Síða 5 af 6

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 16:50
af stinkenfarten
Hjaltiatla skrifaði:Víst að vandamálið er ennþá til staðar, þá er ég sammála því að til að útiloka að vandamálið er hugbúnaðartengt að strauja vélina og setja upp rekla aftur. Þá geturu allavegana slengt því í andlitið á Att að núna sértu búinn að útiloka að vandamál sé bundið við hugbúnað þ.e.a.s ef það er rétt staðið að hugbúnaðaruppsetningu :megasmile

Edit: Hef ekki tekið eftir því að það sé búið að lista upp vélbúnað í þráðinn. Gæti mögulega hjálpað við villugreiningu

hef oft lent í vandamálum með tölvurnar mínar (pc og laptop) t.d. slow-down eða bara einhvað sem virkar ekki hvernig það á að virka þar sem ég gerði bara factory reset og náði allt mikilvæga niður af google drive-inu mínu, hefur alltaf virkað og leyst málin. mæli með að gera backup af öllu dótinu, setja í google drive eða external disk og gera reset eða installa windows upp á nýtt.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 16:58
af Hjaltiatla
stinkenfarten skrifaði:

Myndi alla daga gera Clean install frekar en að brasast í Windows reset (það er happ og glapp hversu vel það virkar). Yfirleitt tekur þannig aðgerð með sér windows.old möppu sem ég persónulega vill ekki fá með mér (hef lent í vandræðum með vélar sem aðilar "strauja" vélina með Windows reset en hugbúnaðar vandamál leystist ekki fyrr en við gerðum clean install).

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 17:08
af stinkenfarten
Hjaltiatla skrifaði:

já það gæti verið en ég hef ekki lent í því slíku að vandamál hefur ekki leyst eftir restart, ég á microsoft account sem ég linkaði windows kóðann við þannig þegar þörf er á clean install veit ég hvað á að gera \:D/

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 18:31
af grimurkolbeins
gunni91 skrifaði:Þetta er voða erfitt þegar svona bilanir koma upp, hvað þá þegar söluaðili er í vandræðum með að gera við vélina.

Ég persónulega myndi alltaf prufa að strauja tölvuna og setja upp windows upp aftur, vera viss um að allir driverar séu í lagi o.s.f.

Varstu búinn að kanna hvort hitastigið á CPU og GPU sé ok?

Auðvitað á Att að klára málin fyrir þig en ef þetta er software related vesen er lítið hægt að klína ábyrgðinni yfir á Att.

Já allt fullkomlega normal, hitastig á öllu er allt eðlilegt ætla prófa strauja vélina, ef það gengur ekki verð ég víst bara að fara með hana aftur uppí @.is og vona að þeir finni útúr þessu ef ekki fer ég að henda henni í sjóinn hehe..(Djók)

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 18:40
af grimurkolbeins
Specs á vélinni eru:
Asus geforce RTX 2080ti turbo: skjákort
MSI X570 gaming edge: móðurborð
Corsair Vengance 2x8gb RGB pro: minni
Corsair RM850x: aflgjafi
Samsung 970 EVO plus 500gb SSD: harður diskur
Corsair Crystal 460X: kassi
Corsair H100i platinum vökvakæling: örgjafakæling
AMD ryzen 7 3700x: örgjafi

Allt samann í ábyrgð

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 18:49
af Hjaltiatla
grimurkolbeins skrifaði:
gunni91 skrifaði:Þetta er voða erfitt þegar svona bilanir koma upp, hvað þá þegar söluaðili er í vandræðum með að gera við vélina.

Ég persónulega myndi alltaf prufa að strauja tölvuna og setja upp windows upp aftur, vera viss um að allir driverar séu í lagi o.s.f.

Varstu búinn að kanna hvort hitastigið á CPU og GPU sé ok?

Auðvitað á Att að klára málin fyrir þig en ef þetta er software related vesen er lítið hægt að klína ábyrgðinni yfir á Att.

Já allt fullkomlega normal, hitastig á öllu er allt eðlilegt ætla prófa strauja vélina, ef það gengur ekki verð ég víst bara að fara með hana aftur uppí @.is og vona að þeir finni útúr þessu ef ekki fer ég að henda henni í sjóinn hehe..(Djók)

Held að það sé málið. Mæli með að byrja að taka system restore punkt áður en þú installar driverum og þess háttar (strax eftir Windows 10 install).
Þá geturu allavegana bakkað til baka og hrært í uppsetningu ef þú þarft að prófa þig áfram.
Muna að aftengja aðra hdd áður en þú installar Windows 10 (bara hafa einn hdd tengdan).

