Aðstoð - Stuðningur móðurborðs á örgjörva.

Skjámynd

Fennimar002
Ofur-Nörd
Póstar: 259
Skráði sig: Sun 24. Feb 2019 17:32
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð - Stuðningur móðurborðs á örgjörva.

Pósturaf Fennimar002 » Mán 19. Apr 2021 12:39

Þá meina ég bara að endurstilla bios'ið aftur í "factory settings".


Main:
Ryzen 5 5600x | Asus ROG Strix B550-f | Vengeance RGB Pro 4x8gb | Asus ROG Strix RTX 3070 ti | Phanteks Evolv | RM850x | Samsung 980 pro | ROG Swift 27" 144hz | ROG Strix 27" 144hz

Secondary:
Ryzen 5 3700x | Asus Prime X370 | Trident Z 2x16gb | Asus ROG Strix GTX 1070 | Phanteks P400s | RM650i | Samsung 970 EVO Plus

Skjámynd

oliuntitled
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 318
Skráði sig: Mán 29. Jún 2009 15:56
Reputation: 103
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð - Stuðningur móðurborðs á örgjörva.

Pósturaf oliuntitled » Mán 19. Apr 2021 14:32

Ef þú ert óviss með að núllstilla bios að þá er gamla leiðin alltaf til ... taka rafmagnssnúruna úr sambandi, taka batteríið úr móðurborðinu og bíða í 15-20 mín, setja svo batteríið aftur á og rafmagn í samband.

Tímafrek leið en mjög mjög einföld




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4168
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1301
Staða: Tengdur

Re: Aðstoð - Stuðningur móðurborðs á örgjörva.

Pósturaf Klemmi » Mán 19. Apr 2021 14:40

Skooooo, það er auðvitað eitthvað að ef að móðurborðið tekur ekki aftur við gamla örgjörvanum.
"Líklega" ekki BIOS vandamálið, fyrst að hún ræsti aftur með honum í, og allt virkaði fínt áður en þú færðir örgjörva á milli. Frekar þá að eitthvað hafi klikkað í þessum örgjörvaskiptum :(

Ég myndi ekki vilja kalla þetta game-over fyrir tölvuna, finnst líklegt og vona að þú getir fengið móðurborð fyrir þetta notað á ca. 5-7þús kall, en auðvitað bara spurning hvenær fólk er að auglýsa þetta til sölu. Kannski á einhvert verkstæðið svona móðurborð sem það er til í að selja, ef þér þykir ekki leiðinlegt að stússast í svona, þá geturðu prófað að hringja í verslanirnar :)

En ef þig langar bara að drífa þetta í lag, þá geturðu auðvitað keypt þér nýtt móðurborð, örgjörva og minni...




Höfundur
Siggigudmars
Græningi
Póstar: 31
Skráði sig: Sun 24. Nóv 2019 12:56
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Aðstoð - Stuðningur móðurborðs á örgjörva.

Pósturaf Siggigudmars » Mán 19. Apr 2021 23:38

GÓÐIR HLUTIR GERAST HÆGT ! ! !

Þið eruð snillingar. Takk æðislega fyrir aðstoðina.
Án YKKAR hefði þetta aldrei tekist hjá mér.
Ykkar tillögur urðu mér hvatning í að halda áfram og gefast ekki upp. Og það borgaði sig.

Ég fór yfir allt aftur. Allt frá því að yfirfara tengingar, jumpera á milli CMOS, taka rafhlöðuna úr og reyna gera beyglaða pinnan betri.

Fór í gengum setupið í BIOS og búinn að endurræsa tölvuna þrisvar. Eins og vel smurð vél.
Eina sem er eftir, er að fá annan skjáinn inn aftur.

Takið hrósuðu til ykkar,, þið sem hjálpuðu mér í gegnum þetta.

Ískaldur rafrænt drykkur til ykkar.

Allavega ætla ég að fá mér ískaldan bjór. :happy
Viðhengi
20210419_224032.jpg
20210419_224032.jpg (1.56 MiB) Skoðað 779 sinnum
20210419_231251.jpg
20210419_231251.jpg (786.54 KiB) Skoðað 779 sinnum