Síða 1 af 1

margir flakkarar.

Sent: Fim 10. Jún 2021 20:30
af emil40
Hæ Félagar.

Ég er með fimm sata diska tengda inn í tölvunni, tvo m2 diska og svo er ég með 9 flakkara en ég fæ bara 10 drif upp. Eruð þið með einhverja uppástunga af hverju það koma ekki allir diskarnir upp ?

Eins og þið sjáið þá koma 15 diskar upp í device manager en ég fæ bara 10 diska upp hjá mér

Re: margir flakkarar.

Sent: Fim 10. Jún 2021 20:47
af mjolkurdreytill
Ertu búinn að ganga úr skugga um að allir flakkararnir virki?

Finndu út hver er ekki að birtast og athugaðu hvað gerist ef þú tengir bara þann flakkara.

Re: margir flakkarar.

Sent: Fim 10. Jún 2021 23:27
af emil40
mjolkurdreytill skrifaði:Ertu búinn að ganga úr skugga um að allir flakkararnir virki?

Finndu út hver er ekki að birtast og athugaðu hvað gerist ef þú tengir bara þann flakkara.



Hæ mjólkurdreytill. Allir komnir inn núna get ég ekki annað en verið sáttur. Ég fór í disk management og náði að gefa diskum nýjann bókstaf þar og svo er þetta allt komið.

Ég er núna með 44 tb tengd við tölvuna í einu það er bara fínt.

Re: margir flakkarar.

Sent: Fös 11. Jún 2021 07:30
af Viktor

Re: margir flakkarar.

Sent: Fös 11. Jún 2021 13:38
af emil40
Sallarólegur skrifaði:It's a thing

https://en.wikipedia.org/wiki/Digital_hoarding


takk fyrir þessa grein. Þetta er svo satt

Re: margir flakkarar.

Sent: Fös 11. Jún 2021 20:05
af Longshanks
Afhverju seturðu ekki ehv af þessum diskum inn í Kassann? Hann tekur 10 hdd internally, aflgjafinn er nógu öflugur :-k

Re: margir flakkarar.

Sent: Lau 12. Jún 2021 03:09
af emil40
Longshanks skrifaði:Afhverju seturðu ekki ehv af þessum diskum inn í Kassann? Hann tekur 10 hdd internally, aflgjafinn er nógu öflugur :-k


Það er nú saga að segja frá því .... Ég þurfti að taka eina diskastæðu úr sem hefði tekið fjóra diska vegna þess að radeon 6800 red dragon skjákortið var lengra en ég gerði ráð fyrir. Það munaði ekki miklu en samt það miklu að ég varð að taka diskastæðuna úr haha

Re: margir flakkarar.

Sent: Lau 12. Jún 2021 22:30
af Longshanks
emil40 skrifaði:
Longshanks skrifaði:Afhverju seturðu ekki ehv af þessum diskum inn í Kassann? Hann tekur 10 hdd internally, aflgjafinn er nógu öflugur :-k


Það er nú saga að segja frá því .... Ég þurfti að taka eina diskastæðu úr sem hefði tekið fjóra diska vegna þess að radeon 6800 red dragon skjákortið var lengra en ég gerði ráð fyrir. Það munaði ekki miklu en samt það miklu að ég varð að taka diskastæðuna úr haha



Skil þig, ég reddaði svipuðu vandamáli með svona hdd búri https://www.ebay.com/itm/Hard-Drive-Cad ... 490111dab4 og fyrir fleiri sata port https://www.ebay.com/itm/LSI-9211-4i-IB ... 48f9068c88 ég þoli bara ekki external diska :no

Re: margir flakkarar.

Sent: Lau 12. Jún 2021 23:02
af urban
Sallarólegur skrifaði:It's a thing

https://en.wikipedia.org/wiki/Digital_hoarding


ójá, rosa mikið, er rosa ánægður að hafa losnað útúr þessu á sínum tíma :)
Meina, maður tók þátt í því að stofna p2p samfélag á sínum tíma útaf því hversu slæmur maður var í þessu.

Re: margir flakkarar.

Sent: Lau 12. Jún 2021 23:25
af mjolkurdreytill
urban skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:It's a thing

https://en.wikipedia.org/wiki/Digital_hoarding


ójá, rosa mikið, er rosa ánægður að hafa losnað útúr þessu á sínum tíma :)
Meina, maður tók þátt í því að stofna p2p samfélag á sínum tíma útaf því hversu slæmur maður var í þessu.


Hvað var safnið stórt í þá daga? Náði það meira en 10 terabætum ?

Re: margir flakkarar.

Sent: Lau 12. Jún 2021 23:59
af urban
mjolkurdreytill skrifaði:
urban skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:It's a thing

https://en.wikipedia.org/wiki/Digital_hoarding


ójá, rosa mikið, er rosa ánægður að hafa losnað útúr þessu á sínum tíma :)
Meina, maður tók þátt í því að stofna p2p samfélag á sínum tíma útaf því hversu slæmur maður var í þessu.


Hvað var safnið stórt í þá daga? Náði það meira en 10 terabætum ?


ekki hjá mér á þeim tíma, en það eru líka alveg 15 ár síðan að ég var að standa í þessu :)
Minnir að ég hafi verið með tæp3 TB þegar að ég var með mest, en það má líka benda á að bluRay kom líka bara fram á sjónarsviðið um það leyti.

Myndir voru semsagt 700MB flestar en þó einhverjar í DVD rip, sem að gerði þær að ca4 GB ef að ég man rétt.
Þá voru ekki til leikir sem að tóku tugi eða jafnvel hundruði GB einsog í dag :)

Re: margir flakkarar.

Sent: Sun 13. Jún 2021 00:25
af Longshanks
Data hoard eða ekki, Steam + Epic etc og margir taka upp 4k vids daglega, hdd framleiðendur hafa bara ekki náð að halda í við þróunina.