Síða 1 af 1

Rafhlöðuskipti Macbook 12"

Sent: Þri 25. Maí 2021 20:53
af peturthorra
Sæl/Sælir, eru einhverjir aðrir en Epli/Macland sem taka að sér að skipta um rafhlöðu í Macbook 12" (Early 2015)? Mér nefnilega þykir vænt um annan handlegginn á mér og vill helst ekki missa hann í kostnað.

Endilega ef þið vitið um einhver fyrirtæki og/eða einstaklinga sem taka svona að sér, megið endilega deila því með mér.

Re: Rafhlöðuskipti Macbook 12"

Sent: Þri 25. Maí 2021 22:12
af audiophile
Hefur þú skoðað Smartfix.is?

Re: Rafhlöðuskipti Macbook 12"

Sent: Þri 25. Maí 2021 22:19
af ChopTheDoggie
audiophile skrifaði:Hefur þú skoðað Smartfix.is?

Svo líka IcePhone.

Re: Rafhlöðuskipti Macbook 12"

Sent: Mið 26. Maí 2021 09:18
af GullMoli
ChopTheDoggie skrifaði:
audiophile skrifaði:Hefur þú skoðað Smartfix.is?

Svo líka IcePhone.

Get ekki sagt að ég hafi heyrt góða hluti af rafhlöðunum þeirra, endingin séu nokkrir mánuðir fyrir iPhone, en vissulega ódýrara.

Ef þú vilt rafhlöðu sem kemur til með að endast, þá kostar það einfaldlega sitt og þá mæli ég með VISS eða Epli. VISS hafa reynst mér mjög vel með Apple viðgerðir og ábyrgðir.

Re: Rafhlöðuskipti Macbook 12"

Sent: Mið 26. Maí 2021 11:26
af Pandemic
Viss verkstæðið er Macland í dag. Held að Epli og Macland skipti út öllu top-caseinu á þessu módeli til þess að skipta um batterý.

Re: Rafhlöðuskipti Macbook 12"

Sent: Mið 26. Maí 2021 11:57
af peturthorra
Pandemic skrifaði:Viss verkstæðið er Macland í dag. Held að Epli og Macland skipti út öllu top-caseinu á þessu módeli til þess að skipta um batterý.

Þau gera það. Og það kostar 70.000kr, ég er ekki alveg tilbúinn að þann kostnað :D

Re: Rafhlöðuskipti Macbook 12"

Sent: Mið 26. Maí 2021 20:38
af ChopTheDoggie
peturthorra skrifaði:
Pandemic skrifaði:Viss verkstæðið er Macland í dag. Held að Epli og Macland skipti út öllu top-caseinu á þessu módeli til þess að skipta um batterý.

Þau gera það. Og það kostar 70.000kr, ég er ekki alveg tilbúinn að þann kostnað :D

:catgotmyballs og ég sem var að selja mína Macbook Pro 2014 á svipuðu verði, viltu ekki bara kaupa hana af mér á 60? :guy
En er ekki spurning um að panta nýja rafhlöðu og skipta um sjálfur? Gæti sparað þér mörg, mörg þúsundkalla.

Re: Rafhlöðuskipti Macbook 12"

Sent: Mið 26. Maí 2021 22:03

Algjörlega, ef ég fyndi rafhlöðu sem er send til Íslands :/

Re: Rafhlöðuskipti Macbook 12"

Sent: Fim 27. Maí 2021 09:49
af Opes
Rafhlaðan er límd í botninn á þessari vél, ekki toppinn eins og á flestum vélum í dag.
Því er skipt um alla botnplötuna í þessu tilviki.

Ef rafhlaðan fellur á rafhlöðuprófi þá getum við pantað botnplötu (m. rafhlöðu) á svokölluðu "battery-only" verði sem kostar 50.900 kr. m. vsk og vinnu (þar af er 1 tími í vinnu við ísetningu og prófanir, 15.990 kr.) hjá okkur í Macland.

Almennur afgreiðsutími á svona er um 5 virkir dagar hjá okkur.

Re: Rafhlöðuskipti Macbook 12"

Sent: Fim 27. Maí 2021 18:28
af jeep84
Hef fengið send batterý frá þessum aðila ( https://hobbyking.com) sem ég lóða svo saman sjálfur, fékk batterý í borvél .

Re: Rafhlöðuskipti Macbook 12"

Sent: Fim 27. Maí 2021 21:02
af KristinnK
Hérna getur þú keypt rafhlöðu+botn 155 bandaríkjadali með flutningagjaldi, þ.e. undir 25 þús. komið heim með öllum gjöldum. Ert svo enga stund að skipta um þetta, tekur þennan mann bókstaflega innan við tvær mínútur að taka af botninn með batteríið.

Ég myndi nú halda að þetta sé skárri kostur en að borga yfir 50 þúsund til að láta gera fyrir þig.