Síða 1 af 1

MSFS2020

Sent: Mán 21. Sep 2020 22:49
af BITF16
Kannski asnalega spurt en

Hvað kostar Microsoft Flight Simulator 2020 ?

Re: MSFS2020

Sent: Mán 21. Sep 2020 22:51
af SolidFeather
$59.99 USD á Steam

Re: MSFS2020

Sent: Mán 21. Sep 2020 23:42
af BITF16
Ég meina kannski brúttó ; :roll:

Re: MSFS2020

Sent: Þri 22. Sep 2020 07:33
af Pubg
Ég held, betra að sjá x box game pass ;)
https://www.xbox.com/en-US/games/micros ... -simulator

Re: MSFS2020

Sent: Þri 22. Sep 2020 09:07
af Dropi
BITF16 skrifaði:Ég meina kannski brúttó ; :roll:

Hann hefur hingað til kostað tölvuna mína ótalda notkun þar sem skjákortið situr og keyrir funheitt á loading og update screens, ásamt því að kosta mig allt samband við mína nánustu.

ILS auto lending á A320 er eins og engin önnur upplifun eftir að hafa flogið öllum litlu vélunum og lent þeim allskonar á hlið og á hvolfi. Fyrir utan að ég misskildi hvernig maður virkjar reverse thrust (keybinding + full throttle ekki bara keybindið eitt og sér) þar sem ég rakaði næstum því burt loftnetunum á brautarendanum hefur gengið vel að læra á þessar stóru.

Einnig er einhver mjög nettur búinn að lagfæra Ísland að stóru leiti, í default leiknum vantar allar merkilegar byggingar í Reykjavík og það eru milljón tré á öllum fjöllum og sandströndum.
https://www.reddit.com/r/MicrosoftFligh ... _overhaul/

P.s. það er ekki hægt að lenda Icon á skólavörðustíg, gatan er of mjó :(

Re: MSFS2020

Sent: Þri 22. Sep 2020 09:56
af bjoggi
Dropi skrifaði:Einnig er einhver mjög nettur búinn að lagfæra Ísland að stóru leiti, í default leiknum vantar allar merkilegar byggingar í Reykjavík og það eru milljón tré á öllum fjöllum og sandströndum.
https://www.reddit.com/r/MicrosoftFligh ... _overhaul/

P.s. það er ekki hægt að lenda Icon á skólavörðustíg, gatan er of mjó :(

Magnað! Prófa þetta í kvöld :)

Re: MSFS2020

Sent: Þri 22. Sep 2020 16:21
af thordur03
11 þúsund íslenskar a microsoft store mikið betri díll heldur en að borga í dollurum

Re: MSFS2020

Sent: Þri 22. Sep 2020 16:48
af thordur03
Eða reyndar 6 þusund fyrir standard edition