 8GB kubb og skella í hana, líklega er 8GB í stökum kubb fyrir svo þá ferðu í 16GB.

Hins vegar sýnist mér á fljótlegu Googli að það þurfi að rífa tölvuna talsvert í sundur til að bæta við vinnsluminni, ef þú þarft að láta verkstæði gera það, þá ertu strax að horfa á ca. 10þús kall aukalega.

En aftur... í hvaða vinnslu ertu, af hverju heldurðu að 8GB séu að hamla þér? :)
Síðast breytt af Klemmi á Mið 16. Sep 2020 23:46, breytt samtals 1 sinni.