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 18:56
af Mossi__
Kemur eitthvað upp í Event Viewer?

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 18:57
af Oldman
Ég er enginn sérfræðingur en ég sé að það hefur eitthver lagað þetta með því að kíkja í Edit Power Plan > Change advanced power settings >Processor power management og setja Minimum processor state í 5% eða 0%. Eða slökkva á Windows automatic restart feature.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 19:00
af Klemmi
Skooo... fyrst það var áður vandamál að vélin ræsti ekki nægilega langt til þess að koma mynd á skjáinn, þá finnst mér mjög ólíklegt að það sé stýrikerfisvesen, þó það sé auðvitað ekki hægt að útiloka að þetta séu tvö aðskilin vandamál.

Fyrir mér er þrennt sem er "líklegast". Fyrsta og öðru sæti deila móðurborð og aflgjafi, og í þriðja sæti er það USB tengdar græjur. Það er auðvelt að prófa USB-tengdu græjurnar, með því að nota annað lyklaborð og mús, en mér finnst það ekkert sérlega líklegt m.v. nýja vandamálið um að tölvan drepi á sér.

Ef það er lítið mál að framkalla bilunina núna, þ.e. með því að setja einhvern leik í gang í smá tíma, þá myndi ég skutlast með hana aftur í viðgerð, þó það sé hundfúlt.
Ef tölvan hins vegar getur keyrt í marga klukkutíma án vandræða, þá myndi ég alveg íhuga að splæsa í ódýran en nægjanlega öflugan aflgjafa og tengja við vélina. Ef vandamálið heldur áfram, þá er þó lítið annað í stöðunni heldur en að skutlast aftur með hana í viðgerð, þar sem þú ert ekki að fara að kaupa annað móðurborð til að kanna málið, og svo er auðvitað möguleiki að þetta sé eitthvað af hinum íhlutunum, skjákort eða örgjörvi, en hins vegar er sjaldgæft að bilun í þeim orsaki það að tölva steindrepi á sér (nema að um hitavandamál sé að ræða, en mig minnir að þið séuð búnir að útiloka það?).
Ef þú þarft að fara með hana í viðgerð, þá myndi ég reyna sjálfur að finna eitthvað sem er fljótlegt að framkalla bilunina, svo sem FurMark sem setur álag á skjákortið, eða Prime95 til að djöflast á örgjörva og vinnsluminni. Þá geturðu sagt þeim að yfirleitt komi bilunin fram eftir x mínútur/klst, sem vonandi verður til þess að þeir eru fljótari að finna vandamálið.

Þetta er allt skrifað í ljósi þess að þú segir að hún drepi á sér, þ.e. það slökkni á tölvunni sjálfri. Ef hins vegar er um endurræsingu að ræða, þá er það annar handleggur.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 19:07
af Hjaltiatla
Ef þú þarft að fara með vélina í viðgerð þá er gott að vera búinn að strauja vélina finnst mér. Getur þá alltaf bent þeim á að velja system restore punkt áður en þú byrjaðir að installa driverum ef þeir ætla að benda á þig og senda þig heim með vélina því vandamálið er hugbúnaðar tengt. Reyna að taka eingöngu ábyrgð á því sem snýr að þér og láta Att sjá um hardware viðgerðir sem þeir eiga að gera.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 19:59
af grimurkolbeins
Klemmi skrifaði:Skooo... fyrst það var áður vandamál að vélin ræsti ekki nægilega langt til þess að koma mynd á skjáinn, þá finnst mér mjög ólíklegt að það sé stýrikerfisvesen, þó það sé auðvitað ekki hægt að útiloka að þetta séu tvö aðskilin vandamál.

Fyrir mér er þrennt sem er "líklegast". Fyrsta og öðru sæti deila móðurborð og aflgjafi, og í þriðja sæti er það USB tengdar græjur. Það er auðvelt að prófa USB-tengdu græjurnar, með því að nota annað lyklaborð og mús, en mér finnst það ekkert sérlega líklegt m.v. nýja vandamálið um að tölvan drepi á sér.

