Síða 1 af 1

"Allsherjaryfirferð" þjónusta hjá tölvuverslunum

Sent: Fös 20. Feb 2026 00:02
af falcon1
Ég sé að Kísildalur býður uppá "Allsherjaryfirferð" á tölvum... er þetta eitthvað sem er sniðugt að láta gera af fagmönnum? Maður er kannski ekki sá duglegasti að rykhreinsa og svoleiðis, er samt nokkuð viss um að tölvan sé vírusfrí, og tölvan er að detta í 4 ára aldurinn núna í sumar. Virkar samt mjög fínt finnst mér, allavega fyrir það sem ég er að gera dags daglega.

https://kd.is/category/36/products/113

Re: "Allsherjaryfirferð" þjónusta hjá tölvuverslunum

Sent: Fös 20. Feb 2026 00:24
af Gemini
Stutta svarið nei, ekki fyrir 20.000 kr. Rykhreinsa tölvuna er nú nokkuð simple. Flestar nútímatölvur líka með síur sem grípa mest af þessu ryki fyrir mann sem er auðvelt að taka úr og hreinsa bara. En auðvitað hreinsar betur með loftpressu eins og þeir líklega gera. En er þörf á því, líklega ekki. Þeir eru ekkert að fara að taka allt úr tölvunni þinni og pússa sko. Ef þú ert keðjureykingarmaður og tölvan er ein tjara segja þeir bara sorry nei nennum þessu ekki.

Að leita að vandamálum í vélbúnaði sem er ekki sína nein merki um bilanir er nokkuð tilgangslaust tbh. Fyrir utan að þú getur sjálfur gert það mjög easy með forriti eins og OCCT t.d. En honestly sé engan tilgang að leita að vandamálum sem eru ekki til staðar. Dálítið eins og að fara í öll test uppi á spítala þegar maður er heilbrigður.

Vírushreinsa stýrikerfið er nú bara einhver scripta líklega hjá þeim sem runnar bara malwarebytes og/eða eitthvað álíka. Getur downloadað þessu frítt sjálfur og keyrt... Windows update á nú að sjá um sig sjálft svo :P