Dauð PC


Höfundur
Vinni
Græningi
Póstar: 32
Skráði sig: Fös 25. Nóv 2005 13:17
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Dauð PC

Pósturaf Vinni » Lau 07. Ágú 2021 01:32

Ég er orðinn eitthvað ryðgaður í tölvubrasinu og gæti þegið smá aðstoð;

Ég er með PC turn, með Gigabyte GA-Z270X Gaming 5 móðurborði og Intel i7 7700K örgjörva.
Þessi græja dó á einhverju netvafri og svarar engu.

Ég svissaði PSU, búinn að aftengja allt frá borðinu nema PSU og það gerist ekkert þegar ég reyni að starta henni. Engin ljós, engar viftur (ef þær eru tengdar). Kippti minninu úr og öllum kortum. Tók BIOS batterí úr. Sama saga, ekkert að frétta.

Ég er uppiskroppa með hugmyndir til að prófa.
Tilgáta 1 er að móðurborðið sé ónýtt.
Tilgáta 2 er að örgjörfinn hafi farið, finnst það ólíklegt.

Er ég að missa af einhverju?




jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2352
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf jonfr1900 » Lau 07. Ágú 2021 01:55

Það hefur væntanlega farið þéttir í móðurborðinu eða viðnám.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2236
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 372
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf Moldvarpan » Lau 07. Ágú 2021 07:22

Vinni skrifaði:Ég svissaði PSU, búinn að aftengja allt frá borðinu nema PSU og það gerist ekkert þegar ég reyni að starta henni.


Hvað þýðir svissaðir PSU, en aftengdir ekki PSU?




Höfundur
Vinni
Græningi
Póstar: 32
Skráði sig: Fös 25. Nóv 2005 13:17
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf Vinni » Lau 07. Ágú 2021 11:27

Moldvarpan skrifaði:
Vinni skrifaði:Ég svissaði PSU, búinn að aftengja allt frá borðinu nema PSU og það gerist ekkert þegar ég reyni að starta henni.


Hvað þýðir svissaðir PSU, en aftengdir ekki PSU?

Setti annan aflgjafa í vélina. Sá gamli reyndist ekki vera vandamálið.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2236
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 372
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf Moldvarpan » Lau 07. Ágú 2021 12:59

Nú þegar ég skil þig betur :) Þá jú, myndi halda móðurborðið.



Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1252
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 129
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf Minuz1 » Sun 08. Ágú 2021 01:01

Rafmagnið frá veggnum, snúran, takkinn á kassanum farinn?
Annars er þetta örugglega móðurborðið, bara ath hitt áður.


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það


Höfundur
Vinni
Græningi
Póstar: 32
Skráði sig: Fös 25. Nóv 2005 13:17
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf Vinni » Sun 08. Ágú 2021 23:39

Góðir punktar takk.

Ég skipti um móðurborðið og nú ræsir græjan viftur og blikkar ljósum og voða gaman. En ég fæ enga mynd úr skjákortinu (innbyggt) né heldur skjákorti sem ég henti í hana. Ekkert signal á display.

Ætli örrinn hafi gefið upp öndina? Furðulegt vesen þetta.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2236
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 372
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf Moldvarpan » Mán 09. Ágú 2021 08:54

Hafðu speakerinn tengdann á móðurborðið, hún er pottþéttt að reyna pípa og segja þér hvað er að.

Hvað tengdiru á nýja borðið? Sett af minnum? Og væntanlega fært örgjörvan yfir?


Hvaða tegund af Aflgjafa varstu með í tölvunni?
Spurning hvort það hafi komið skammhlaup eða rafmagnsflökt sem hafi kálað henni.




Höfundur
Vinni
Græningi
Póstar: 32
Skráði sig: Fös 25. Nóv 2005 13:17
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf Vinni » Mán 09. Ágú 2021 22:06

Í þessari græju var einhver 800W corsair aflgjafi. Hann starfar nú í annari vél hjá mér og virkar eðlilega. Þetta innlegg er í boði hans. :) Núna er í henni einhver Sesonic Gold 700W sem var til á lagernum.