Ef það er lítið mál að framkalla bilunina núna, þ.e. með því að setja einhvern leik í gang í smá tíma, þá myndi ég skutlast með hana aftur í viðgerð, þó það sé hundfúlt.
Ef tölvan hins vegar getur keyrt í marga klukkutíma án vandræða, þá myndi ég alveg íhuga að splæsa í ódýran en nægjanlega öflugan aflgjafa og tengja við vélina. Ef vandamálið heldur áfram, þá er þó lítið annað í stöðunni heldur en að skutlast aftur með hana í viðgerð, þar sem þú ert ekki að fara að kaupa annað móðurborð til að kanna málið, og svo er auðvitað möguleiki að þetta sé eitthvað af hinum íhlutunum, skjákort eða örgjörvi, en hins vegar er sjaldgæft að bilun í þeim orsaki það að tölva steindrepi á sér (nema að um hitavandamál sé að ræða, en mig minnir að þið séuð búnir að útiloka það?).
Ef þú þarft að fara með hana í viðgerð, þá myndi ég reyna sjálfur að finna eitthvað sem er fljótlegt að framkalla bilunina, svo sem FurMark sem setur álag á skjákortið, eða Prime95 til að djöflast á örgjörva og vinnsluminni. Þá geturðu sagt þeim að yfirleitt komi bilunin fram eftir x mínútur/klst, sem vonandi verður til þess að þeir eru fljótari að finna vandamálið.

Þetta er allt skrifað í ljósi þess að þú segir að hún drepi á sér, þ.e. það slökkni á tölvunni sjálfri. Ef hins vegar er um endurræsingu að ræða, þá er það annar handleggur.

Já sammála þér hugsa að þetta sé annað hvort aflgjafinn eða þá móðurborðið, en væri ekki sniðugt að fara með hana til þeirra og leyfa henni að vera í gangi hjá þeim þangað til hún endurræsir sig, slekkur á sér eða frosnar og þá sjá þeir allavega að það er eitthvað að?

Ég persónulega kann ekkert alltof mikið á tölvur og er ekki með extirnal driver fyrir Windows og kann í rauninni lítið á tölvur þannig séð, ég bara vinn á henni og spila tölvuleiki.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 20:23
af Klemmi
grimurkolbeins skrifaði:Já sammála þér hugsa að þetta sé annað hvort aflgjafinn eða þá móðurborðið, en væri ekki sniðugt að fara með hana til þeirra og leyfa henni að vera í gangi hjá þeim þangað til hún endurræsir sig, slekkur á sér eða frosnar og þá sjá þeir allavega að það er eitthvað að?

Ég persónulega kann ekkert alltof mikið á tölvur og er ekki með extirnal driver fyrir Windows og kann í rauninni lítið á tölvur þannig séð, ég bara vinn á henni og spila tölvuleiki.

Jú, en eins og ég nefni, þá myndi ég reyna að finna eitthvað sem er fljótlegt að framkalla villuna. Mæli með að prófa FurMark, setja háa upplausn og leyfa því að keyra í 15-20mín. Því ef þú finnur eitthvað sem framkallar villuna hratt, þá er auðvelt fyrir þig að segja @.is það, og þeir þá vonandi fljótari að bilanagreina.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 21:35
af grimurkolbeins
Klemmi skrifaði:

Já get líka sýnt þeim þráðinn uppá allar uppls og hvað er búið að reyna takk Klemmi =)

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fim 21. Jan 2021 21:38
af grimurkolbeins
Fer með hana á mánudaginn þá eru allavega 5 virkir dagar get ekki verið tölvulaus um helgina =P

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fös 22. Jan 2021 12:05
af worghal
Smá skot í myrkri hérna, en prufaðu að taka úr sambandi ALLT front io, usb tengin, hljóð, power takkann, reset... Allt...
Shortaðu svo power button pinnana á móðurborðinu til að kveikja á henni og sjáðu hvað gerist.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fös 22. Jan 2021 19:05
af grimurkolbeins
worghal skrifaði:Smá skot í myrkri hérna, en prufaðu að taka úr sambandi ALLT front io, usb tengin, hljóð, power takkann, reset... Allt...
Shortaðu svo power button pinnana á móðurborðinu til að kveikja á henni og sjáðu hvað gerist.

Vill helst ekki fikta neitt í henni uppá ábyrgðina að gera nenni ekki að reyna meira alveg búin að gefast upp, en takk fyrir góð ráð, fer bara með hana á mánudaginn,
Hún er að restarta sér reglulega núna .

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fös 22. Jan 2021 19:49
af Alfa

Er hún að restarta sér bara að browsa internet eða idle eða undir einhverju álagi? Geturðu notað speccy og sent okkur hitastig idle screenshot og hugsanlega undir álagi, furmark er lítið forrit og einnig prime95 þó það sé algjört overkill. 2080ti Turbo verður líklega vel heitt því kælingin á því er ekki merkileg. En í þessum kassa ætti það þó ekki að endurræsa sig.

Farðu yfir allar tengingar, sérstaklega í skjákortið úr afgjafanum, skoðaðu hvort hægt sé að ýta tengjum betur inn í aflgjafann og í móðurborð (með slökkt á henni auðvitað á meðan).

