Síða 1 af 1

Hjálp!

Sent: Sun 09. Jan 2022 17:43
af Rokkari77
Er einhver til í að hjálpa mér með það að betrumbæta listan minn.

betri partar fyrir lærra verð, undir 250k
https://builder.vaktin.is/build/0CD07

Endilega sendið mér nýja listan í pm

Þakkir fyrirfram

Re: Hjálp!

Sent: Sun 09. Jan 2022 20:29
af Harold And Kumar
Frekar minniháttar vandamál fyrir svona titil að mínu mati.

Re: Hjálp!

Sent: Sun 09. Jan 2022 21:40
af Sinnumtveir
Ég myndi nota kælinn sem fylgir örgjarvanum eða splæsa í betri kæli.

Kísildalur er með góðan slatta af miklu betri kælum sem kosta litlu minna, td:

AMD Wraith Prism - 4000kr - https://kisildalur.is/category/13/products/1043

Ég myndi jafnframt splæsa í betra móðurborð, td þetta hér:

ASRock B550M Pro4: https://kisildalur.is/category/8/products/1874
eða eitthvað annað B550 móðurborð, sjá hér: https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=57&t=89975&sid=6c88f5c1b0895b3ce444b779b53a595d#p750591

Uppá sportið og vegna hönnunar Ryzen örgjörvanna myndi ég taka hraðvirkara minni:

Crucial 16GB (2x8GB) DDR4 3600MHz, CL16 -18.900kr - https://tolvutaekni.is/collections/vinnsluminni/products/crucial-16gb-2x8gb-ddr4-3600mhz-cl16-ballistix-lifstidarabyrgd-1

eða (þó síður), 3600Mhz, CL18 minni hjá Tölvutækni eða Kísildal.

Re: Hjálp!

Sent: Mán 10. Jan 2022 00:19
af jonsig
Það er aldrei sniðugt að láta aflgjafann mæta rest. Ég finn ekkert review um þetta módel.

Nota online power calculator. Halda sig við uppgefna Watta stærð nema þú sért að plana eitthvað mega upgrade seinna en kaupa gott merki (corsair/seasonic/bequiet/evga/phanteks ofl)
Bara drasl aflgjafarnir sem þarf að bæta við einhverjum 30-40% við Wattastærð.

Re: Hjálp!

Sent: Mán 10. Jan 2022 00:47
af Klemmi
Tek undir með fyrri ræðumönnum. En ef þú vilt endilega spara í aflgjafa, þá tæki ég CoolerMaster MWE framyfir þennan, bara því ég treysti CoolerMaster betur... best væri þó að eyða 5-10þús kalli í viðbót og kaupa aflgjafa sem þú treystir og munt líklega nota í 5+ ár.

Að því sögðu, þá er þetta listinn frá mér:
https://builder.vaktin.is/build/18506

Litlu dýrara minni, en CL 16 frekar en CL 22. En eins og Sinnumtveir segir, þá er ekki verra að fara í 3600MHz CL 16, kostar litlu meira.

Sýnist að þetta eigi að vera leikjavél. Ég myndi alltaf fara í 1TB SSD disk, en ef þú ert á tight budgetti, þá að minnsta kosti splæsa í auka 3þús kall og fara í 500GB.

Þessi kæling sem þú valdir er RGB og verður því kannski frekar flott, en ég myndi frekar fara í einhverja sem blæs lofti í átt að úttaksviftunni að aftan. Sjálfur myndi ég líklega ekki taka þessa sem ég setti í listann, en ef þú ert á budgetti, þá væri það hún eða Arctic 7.

Basicly, ef þú ert tilbúinn til að eyða þetta miklum pening í tölvu, þá myndi ég samt reyna að bæta 10% við og fara í almennilegt í staðin fyrir mjeh, þó það skili sér ekki endilega í FPS.

Re: Hjálp!

Sent: Mán 10. Jan 2022 09:17
af Viktor
“ 2. gr.

Það á að nota lýsandi titla á nýjum bréfum
dæmi: Titillinn á ekki að vera "Hjálp!" eða "Hvort?" ”

viewtopic.php?t=6900

Re: Hjálp!

Sent: Mán 10. Jan 2022 11:31
af Rokkari77
Takk fyrir öll svörin