Ég tengdi bara PWR/Reset/HDD dótið úr kassanum. Setti í hana slurk af minni -4 kubbar, sem ég er síðan búinn að fækka niður í 1 í rauf 2 samkvæmt leiðbeiningum sem fylgdu borðinu sem ég keypti í hana. Og já færði örrann yfir og skrúfaði niður einhverja forláta vatnskælingu sem er á honum.

Ég þarf að tengja speakerinn og vita hvort að hann sé að flauta eitthvað. Góður punktur það, Takk!
Síðast breytt af Vinni á Mán 09. Ágú 2021 22:10, breytt samtals 3 sinnum.



Skjámynd

krukkur_dog
has spoken...
Póstar: 164
Skráði sig: Lau 08. Nóv 2008 22:53
Reputation: 4
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf krukkur_dog » Mán 09. Ágú 2021 22:32

Resetta BIOS


AMD4 Ryzen 7 5800x - M.2 Samsung SSD 980 Gen4 - Corsair 4x8GB DDR4 3200 - Asus TUF B550 - XFX RX Radion 7900 XT 20GB - Fractal Meshify 2 - Corsair RM850x 850W modular - HP 27xq 144Hz


Höfundur
Vinni
Græningi
Póstar: 32
Skráði sig: Fös 25. Nóv 2005 13:17
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf Vinni » Mán 09. Ágú 2021 22:59

Tók Batteríið úr í rúma mínútu, shortaði tengin inn á það just in case. Engin breyting.
Finn ekki buzzer tengi í þessum cooler master kassa. Bara HD audio og AC97. Ég held að það sé enginn buzzer í þeim?




Höfundur
Vinni
Græningi
Póstar: 32
Skráði sig: Fös 25. Nóv 2005 13:17
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf Vinni » Mán 09. Ágú 2021 23:46

Ég hef ekkert átt við intel örgjörva með skjástýringu hingað til. Getur verið að þetta borð sem ég keypti virki ekki við örgjörvann? Ef ég skil rétt er örrinn með skjástýringu, og borðið líka?!

móðurborð: https://www.msi.com/Motherboard/Z170-A- ... cification
Örri: https://ark.intel.com/content/www/us/en ... 0-ghz.html

Allar upplýsingar vel þegnar.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6419
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 280
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf gnarr » Þri 10. Ágú 2021 09:20

Vinni skrifaði:Ég hef ekkert átt við intel örgjörva með skjástýringu hingað til. Getur verið að þetta borð sem ég keypti virki ekki við örgjörvann? Ef ég skil rétt er örrinn með skjástýringu, og borðið líka?!

móðurborð: https://www.msi.com/Motherboard/Z170-A- ... cification
Örri: https://ark.intel.com/content/www/us/en ... 0-ghz.html

Allar upplýsingar vel þegnar.


Þetta borð styður i7-7700k.

Hérna tengirðu PC-speaker:
Mynd

Farðu í tölvubúð og fáðu "PC-speaker" hjá þeim:
Mynd


"Give what you can, take what you need."


Jekloz
Græningi
Póstar: 31
Skráði sig: Mið 24. Mar 2021 20:42
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf Jekloz » Þri 10. Ágú 2021 11:46

Þetta móðurborð styður þennan örgjörva en þarf líklegast BIOS uppfærslu til þess ef það er nýtt úr kassanum.

Sjá hérna:
https://www.msi.com/Motherboard/support/Z170-A-PRO

Version 1.F
Description
- Supported next generation new Intel CPU.




sludgedredd
Græningi
Póstar: 38
Skráði sig: Fös 19. Júl 2019 22:51
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf sludgedredd » Þri 10. Ágú 2021 17:19

margir dissa þessa móðurborðs speakers, en þetta er besta debugging tólið




Höfundur
Vinni
Græningi
Póstar: 32
Skráði sig: Fös 25. Nóv 2005 13:17
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: Dauð PC

Pósturaf Vinni » Þri 10. Ágú 2021 18:57

Bestu þakkir fyrir ráðin.
Ef ég þarf að uppfæra Bios, þá þarf ég væntanlega örgjörva sem passar við þann Bios sem er í borðinu til að framkvæma þann verknað. Ég á engan örgjörva fyrir 1151 til að nota í það. Borðið er nýtt-gamalt. Keypti það af manni á Bland sem átti nokkur svona borð í ópnuðum umbúðum. Eitthvað gamalt project sem aldrei varið.