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Fös 22. Jan 2021 20:00
af Mossi__
Ég hreinlega man ekki hvort að sé búið að spyrja, en:

Er eitthbað overclock? Taka það af..

Er gott loftflæði um tölvuna?

... útfrá því sem Alfa sagði, mér er að detta í hug hvort hún sé að ofhitna...

Tjékka hvort þurfi að rykhreinsa.. fá Att til að kíkja á kælikrem. Bæta loftflæði kringum hana. (Gæti útskýrt af hverju Att náði ekki að famkalla gallan?)

Kíkja á Event Viewer.. þar ætti að sjást einhber error. Sérstaklega ef að þetta er eitthbað software related.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Lau 23. Jan 2021 02:36
af grimurkolbeins
Alfa skrifaði:
grimurkolbeins skrifaði:
worghal skrifaði:Smá skot í myrkri hérna, en prufaðu að taka úr sambandi ALLT front io, usb tengin, hljóð, power takkann, reset... Allt...
Shortaðu svo power button pinnana á móðurborðinu til að kveikja á henni og sjáðu hvað gerist.

Vill helst ekki fikta neitt í henni uppá ábyrgðina að gera nenni ekki að reyna meira alveg búin að gefast upp, en takk fyrir góð ráð, fer bara með hana á mánudaginn,
Hún er að restarta sér reglulega núna .

Er hún að restarta sér bara að browsa internet eða idle eða undir einhverju álagi? Geturðu notað speccy og sent okkur hitastig idle screenshot og hugsanlega undir álagi, furmark er lítið forrit og einnig prime95 þó það sé algjört overkill. 2080ti Turbo verður líklega vel heitt því kælingin á því er ekki merkileg. En í þessum kassa ætti það þó ekki að endurræsa sig.

Farðu yfir allar tengingar, sérstaklega í skjákortið úr afgjafanum, skoðaðu hvort hægt sé að ýta tengjum betur inn í aflgjafann og í móðurborð (með slökkt á henni auðvitað á meðan).

Hún er bara að restarta sér þótt ég sé frammi að horfa á sjónvarpið það er ekkert að skjákortinu búin að prófa 2 mismunandi, tók eftir einu skrítnu áðan rakst örlítið í tölvuborðið mitt og display datt út og þurfti að hard boota vélina til þess að koma henni í gang, þetta er ofar mínum skilningi á tölvum ætla treysta því að @.is finni útúr þessu fyrir mig þar sem ég hef nú notað yfir 2 milljónir í viðskipti við þá í gegnum tíðina og vona að ég haldi áfram að gera það.

Hitastig eru öll normal, þetta er líklegast eins og Klemmi segir aflgjafinn eða móðurborðið.
Allaveganna er villan að koma fram mun oftar núna og má ekki einu sinni rekast í tölvuborðið, ætti að vera nóg til þess að sannfæra þá um að eitthvað sé að vélinni.

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Lau 23. Jan 2021 04:00
af vikingbay
Sælir, mig langaði að koma inn á eitt sem ég held að hafi sennilega ekki komið fram í þessum þræði.
@grimurkolbeins Byrjaði þetta vandamál eftir að kærastan þín lamdi í skjákortið? sbr. þennan þráð hér: viewtopic.php?f=13&t=85558&p=724789#p724789
Eða var þetta einnig að gerast fyrir það atvik?

Mér finnst allavega vert að minnast á það í þessum þræði að það var hlutur sem gerðist, og gæti haft einhver áhrif á þessa hegðun.
Ég kíkti á þessa tölvu fyrir nokkru síðan, skjákortið kveikti ekki á sér. Engin ljós eða neitt.
Ég skipti því út fyrir öðru skjákorti sem ég kom með og vissi og veit fyrir víst að virkar, það sneri ekki einusinni viftunum eða neitt.
Ég setti þar af leiðandi skjákortið í neðra slottið, og við það virtist það virka vel og stress testaðist með góðu móti.
Síðan veit ég ekki söguna meir..

Áður en við förum að eyða meiri hausverk í þetta fannst mér allavega réttast að öll spilin væru uppi á borðinu.
Bestu kveðjur!

Edit: sorry ef þetta kom framm einhversstaðar, ég eiginlega bara nennti ekki að athuga það

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Lau 23. Jan 2021 05:37
af Funday
vikingbay skrifaði:Sælir, mig langaði að koma inn á eitt sem ég held að hafi sennilega ekki komið fram í þessum þræði.

ohhh shit einhver vel lesinn á vaktinni sem kom ástæðuna fyrir þessu veseni

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Lau 23. Jan 2021 13:54
af MatroX
vikingbay skrifaði:Sælir, mig langaði að koma inn á eitt sem ég held að hafi sennilega ekki komið fram í þessum þræði.
@grimurkolbeins Byrjaði þetta vandamál eftir að kærastan þín lamdi í skjákortið? sbr. þennan þráð hér: viewtopic.php?f=13&t=85558&p=724789#p724789
Eða var þetta einnig að gerast fyrir það atvik?

