Viftan stöðugt í gangi EN


Höfundur
moribund
Nýliði
Póstar: 8
Skráði sig: Fim 17. Des 2009 13:17
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Viftan stöðugt í gangi EN

Pósturaf moribund » Mið 06. Jan 2010 05:39

Hi, ég er að keyra á HP nx6325 laptop sem ég fékk fyrir 2-3 árum, fyrstu mánuðina sem ég átti hana heyrðist aldrei neitt í henni en síðan hægt og rólega fór harði diskurinn að fyllast, ryk að safnast upp, og alskonar óþarfa forrit í tölvuni.

Ég formattaði hana og setti upp windows xp pro uppá nýtt, hreinsaði viftuna og setti nýtt kælikrem undir örgjörvan og er með hana ofan á svona kæliplatta frá computer.is en samt er viftan alltaf á fullu þó það sé ekkert í gangi, t.d. akkurat núna er hún á fullu og það er er 0-5% CPU usage og stærsta forritið sem ég keyri er chrome sem tekur 40k mem usage.

las einhverstaðar að það væri sniðugt að update-a bios-inn, hef ekki gert það ennþá, eitthvað annað sem ykkur dettur í hug ? tölvan kannski bara orðin gömul og lúin ?

fyrirfram þakkir,
kv. óli




TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Viftan stöðugt í gangi EN

Pósturaf TechHead » Mán 11. Jan 2010 12:43

Byrjaðu á að uppfæra bios. Niðurhalaðu svo Coretemp og taktu statusinn á hitanum á örgjörva.

Ef hann er mikið meira en 50°c á Idle þá hefuru annaðhvort klúðrað kælikrems skiptunum eða klikkað á að skrúfa kæliplötuna rétt á örgjörva.
Einnig gæti gasið í hitapípunni á kæliplötunni hafað skemmst/eyðst. Þá þarftu að útvega þér nýtt Thertmal Unit.



Skjámynd

methylman
vélbúnaðarpervert
Póstar: 910
Skráði sig: Fim 13. Mar 2008 00:39
Reputation: 17
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Viftan stöðugt í gangi EN

Pósturaf methylman » Mán 11. Jan 2010 13:03

hreinsaði viftuna ??? þýðir það að þú blést uppsöfnuðu ryki frá kæli-elementinu og hreinsaðir það vel ??

http://www.youtube.com/watch?v=ZS2tKwhigyE



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Viftan stöðugt í gangi EN

Pósturaf Gúrú » Þri 12. Jan 2010 14:54

methylman skrifaði:hreinsaði viftuna ??? þýðir það að þú blést uppsöfnuðu ryki frá kæli-elementinu og hreinsaðir það vel ??

http://www.youtube.com/watch?v=ZS2tKwhigyE

Mjög gott video um hvernig að má gera tölvuna sína háværari með því að skemma legurnar í viftunum.
Ekki nota ryksugu á viftur án þess að hindra það að þær geti snúist fyrst.


Modus ponens