Síða 1 af 1

Skipta um ofnastilli

Sent: Fös 03. Jan 2020 16:07
af DoofuZ
Ég er að fara að skipta um ofnastilli á einum ofni, ætla að setja svona bluetooth ofnastilli (Danfoss Eco) á en er í smá veseni með að taka þann gamla af. Ég hef oft tekið ofnastilla af heima hjá mér til að losa um pinnann undir og það er frekar auðvelt en nú er ég að gera þetta á ofni hjá öörum en mér og þar er stillirinn aðeins öðruvísi.

Það er svoldið langt síðan ég tók ofnastilli af heima hjá mér svo ég man ekki hvort ég skrúfaði fyrst alveg niður í 0 eða opnaði alveg en ég man að ég fór eftir leiðbeiningum sem ég fann á netinu og þær sögðu pottþétt það sama og það sem ég er að lesa núna sem er að það eigi að setja stillinn alveg í botn áður en hann er tekinn af. Vandamálið þar er að hann er í 4 og það er bara ekki hægt að snúa meira, en það er alveg hægt að snúa niður í núll. Er í lagi að ég taki stillinn af í 4?

20200102_031850.jpg
20200102_031850.jpg (1.2 MiB) Skoðað 5276 sinnum

Svo annað, til að taka stillinn af, skrúfa ég þá í sundur klemmuna þarna undir eða á ég að geta smellt þessu bara af? :-k

20200102_031839.jpg
20200102_031839.jpg (1.22 MiB) Skoðað 5276 sinnum

Re: Skipta um ofnastilli

Sent: Fös 03. Jan 2020 16:16
af Myro
Opnaðu hann eins mikið og hægt er til að hann sé lausari, 4 er alveg nóg. Svo bara losa skrúfuna og þá fer hann auðveldlega af

Re: Skipta um ofnastilli

Sent: Fös 03. Jan 2020 16:21
af Pandemic
Þessi ofnstillir virkar ekki á ofna sem stilla hitann á úttakinu

Re: Skipta um ofnastilli

Sent: Fös 03. Jan 2020 17:04
af DaRKSTaR
Pandemic skrifaði:Þessi ofnstillir virkar ekki á ofna sem stilla hitann á úttakinu


þetta er réttur hitastillir á úttak.

Re: Skipta um ofnastilli

Sent: Þri 07. Jan 2020 15:21
af DoofuZ
Myro skrifaði:Opnaðu hann eins mikið og hægt er til að hann sé lausari, 4 er alveg nóg. Svo bara losa skrúfuna og þá fer hann auðveldlega af

Jæja, ég tók stillinn af og ætlaði að setja þann nýja á en þá kom upp smá vandamál, sá nýji passar ekki alveg á. Það fylgja með stillinum tvö millistykki sem maður setur fyrst á en það passar ekki alveg, skífan undir pinnanum er aðeins of breið :knockedout

20200106_015230.jpg
20200106_015230.jpg (106.57 KiB) Skoðað 5018 sinnum

Hvernig kem ég þessum stilli á? Þarf ég að kaupa eitthvað annað millistykki eða er hægt að minnka skífuna undir pinnanum einhvern veginn?

maxresdefault.jpg
maxresdefault.jpg (80.95 KiB) Skoðað 5018 sinnum

Þarna eru öll millistykkin sem eru til fyrir þetta, þau sem fylgdu með stillinum eru M30 og RA. Gæti verið að ég þurfi efri RAV hringinn þarna?

Einhver hér sem hefur reynslu af því að setja svona stilli á og lent í svipuðu vandamáli?

Re: Skipta um ofnastilli

Sent: Þri 07. Jan 2020 15:49
af einarth
Já - fór í gegnum þetta. Þessir stillar passa ekki á frárennslis-loka (retur-neðan á ofninum) - passa bara á inntaks-loka (tur-ofan á ofninum). Ég fór í að skipta um loka á mínum ofnum - var kominn tími á það hvort sem var..

Re: Skipta um ofnastilli

Sent: Þri 07. Jan 2020 16:36
af DoofuZ
einarth skrifaði:Já - fór í gegnum þetta. Þessir stillar passa ekki á frárennslis-loka (retur-neðan á ofninum) - passa bara á inntaks-loka (tur-ofan á ofninum). Ég fór í að skipta um loka á mínum ofnum - var kominn tími á það hvort sem var..

Ok, á ég þá að setja þetta á inntaks-lokann? Eða þarf ég að láta skipta um loka eins og þú gerðir? Er það ekki vesen og kostar eitthvað?

Re: Skipta um ofnastilli

Sent: Þri 07. Jan 2020 17:03
af Myro
Þú þarft að skipta þessum loka út fyrir túr loka eins og einarth sagði. Kostar ca 8 þús að kaupa nýjan loka og stillité per ofn. Vinnan fer svo eftir aðstæðum og fjölda ofna, ca 15 þús per ofn

Re: Skipta um ofnastilli

Sent: Þri 07. Jan 2020 17:37
af DoofuZ
Frábært! Keypti þetta í jólagjöf handa vini mínum, átti að vera eitthvað sniðugt en er bara að búa til vesen og auka kostnað #-o

Kannski get ég sett þetta á einhvern annan ofn hjá honum, vonandi eru ekki allir ofnanir hans eins 8-[