Mér finnst allavega vert að minnast á það í þessum þræði að það var hlutur sem gerðist, og gæti haft einhver áhrif á þessa hegðun.
Ég kíkti á þessa tölvu fyrir nokkru síðan, skjákortið kveikti ekki á sér. Engin ljós eða neitt.
Ég skipti því út fyrir öðru skjákorti sem ég kom með og vissi og veit fyrir víst að virkar, það sneri ekki einusinni viftunum eða neitt.
Ég setti þar af leiðandi skjákortið í neðra slottið, og við það virtist það virka vel og stress testaðist með góðu móti.
Síðan veit ég ekki söguna meir..

Áður en við förum að eyða meiri hausverk í þetta fannst mér allavega réttast að öll spilin væru uppi á borðinu.
Bestu kveðjur!

Edit: sorry ef þetta kom framm einhversstaðar, ég eiginlega bara nennti ekki að athuga það

wtf segir sig sjálft bara að þetta móðurborð er ónýtt og þetta kemur att bara ekkert við og ef eigandinn reynir í alvöru að fá þetta útur ábyrgð :mad :mad :mad

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Lau 23. Jan 2021 14:25
af GuðjónR
vikingbay skrifaði:Sælir, mig langaði að koma inn á eitt sem ég held að hafi sennilega ekki komið fram í þessum þræði.
@grimurkolbeins Byrjaði þetta vandamál eftir að kærastan þín lamdi í skjákortið? sbr. þennan þráð hér: viewtopic.php?p=724789#p724789

Ég var búinn að gleyma þessu...

grimurkolbeins skrifaði:Konan mín ákvađ ađ berja tölvuna mína ađeins xD
En allaveganna er eins og skjákortiđ hafi skemmst en er til í ađ borga 10k fyrir einhvern til ađ koma og sjá hvađ hefur skemmst eđa hvort hún sjé í lagi
viewtopic.php?p=724789#p724789

@grimurkolbeins ef tölvan hætti að virka eftir að konan þín barði hana hvernig dettur þér þá í hug að stofna þráð á þessum nótum?
grimurkolbeins skrifaði:Jæja þá er ég tölvulaus enn einn daginn, Ég er međ tölvu sem ég keypti af þeim á 489k, Alltaf gert viđskipti viđ þá og búin ađ láta mann á vaktinni kíkja á hvad væri ađ tölvunni því þađ kom engin mynd á skjáinn(ég kann ekki mikiđ á tölvur) Enn mér finnst gaman ađ spila tölvuleiki/vinna Í tölvunni. Gæjin á vaktinni sagđi mér strax ađ efra bridgeportiđ fyrir skjákortiđ væri bilađ á móđurborđinu Og neđra virkađi , jæja ég geri mér ferđ í @.is og þurfti ađ bíđa yfir heila helgi og svo hringja þeir og segja ađ ekkert sé ađ móđurborđinu og ég fer heim mjög spenntur ađ komast í tölvunna mína en nei nei kemur engin mynd á skjáinn og músin fer ekki í gang eđa mýsnar búin ađ prófa 3, lyklaborđiđ fer í gang og tölvan En engin mynd á skjáinn sem er 3 mánada í topp lagi, Þetta kalla ég léleg vinnubrögđ, ég spurđi hvort hann ætti ekki flottan G sync skjá fyrir mig og hann ignoreađi mig bara gamli kallinn þarna og ég bara okay you dont want my money..... En núna sit ég heima (tölvulaus aftur) og brjálađur. Vildi bara segja þetta hérna afþví þetta kalla ég ekki góđ vinnubrögđ
https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?p=726420#p726420

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Lau 23. Jan 2021 14:53
af Alfa
Þetta er að verða eins og í alvöru reyfara, hver á að leika starfsmenn @tt í bíomyndinni?

Re: [Málið leyst] @.is

Sent: Lau 23. Jan 2021 19:15
af grimurkolbeins
Þetta var að gerast áður og hún rétt lamdi í kassann, en mér er sama um ábyrgðina, vill bara laga tölvuna mína er alveg tilbúin í að kaupa nýtt móðurborð vill bara laga tölvuna mína (money er ekki issue)

og edit hún er 50 kg, xD